Morgunblaðið - 21.12.2000, Qupperneq 16
16 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Osk um að aflétta umferðar-
takmörkunum um Áland
Forsendur fyr-
ir ákvörðun-
inni brostnar
fjármagnað af eigin fé. Nú
starfa tíu manns í Mosfellsbæ
og stefnt að fjölgun starfs-
manna í náinni framtíð. Þá
hefur Net-AIbúm opnað skríf-
stofu í Los Angeles þar sem
áhersla verður lögð á mark-
aðsrannsóknir.
Net-Albúm hefur vakið all-
mikla athygli fjölmiðla enda
um að ræða nýtt og spennandi
forrit, byggt á íslensku hug-
viti, sem felur í sér mikla vaxt-
armöguleika í framtíðinni."
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson
Þorvaldur Ingi Jónsson, framkvæmdastjóri Net-Albúms, Sprotafyrirtækis Mosfellsbæjar árið 2000, tók á móti viðurkenn-
ingu fyrir hönd fyrirtækisins, og hjá honum stóðu aðrir starfsmenn þess.
Hvatningarverðlaun og Sprotafyrirtæki Mosfellsbæjar
Ljósmynd/Sigurður Ægisson
Lúðrasveit á bæjarrölti
ÞEIR sem fara um Lauga-
veginn þessa dagana heyra
oftar en ekki spiluð jólalög
sem þá ýmist hljóma beint
af geisladiskum úr versl-
unum eða í lifandi flutningi
á gangstéttunum. Þegar
Morgunblaðið var þar á
ferð siðastliðið þriðjudags-
kvöld var Lúðrasveit verka-
lýðsins að spila jólalög
framan við eina verslunina,
þar sem hún hafði fundið
sér örlítið skjól fyrir súld-
inni. Aðspurðir sögðust
meðlimir lúðrasveitarinnar
þarna staddir á vegum
Laugavegssamtakanna og
að þetta væri árleg uppá-
koma, að mæta þarna síð-
ustu daga fyrir jól og spila
fyrir gesti Laugavegarins.
Lúðrasveitin hafði einnig
verið á ferð í þessum er-
indagjörðum tvö síðastliðin
laugardagskvöld frá klukk-
an 20-22 en þetta var síð-
asta bæjarkvöld sveit-
arinnar fyrir þessi jól.
Meðlimirnir voru reyndar
byrjaðir að pakka saman
þegar Morgunblaðið bar að
garði en ákváðu að spila
eitt lag enn og tileinka það
blaði allra landsmanna. Og
svohljómaði hið sígilda jóla-
Iag T. Connors af miklum
krafti um allan Laugaveg-
inn: „Eg sá mömmu kyssa
jólasvein." Ekki ónýtt það.
Sigurplast
og Net-
Albúm hlut-
skörpust
AFHENDING hvatningar-
verðlauna atvinnu- og ferða-
málanefndar Mosfellsbæjar
fyrir árið 2000 fór fram í Hlé-
garði í fyrradag, þriðjudaginn
19. desember, og komu þau í
hlut Sigurplasts að þessu
sinni. Þetta er í annað sinn
sem nefndin veitir hvatningar-
verðlaun. í fyrra féllu þau í
skaut Flugfélaginu Atlanta.
Jafnframt veitti atvinnu- og
ferðamálanefnd viðurkenn-
ingu til Sprotafyrirtækis Mos-
fellsbæjar í fyrsta sinn og
komu þau í hlut Net-Albúms.
Tilgangur hvatningarverð-
launanna er að vekja athygli á
þeim fyrirtækjum sem eru að
gera vel, bæði fyrir sig, starfs-
menn sína og íbúa Mosfells-
bæjar. Við val á fyrirtækjum
sem tilnefnd eru til Hvatning-
arverðlaunanna eru eftirfar-
andi atriði höfð til hliðsjónar:
• Nýjungarognýsköpunhjá
fyrirtækinu
• Umsvif íbæjarfélaginu
• Fjölgun starfsmanna
• Starfsmanna- og
fjölskyldustefna
• Imynd og sýnileiki
• Umhverfi og aðbúnaður.
Eftirfarandi fyrirtæki voru
tilnefnd til hvatningarverð-
launa fyrir árið 2000: Á. Ósk-
arsson, Álafoss verksmiðjuút-
sala, Álafoss-föt best, Áslákur,
Flugfélagið Atlanta, Gler-
tækni, I toppformi, ístex,
Kjarninn verslunarmiðstöð,
Mosraf, Mottó, Nýbrauð, Org-
elverkstæði Björgvins Tómas-
sonar, Reykjabúið, Reykja-
garður, Reykjalundur, Sig-
urplast og Veislugarður. Flest
atkvæði hlaut Sigurplast, eins
og áður er greint frá. Atvinnu-
og ferðamálanefnd komst svo
að orði í umsögn sinni um
verðlaunahafann árið 2000:
„Sigurplast hélt upp á 40 ára
afmæli sitt í október sl. en fyr-
irtækið var stofnað 1960. Síð-
an þá hefur verið unnið mikið
þróunarstarf og er fyrirtækið
í fremstu röð í framleiðslu
plastumbúða á Islandi. Meg-
ináhersla Sigurplasts hefur
verið framleiðsla á ýmiskonar
plast- og blikkumbúðum og
hefur fyrirtækið kannað ýmsa
möguleika í vöruþróun á því
sviði, t.d. er hafin framleiðsla
umbúða fyrir gosdrykkja- og
lyfjamarkaðinn.
