Morgunblaðið - 21.12.2000, Síða 14

Morgunblaðið - 21.12.2000, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Nýr vegur um Dalafjall boðinn út Framkvæmd- um lokið á þremur árum Andvíg flutningi húsa úr Árbæjarsafni í miðbæinn Safnið myndi missa gildi sitt og tilgang BORGARMINJAVÖRÐUR er and- vígur þeim hugmyndum sem viðraðar voru í Morgunblaðinu um síðustu helgi í viðtali við forráðamenn Minja- vemdar hf., um að flytja ætti húsin úr Árbæjarsafni á gamla hafnarsvæðið í miðbæ Reykjavíkur. Borgarminja- vörður, Guðný Gerður Gunnarsdóttir, sagðist í samtali við Morgunblaðið fagna umræðum um vemd gamalla húsa og margt af því sem Minjavemd væri að gera samrýmdist hugmynd- um um Arbæjarsafn, þ.e. húsvemd og vemdun menningarverðmæta. Hins vegar samrýmdist það ekki stefhu og starfsemi Arbæjarsafns að flytja gömlu húsin þaðan aftur, safnið myndi með því missa gildi sitt og til- gang. Frekar mætti flytja fleiri hús á safnið, þótt úrval húsanna væri reyndar gott í dag og ekki gert ráð fyrir fleirum samkvæmt núgildandi skipulagi. Guðný Gerður sagði að söfn eins og Árbæjarsafn væra þekkt víða um heim. Fyrsta slíka safnið hefði verið Skansinn í Stokkhólmi, sem væri fyr- irmyndin sem Árbæjarsafn og fleiri byggðu á. „Hugmyndin sem liggur að baki slíkum söfnum er að taka til varð- veislu gamlar byggingar og mann- virki sem hafa á einhvem hátt misst gildi sitt á uppranalegum stað. Húsin era þá flutt á söfn sem dæmi um byggingarlist fyrri tíma. Allt í senn er þá verið að varðveita tækniþekkingu, handverk og hýbýli. Húsin eru þá höfð til sýnis og hefur það mikið upp- eldislegt gildi því þau era búin hús- búnaði frá eldri tíma. Með því er leit- ast við að lýsa lifnaðarháttum fólks sem bjó við allt aðrar aðstæður en við geram nú,“ sagði Guðný Gerður. Hún benti á að stofnun Árbæjar- safns fyrir um fímmtíu áram hefði verið í samræmi við þágildandi skipu- lag Reykjavíkur. Hugmyndin hefði verið að varðveita gamla bæinn í Árbæ, sem þá var farinn í eyði, og flytja þangað hús sem þurftu að víkja, oftast vegna skipulags. „Hugmyndir hafa breyst síðan þá og munu breytast áfram. Nú fá hús frekar að standa á sínum stað og er þá fundið nýtt hlutverk. Pað krefst oft ýmissa breytinga á húsunum, svo hægt sé að aðlaga gömul hús nútím- anum og stundum kemur til mála- miðlana þar sem varðveislugildi og nytjagildi er vegið og metið. Þetta er önnur hlið á húsvernd en sú sem snýr að því að varðveita hús í safni sem menningarsögulegar minjar og vitn- isburð um þekkingu og lifnaðarhætti horfins tíma. Báðai- þessar aðferðir, ef svo má segja, til að varðveita menn- ingarminjar eiga rétt á sér og geta stutt hvor aðra,“ sagði Guðný Gerður. Staðan á vinnumarkaði á vori komanda 1,5% fjölgun starfa á höfuðborgarsvæðinu GERT er ráð fyrir að eftirspurn eft- ir vinnuafli verði 0,8% meiri í apríl- mánuði næstkomandi á landinu öllu en á haustmánuðum. Einkum er gert ráð fyiir mikilli eftirspurn á höfuðborgarsvæðinu en þar er gert ráð fyrir 1,5% fjölgun starfa en eft- irspurnin á landsbyggðinni dregst saman um 1%, að því er fram kemur í athugun Vinnumálastofnunar á stöðu og horfum á vinnumarkaði. Samdráttar er einkum að vænta í hótel- og veitingastarfsemi og sam- göngum og fjarskiptum, en aukning- ar í verslun og viðgerðarþjónustu. Fram kemur að framboð á lausum störfum hafi mikið dregist saman frá því í ágúst síðastliðnum þegar framboðið hafí verið í hámarki en þá vora laus störf hjá vinnumiðlunum nærfellt þúsund talsins, en era nú aðeins ríflega 500. 