Morgunblaðið - 21.12.2000, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
*
EgsáGuðna _____
kyssa Búkollu!
Jólasveinn aldarinnar er að sjálfsögðu Beljusleikir.
Jóla hvað, annað en.
nordica Brauð-
listaverk
Smekkleg brauðrist,
úr burstuðu stáli.
4.990
AEG Ferhyrndar
vöfflur með
rjóma
4.490
Potturinn og pannan
í eldhúsinu
Viðloðunarfrír botninn toppar
svo allt
Úrval AEG
rafmagnaðra
handverkfæra
Með
handverkfærunum
okkartekursig
upp gömul
handlagni
hjá hinum
óllkustu mönnum.
ærunum
ir sig
' 1 1
570w/13mm patróna }
6.900
Hjónagrillið
Þau hjón, sem eiga svona grill,
eru eins og samlokur
Verð frá 2.490
umm..það hlýtur
að snjóa aftur
fyrir jól..
Eldklárar
leirvörur
SHARR Örbylgjuofn R212
1
Ódýr skyndibitastaður
með sveigjanlegan
opnunartíma
12.900
nordica
Hvert í
sjóðandi!
Hún sýður nefnilega vatnið áður
en það kemst í taeri við kaffið -
niðurstöðuna skaltu fá þér á
jóiunum. g_ggo
Opnunartímar:
í dag kl. 9-21
Föstudagur kl. 9-22
Þorláksmessa kl. 9-23
Næg bílastæði
BRÆÐURNIR
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
www.ormsson.ls
Fræðsluefni dreift við ATVR
Atak ungs fólks
til forvarna
Margrét Rún Einarsdóttir
DAG verða Afengis-
og vímuvamarráð
með átak sem beinist
að fullorðnum, foreldrum
og forráðamönnum barna
og unglinga. Ungt fólk og
ungar stúlkur úr unglinga-
landsliði kvenna í hand-
bolta munu dreifa kortum
fyrir utan flestalla útsölu-
staði ÁTVR á landinu.
Margrét Rún Einarsdóttir
á sæti í stjórn Félags
framhaldsskólanema, sem
m.a. stendur að þessu
átaki. Hún var spurð hvert
markmiðið væri.
„Tilgangurinn er að fá
fólk til þess að kaupa ekld
áfengi fyrir unglinga. Á
undanförnum árum hafa
aðilar sem starfa að vímu-
efnaforvörnum unnið
markvisst að því að draga
úr áfengis- og fíkniefnaneyslu
unglinga á grunnskólaaldri. Að-
gerðir í því sambandi hafa beinst
að unglingum, foreldrum þeirra
og öðrum sem sinna uppeldis- og
fræðslumálum. Samkvæmt þess-
um könnunum meðal foreldra og
nemenda hafa þessar aðgerðir
skilað árangri og hefur m.a. dreg-
ið umtalsvert úr áfengisdrykkju
unglinga í tíunda bekk grunnskól-
ans.“
- En hvers vegna beinist átakið
nú eingöngu að fullorðnum?
„Það er vegna þess að fullorðn-
ir eru fyrirmyndin og það er stað-
reynd að fullorðnir kaupa áfengi
bæði fyrir sjálfa sig og börn sín.
Með því að fullorðnir kaupi áfengi
fyrir börn og unglinga þá er þeim
gert auðvelt að neyta áfengis.
Þetta viljum við reyna að fyrir-
byggja, sérstaklega núna fyrir
hátíðamar, það hefur sýnt sig að
fólk kaupir áfengi fyrir börn og
unglinga á þessum tíma árs ekki
síst.“
- Hefur verið gerð könnun sem
staðfestir þetta?
„Þetta hefur komið fram í við-
tölum við unglinga og foreldra.
Einnig hefur komið fram í þess-
um samtölum að unglingamir
ganga hart að foreldrum að kaupa
fyrir sig áfengi og að þeir láti iðu-
lega undan þeim kröfum. Þetta
getur svo þróast út í að öllum að-
ilum finnist þetta sjálfsagt mál.