Stærstu eigendur Sigm'-
plasts hf. eru Skeljungur hf.,
Sigurður B. Guðmundsson,
dánarbú Sigurðar Egilssonar
o.fl. Stefnt er að sameiningu
Sigurplasts og Plastprents í
nánustu framtíð.
Undanfarin ár hefur Sigur-
plast verið í örum vexti og
sýnt þykir að fyrirtækið þurfi
að stækka enn frekar við sig
og fjölga starfsfólki. Nú vinna
um 20 manns hjá Sigurplasti
og gert er ráð fyrir að fjölga
muni um 6-7 manns fljótlega
eftir áramótin, vegna starfa
við nýtt vöruhótel, þar sem
Sigurplast mun meðal annars
sjá um alla vörudreifingu fyrir
Plastprent. Það er stefna Sig-
urplasts að skipta við fyrir-
tæki í Mosfellsbæ þegar því
verður við komið og með því
móti ýta undir atvinnustarf-
semi hér í bænum. Sigurplast
hefur ekki verið mjög sýnilegt
opinberlega og t.d. ekki skráð
á hlutabréfamarkaði. Fyrir-
tækið er að undirbúa átak í að
merkja framleiðsluvörur sín-
ar, þannig að neytendur sjái
að umbúðirnar séu íslensk
íramleiðsla.
Mjög snyrtileg aðkoma er
að fyrirtækinu og umhverfi
allt til sóma. Sigurplast hefur
kappkostað að halda umhverfi
verksmiðjunnar aðlaðandi.
Þótt fyrirtækið hafi ekki
ákveðna umhverfísstefnu er
kappkostað að endurvinna og
flokka úrgang sem leiðir til
mikillar hagræðingar og
sparnaðar í rekstri fyrirtæk-
isins.“
Sprotafyrirtæki atvinnu-
og ferðamálanefndar
Atvinnu- og ferðamála-
nefnd óskaði eftir tilnefning-
um um sprotafyrirtæki Mos-
fellsbæjar fyrir árið 2000.
Eftirtalin fyrirtæki voru til-
nefnd: Net-Albúm, Mosfells-
bakarí, Café Krónika, Pizza-
bær, Dýrahald, Rust og Hlín
Björgvin Njáll Ingólfsson, formaður atvinnu- og ferða-
málanefndar Mosfellsbæjar, afhenti Rögnvaldi Pálmasyni,
sölu- og markaðsstjóra Sigurplasts, hvatningarverðlaun
bæjarins fyrir árið 2000. Milli þeirra stendur Sigurður
Bragi Guðmundsson, framkvæmdastjóri Sigurplasts.
Blómahús. Við val á Sprota-
fyrirtæki Mosfellsbæjar er
eftirfarandi haft til hliðsjónar:
• Að fyrirtækið sé yngra en
tveggja ára eða um sé að
ræða ný sóknartækifæri í
eldri rekstri.
• Að fyrirtækið hafi vakið
eftirtekt og hlotið opinbera
umfjöllun.
• Að viðskiptahugmyndin sé
ný/spennandi og vaxta-
möguleikar séu fyrir
hendi.
• Að fyrirtækið sé skráð og
hafi höfuðstöðvar sínar í
Mosfellsbæ.
Flest atkvæði hlaut fyrir-
tækið Net-Albúm. í umsögn
atvinnu- og ferðamálanefndar
um það segir: „Fyrirtækið
Net-Albúm hóf rekstur 1998
en fluttist til Mosfellsbæjar í
byrjun maí 2000. Net-Albúm
hlaut þriðju verðlaun í sam-
keppninni Nýsköpun 1999 og
fékk í kjölfarið aðsetur í frum-
kvöðlasetri IMPRU. Frá
stofnun fyrirtækisins hefúr
megináhersla þess verið á
þróun og markaðssetningu
hugbúnaðarins Net-AIbúm.
Forritið á að leysa þörf PC-
notenda við geymslu og notk-
un á margmiðlunarefni s.s.
stafrænum myndum, tónlist,
hreyfimyndum og skönnuðum
skjölum. Nú er hægt að nálg-
ast forritið á Netinu en stefht
er á að það verði sett í sölu
næsta vor. Nýverið gerði Net-
Albúm samning við Digital
Now Inc. í Bandaríkjunum um
dreifingu á forritinu á Banda-
ríkjamarkað. Net-Albúm er
hlutafélag og eru hluthafarnir
orðnir yfír 100 talsins.