0,3% minni eftirspurn I athugun Vinnumálastofnunar var sérstaklega litið á atvinnu- ástandið á Norðurlandi vestra, Vest- fjörðum og Vesturlandi og það kannað meðal fyrirtækja, sveitar- stjórnarmanna og svæðisráðsfull- trúa. Niðurstaðan er sú að horfur era á minni eftirspurn eftir vinnuafli sem nemur 0,3% á vormánuðum en nú. Samdráttar gætir einkum í fisk- veiðum og vinnslu, en einnig má bú- ast við minnkandi eftirspurn í iðn- aði, samgöngum og flutningum og landbúnaði. Aukinnar eftirspurnar megi aftur vænta í öðrum greinum, einkum fjármála-, fasteigna- og við- skiptastarfsemi. Fram kemur að minnkandi eftirspurn eftir vinnuafli megi einkum skýra með því að að fá stór fyrirtæki vilji fækka starfsfólki umtalsvert, en hins vegar séu þau fyrirtæki fleiri sem vilji fjölga starfsfólki. Búast megi við skorti á vinnuafli á norðvestanverðu landinu í mörgum greinum, einkum fag- lærðu fólki í byggingariðnaði og heilbrigðis- og félagsþjónustu. Þá megi reikna með svæðisbundnum skorti á starfsfólki í fiskvinnslu, þó minni eftirpum eftir vinnuafli í þeirri atvinnugrein megi vænta þeg- ar á heildina sé litið. Einnig megi vænta skorts á kennuram, sérfræð- ingum á sviði tölvu- og fjármála- þjónustu og starfsfólki í matvæla- iðnaði. FRAMKVÆMDIR við 11,3 km langan kafla á Vestfjarðavegi um Dalafjall, veg sem í daglegu tali er nefndur Brattabrekka, hafa verið boðnar út. Verkinu skal að fullu lokið 1. september 2003. Gamla þjóðleiðin milli Borgar- fjarðar og Miðdala lá um Bjarn- ardal og Bröttubrekku. Þegar bíl- vegur var lagður í Dali árið 1932 var farin önnur leið og byggðar brýr á Bjarnardalsá og Miðdalsgil. Nafn gömlu leiðarinnar færðist á nýju leiðina þótt hún lægi ekki lengur upp Bröttubrekku. I Fram- kvæmdafréttum Vegagerðarinnar er lögð áhersla á að nýr vegur skuli heita Vestfjarðavegur um Dalafjall því það sé réttara. Jarðgöng of dýr Núverandi vegur er brattur og krókóttur malarvegur. Á honum eru þrjár mjóar brýr og er slæm aðkoma að þeim öllum. I brekk- unni upp Miðdalsgil og í brekkunni við Dragagil niður í Suðurárdal er vegurinn mjög hættulegur vegna bratta og krappra beygja. Þar safnast oft snjór á vetrum og mikil hálka getur myndast. Brekkurnar eru ein aðalhindrunin á greiðum vegarsamgöngum milli byggða í Borgarfirði og Dalasýslu, að því er fram kemur í Framkvæmdafrétt- um. Með tilkomu vegar yfir Gils- fjörð hefur umferð aukist um Dalasýslu og er búist við að hún aukist enn þegar vegir skána á sunnanverðum Vestfjörðum. Margir möguleikar til vegabóta um Dalafjall hafa verið skoðaðir. Meðal annars kom til greina að bora jarðgöng en sú framkvæmd myndi kosta um 1250 milljónir kr. á móti 490 milljóna kostnaði við lagningu nýs vegar. Nýi vegurinn liggur á sömu slóðum og núverandi vegur. Hann mætir Hringveginum í Norðurár- dal við núverandi vegamót en sveigir vestur fyrir bæinn Dals- mynni. Gert er ráð fyrir byggingu 100 m langs ræsis rétt austan við núverandi brú á Bjarnardalsá. I útboðinu er þó gert ráð fyrir til- högun B sem miðar við að gerð ræsisins verði frestað en nýja leið- in tengd inn á gömlu brúna sem raunar er ekki hægt að breikka. Munu tilboð í verkið ráða því hvor kosturinn verður valinn. Mesta hæð vegarins er 403 m. Framkvæmdum við fyrri áfanga leiðarinnar, það er að segja veg- urinn í Miðdölum og að fjallveg- inum, lauk í haust. Framkvæmd- inni lýkur með því útboði sem nú hefur verið auglýst. Byrjað verður Dalamegin á næsta ári en unnið Borgarfjarðarmegin 2002. Bundið slitlag á að vera komið á kaflann vestanmegin á árinu 2002 og allan veginn 1. ágúst 2003. ÖSE vill að Ásta R. Jóhannesdóttir þingmaður fari í þriðja sinn til Aserbaídsjan í eftirlitsferð Hætta á átökum þegar kosið verður aftur Frá fundi alþjóðlegra eftirlitsaðila með ríkissaksóknara Aserbaídsjan um síðustu helgi. Talið frá hægri eru það Andreas Gross, þingmaður frá Sviss og fulltrúi Evrópuráðsins, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, fulltrúi ÓSE, Paul Legende, starfsmaður ÖSE í Kaupmannahöfn, og Ioks tveir túlkar sem aðstoðuðu