Þannig á það ekki að vera. Hafa
ber í hug að allir byrja á að neyta
áfengis og margir færa sig svo yf-
ir í sterkari vímuefni.“
-Er það tilfinning ykkar að
áfengis- og vímuefnaneysla fari
vaxandi meðal fólks undir lög-
aldri?
„Ég held að áfengisneysla fari
ekki minnkandi og allir vita úr
fréttum að önnur vímuefnaneysla
hefur aukist.“
-Drekkur fólk meira eftir að
það kemur í framhaldsskóla?
„Margir unglingar byrja áfeng-
isneyslu í níunda og tíunda bekk
gmnnskóla eða jafnvel fyrr.
Drykkjan eykst svo í
framhaldskólunum,
þar er drakkið í partí-
um sem oft em haldin
fyrir skólaböll eða aðra
viðburði, svo sem tón-
leika eða útihátíðir og
fleira."
- Hvað heldur þú að
helst skili árangri sem forvarn-
arstarfgegn vímuefnaneyslu?
„Ég tel að stuðla þurfi að því að
foreldrar séu með í forvörnum,
með því að fræða þá er óbeint
verið að fræða börn og unglinga."
- Hvernig er best að sú fræðsla
og forvamir fari fram ?
„Það er með því að senda út
► Margrét Rún Einarsdóttir
fæddist í Reykjavík 6. júnf 1980.
Hún lauk grunnskólaprófi 1995
og stundar nám í Borgarholts-
skóla í Grafarvogi. Hún starfar
nú í Landsbankanum og er í
framkvæmdastjóm framhalds-
skólanema. Hún hefur unnið við
ýmis störf á sumrin og með skóla
hingað til.
bæklinga og dreifa fréttapistlum
um afleiðingar áfengis- og vímu-
efnaneyslu. Einnig hefur sýnt sig
að það skilar miklum árangri að
fræða börn og unglinga í skólum.“
- Hverjir standa að þessu
átaksverkefni núna?
„Þeir sem standa að verkefninu
eru Félag framhaldsskólanema,
Áfengis- og vímuvarnarráð, ís-
land án eiturlyfja, lögreglan í
Reykjavík, Félag framhaldsskól-
anna og Heimili og skóli. Þessir
aðilar hafa myndað samstarfshóp
sem í félagi við ÁTVR, Hand-
knattleikssamband íslands og
unglingalandslið kvenna í hand-
bolta standa að dreifingu fræðslu-
efnis við útsölustaði ATVR, eins
og fyrr sagði.“
- Er þetta dýrt verkefni?
„Nei, þetta er tiltölulega ódýrt
verkefni. Áfengis- og vímuvarn-
arráð borgar fræðslukortin sem
dreift er og þau em unnin af
framhaldsskólanemum og dreift
af þeim. ÁTVR styrkir þetta
verkefni fjárhagslega. Á póst-
kortunum sem þannig verður
dreift í dag er foreldrum bent á að
styðja unglinga með því að leggja
þeim hvorki til áfengi né húsnæði
til áfengisdrykkju og einnig er
bent á að foreldrar verða að geta
treyst því að aðrir fullorðnir
hvorki veiti né kaupi áfengi fyrir
börn þeirra, né veiti þeim aðstöðu
til áfengis- eða fíkniefnaneyslu.“
- Verður framhald á þessu
starfi?
„Já, það var t.d. ákveðið um
daginn í nokkrum skólum að
halda böll án alls
áfengis, þar sem kenn-
arar og aðrir stjórn-
endur skólanna munu
taka fullan þátt í und-
irbúningi. Þetta eru
forvamir líka, að sýna
unglingum að það er
hægt að skemmta sér
án áfengis og annarra vímuefna.
Við vonumst til þess að foreldar
og forráðamenn taki vel þessari
hvatningu um að kaupa ekki
áfengi fyrir börn og unglinga og
stuðli með því að friðsælum og j
slysalausum jólum og áramótum, j
þannig að fólk njóti vel hátíðanna
um allt land.“
Vonumst til
að fólk kaupi
ekki áfengi
fyrir börn og
unglinga