Stærstu hluthafamir eru þrír
af stofnendum fyrirtækisins.
Þá eru Hans Petersen hf., Op-
in kerfi hf. og Verðbréfastofan
hf. einnig meðal hluthafa. Fyr-
irtækið hefur alfarið verið
Miðborg
Mosfellsbær
Fossvogur
LÖGREGLUSTJÓRANUM í
Reykjavík hefui’ verið sent
bréf fyrir hönd fjölda íbúa í ná-
grenni Álands í Fossvogi þar
sem farið er fram á að umferð-
arskilti sem takmarka gegn-
umakstur um götuna verði
fjarlægð. Um leið verði aflétt
umferðartakmörkunum um
Áland frá því í vor.
í bréfunum er bent á að for-
sendan fyrir umferðartak-
mörkununum og þar meðupp-
setningu skiltanna sé brostin.
Borgaryfirvöld hafi farið fram
á við lögreglustjórann í
Reykjavík að gegnumakstur
takmai’kaður á grundvelli
breytinga á deiliskipulagi.
Þær breytingar hafi nú verið
felldar úr gildi í úrskurðar-
nefnd skipulags- og bygging-
armála. Jóhannes Pálmason,
yfirlögfræðingur Landspítala
- háskólasjúkrahúss, tekur
undir þetta í bréfi til lögreglu-
stjóra.
Borgaryfirvöld blekkt?
Tómas Jónsson, íbúi við Bú-
land, hefur verið í forsvari fyr-
ir íbúa í svokölluðum B-lönd-
um í Fossvogi sem hafa lýst
sig andvíga umferðairíak-
mörkunum um Áland. Tómas
segir að með takmörkunum sé
verið að fóma meiri hagsmun-
um fyrir minni. Mikilvægri
umferðaræð fyiir hverfið hafi
verið lokað. Hann telur að
borgin hafi hálfpartinn verið
blekkt til að fara fram á um-
ferðartakmarkanir um Áland.
„Ákvörðun borgarinnar
byggði m.a. á því að þetta væri
vilji fólksins í hveifinu og vísað
var í undirskriftalista um 300
íbúa þess,“ segir Tómas. „Þeg-
ar betur var að gáð bjó meiri-
hluti þeirra sem skrifuðu und-
ir listann hinum megin við
Bústaðaveginn." Þeir íbúar
hafi varla mikilla hagsmuna að
gæta í þessu máli. Þá hafi íbú-
ar í B-löndunum farið af stað
með sinn eigin undirskrifta-
lista þar sem farið var fram á
að umferðartakmörkunum
yrði aflétt. Tómas segir að alls
hafi safnast um 150 undir-
skriftir en aðeins var leitað til
íbúa í B-löndunum.
Meðal þess, sem íbúar í
hverfinu, sem eru andvígir
umferðartakmörkunum um
Áland, hafa bent á máli sínu til
stuðnings, er að oft sé þung
umferð um Bústaðaveginn
sem megi sneiða hjá með því
að aka um Álandið og um leið
létta á gatnamótum Eyrar-
lands og Bústaðavegar. Þá sé
efsti hluti Eyrarlandsins
brattur og stundum illfær á
veturna vegna snjóa og hálku.
Tómas segist bjartsýnn á að
lögreglustjóri verði við óskum
föúanna.
Aukin umferð um
útivistarsvæði
Jóhannes Sævarsson er í
forsvari fyrir íbúa við götur
sem liggja að Fossvogsvegi.
Hann segir íbúa telja að lokun
Álands komi niður á umferð-
aröryggi í hverfinu. Eftir að
lokað var fyrir gegnumakstur
um Áland hafi umferð um
Fossvogsveg aukist talsvert.
Jóhannes bendir á að vegurinn
liggi um og að vinsælu útivist-
arsvæði. Fjöldi manns fari um
gangstéttir við veginn og eftir
veginum vegna vinsæls
göngu- og hjólreiðastígs sem
liggur að göngubrú yfir
Kiinglumýrarbraut. Foss-
vogsvegurinn sé í raun hluti af
göngustígakerfi borgarinnar.
Jóhannes bætir við að nem-
endur í Fossvogsskóla þuifi að
fara yfir veginn á leið sinni í og
úr skólanum. Borgaryfii’völd
hafi þó komið til móts við íbúa
við Fossvogsveg með því að
setja hraðahindranir á veginn
og láta lækka þar hámarks-
hraða.
Jóhannes segir næstum alla
íbúa við Fossvogsveg hafa
skrifað á undirskriftalista þess
efnis að aflétta beri umferðar-
takmörkunum um Áland.