við viðræðurnar. ÁSTA Ragnheiður Jóhannesdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, er nýkomin heim öðra sinni frá fyrram sovétlýðveldinu Aserbaídsjan þar sem hún hafði eftirlit með fram- kvæmd þingkosninga í landinu fyrir hönd Öryggis- og samvinnustofnun- ar Evrópu, ÖSE. Stofnunin hefur komið þeirri ósk á framfæri við Al- þingi að hún fari í þriðja sinnið til Aserbaídsjan í byrjun næsta mánað- ar þar sem endurtaka þarf kosningar í nokkram kjördæmum landsins vegna athugasemda sem bárast við framkvæmd þehra frá alþjóðlegum eftirlitsaðilum. Ásta sagði við Morg- unblaðið í gær að ákvörðun um að hún færi hefði ekki verið tekin. Hún sagði ástandið í landinu að mörgu leyti vera varasamt og hætta væri á átökum milli stjórnvalda og stjórn- arandstöðuflokkanna. Stærsti stjórnarandstöðuflokkur- inn, Musarat, fékk engan þingmann kjörinn í kosningunum í nóvember þrátt fyrir að niðurstöður ýmissa kjördeilda bentu til að flokkurinn væri jafnvel með 20 til 30% fylgi. Alls tókust 13 flokkar og samtök á í kosn- ingum um 124 laus þingsæti. Ásta sagði að flokkurinn væri mjög ósátt- ur við sína stöðu. Kröfur um úrbætur Hún fór fyrst ásamt nokkram þingmönnum aðildarríkja ÖSE til landsins í bytjun nóvember sl. þegar þingkosningamar fóru fram. Hún sagði við Morgunblaðið að þing- mannahópur ÖSE hefði sett fram ákveðnar kröfur um að bæta fram- kvæmdina og fara eftir þeim athuga- semdum sem gerðar voru af hálfu þingmannanna. Til að fylgja þeim kröfum eftir fór alþjóðleg sendi- nefnd til Aserbaídsjan um síðustu helgi og var Ásta einn fulltrúi ÖSE í þeirri ferð. Hún sagðist hafa, ásamt tveimur fulltrúum Evrópuráðsins, fundað með stjórnarandstöðuflokk- um, dómstólum og forseta landsins. .Ástendið hefur verið erfitt vegna þess að stjórnarandstöðuflokkarnir era ósáttir við framkvæmd kosning- anna. Þeir hafa ákveðið að hunsa þingið og ætla ekki að bjóða fram aftur í endurteknum kosningum í janúar. Þingið hafði verið kallað saman, án þess að búið væri að kjósa alla þingmenn, og búið að kjósa for- seta þingsins og í nefndir. Evrópu- ráðið er að meta umsókn Asera um inngöngu í ráðið, um leið og metin er umsókn Armeníu. Ráðið hefur sett fram þá kröfu að þingið verði að vera lögmætt og endurspegla stjórnmála- öflin í landinu til að geta verið tekið gilt inn í Evrópuráðið. Eins og ástandið er núna þarf að gera ýmsar umbætur til að svo verði. Við rædd- um þetta við stjórnvöld um síðustu helgi og settum fram kröfur sem Ga- idar Alíev forseti samþykkti, allar nema eina. Við ræddum einnig við stjórnarandstöðuflokka og hvöttum þá til að taka þátt í endurtöku kosn- inganna, bentum þeim á að hluti af lýðræðinu væri auðvitað að taka þátt,“ sagði Ásta Ragnheiður. Lærdómsríkar ferðir Frestur til að skila inn framboðum fyrir kosningar í ellefu kjördæmum landsins í janúar var ranninn út og sagði Ásta að tekist hefði að fá frest- inn framlengdan, auk þess að fresta endurtöku kosninganna frá 5. til 7. janúar næstkomandi. Hún sagði Al- íev forseta leggja ríkja áherslu á að mikið og gott eftirlit alþjóðastofnana verði með þeim kosningum. Ti-yggja þurfi að stjórnvöld verði ekki ásökuð um kosningasvik. Ásta og fulltrúar Evrópuráðsins funduðu einnig með ríkissaksóknara landsins þar sem fjöldi kæra barst vegna framkvæmd kosninganna í nóvember. Kvartaði stjórnarand- staðan yfir því að ekkert hefði verið gert með kærarnar. „Þetta hafa verið mjög lærdóms- ríkar ferðir. Aserar hafa litla lýðræð- ishefð og það kemur á óvart hvað langan tíma tekur að koma lýðræð- inu á. Evrópuráðið og ÖSE vilja hjálpa þeim við að koma á lýðræð- islegra stjómarfari og hafa af þeim sökum lagt í þessa vinnu við und- irbúning á kosningum, löggjöf og eft- irlit,“ sagði Ásta.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.