Morgunblaðið - 21.12.2000, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Kristj án
Jólasveinninn naut aðstoðar slökkviliðsins við að ná pökkum niður úr jólatrénu á Ráðhústorgi en þar var
haldin Jólatréskemmtun allra Akureyringa um helgina.
Pakkarnir
sóttir með
aðstoð
slökkviliðs
JÓLATRÉSKEMMTUN allra Ak-
ureyringa var haldin á Ráðhús-
torgi um helgina en þangað mætti
fjöldi barna. Búið var að koma
jólapökkum fyrir í jólatrénu á
torginu, en það er gjöf frá vina-
bænum Randers í Danmörku.
Jólasveinarnir fengu aðstoð frá
Slökkviliði Akureyrar við að ná
pökkunum niður og mættu þeir
með körfubfl sinn á svæðið til að
sækja jólapakkana. Fjöldi jóla-
sveina tók þátt í gleðinni og Jóla-
blúndurnar vöppuðu einnig um
svæðið.
Oflug rannsóknarmiðstöð
rís við Háskólann á Akureyri
RÍKISSTJÓRN íslands samþykkti á fundi sínum
í vikunni að ráðast í byggingu rannsóknarhúss við
Háskólann á Akureyri. Fjármögnun og fram-
kvæmd við byggingu og rekstur hússins verður
einkaframkvæmd og verður kynnt fjárfestum sem
slík í byrjun næsta árs.
Björn Bjamason, menntamálaráðherra, segir
að ákveðið sé að byggingin rísi á svæði háskólans á
Sólborg. „Hvað stærð hússins varðar þá fara um
4.000 fermetrar undir þá opinberu starfsemi sem í
húsinu verður. Síðan er það komið undir þeim að-
ilum sem fjármagna byggingu hússins hversu
stórt umfram það húsið verður.“
Bjöm segir að bygging rannsóknahússins sé
búin að vera lengi í gerjun og því sé ánægjulegt að
búið sé að stíga þetta skref. „Ég tel að þetta hús
verði ekki eingöngu kærkomin búbót fyrir Há-
skólann á Akureyri heldur fyrir alla þá sem vilja
stunda rannsóknarstarf á Akureyri enda verða
þama fjölmargar stofnanir og rannsóknarstofur
saman komnar undir einu þaki. Því verður þetta
skemmtileg miðstöð frá vísindalegu og rannsókn-
arlegu sjónarmiði sem á vafalítið eftir að gefa góða
hluti af sér.“
Ráðherra hafði
forystu í málinu
Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Ak-
ureyri, segir að það sé langt síðan Háskólinn á Ak-
ureyri hafi varpað þessari hugmynd fram og því sé
ánægjulegt að sjá jákvæða niðurstöðu. „Mennta-
málaráðherra hefur haft fomstu um að leiða þetta
mál til lykta og er það mjög þakkarvert. Bygging
þessa rannsóknahúss þýðir einfaldlega stórt stökk
fram á við fyrir háskólann og atvinnulíf í landinu.
Þorsteinn segir að undirbúningur að byggingu
hússins hafi verið £ höndum nefndar á vegum
menntamálaráðherra en í henni hafi setið, auk
ráðherra, fulltrúar fjármálaráðuneytis, sjávarút-
vegsráðuneytis, iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis,
umhverfisráðuneytis, Iandbúnaðarráðuneytis og
Háskólans á Akureyri. „Gert er ráð fyrir því að
stofnanir sem heyra undir þessi ráðuneyti komi að
starfseminni en alls er gert ráð fyrir því að á ann-
an tug fyrirtækja og stofnana starfi í húsinu. Það
er því stefnt að því að þetta hús komi til með að
hýsa mjög öflugan þekkingar- og tæknigarð á
ýmsum sviðum rannsókna og tækni. Það má gera
ráð fyrir því ef allt gengur eftir að framkvæmdir
hefjist við húsið á næsta ári og þeim ætti að geta
•lokið árið 2003.“
Dæmdur
fyrir
líkamsárás
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
eystra hefur dæmt ungan mann í 30
daga fangelsi skilorðsbundið til
tveggja ára fyrir líkamsárás í miðbæ
Akureyrar. Þá var maðurinn dæmd-
ur til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Ungi maðurinn var ákærður fyrir
að hafa veist að jafnaldra sínum á
Ráðhústorginu og slegið hann tvö
hnefahögg í andlitið með þeim afleið-
ingum að hann nefbrotnaði. Fyrir
dómi viðurkenndi ákærði skýlaust
verknaðinn og var játning hans í
samræmi við framburð hans fyrir
lögreglu. I dómi héraðsdóms kemur
fram að tilefni árásarinnar hafi verið
minniháttar ýfingar milli ákærða og
árásarþolans og að ákærði hafi verið
undir áhrifum áfengis.
-------------
Eyjafjörður það ert þú!
Björg og
Daníel árita
BJÖRG Þórhallsdóttir sópransöng-
kona og Daníel Þorsteinsson píanó-
leikari árita hljómdisk sinn Það ert
þú! Eyjafjörður - ljóð og lag í dag,
fimmtudaginn 21. desember í Penn-
anum - Bókvali, Hafnarstræti kl. 15
og í Pennanum - Eymundssyni,
Glerártorgi kl. 17.
Föstudaginn 22. desember árita
þau disk sinn í Bláu könnunni í Hafn-
arstræti kl. 18 eftir kynningu á
hljómdiskinum í göngugötunni í
Hafnarstræti.
Morgunblaðið/Kristján
Það hefur verið líf og fjör í miðbæ Akureyrar siðustu daga og svo verður einnig þá fáu daga sem enn eru til jóla.
Líf og fjör í miðbænum
MIKIÐ verður um að vera í jóla-
bænum Akureyri þessa siðustu
daga fyrir jól og stöðug dagskrá. f
dag, fímmtudag, kemur Hurða-
skellir fljúgandi til Akureyrar að
vestan og þá með eitthvert góðgæti
meðferðis. Jólablúndurnar hyggj-
ast sækja sveinka á flugvöllinn svo
að hann geri nú ekki einhverja vit-
leysu. Þá verða vitlausu jólasvein-
arnir með hestana í bænum, bæði í
dag og á laugardag, kl. 16.
A morgun, föstudag, þenur Þur-
íður formaður harmonikkuna víða
um miðbæinn milli kl. 16 og 18 og
Hera Björk syngur í sviðsvagn-
inum kl. 17. Jólablúndurnar verða
á ferðinni eftir kl. 17 á morgun og
Björg Þórhallsdóttir og Daníel
Þorsteinsson flytja lög af nýútkom-
inni plötu sinni og árita hana svo á
Bláu könnunni á eftir. Þá syngur
Karlakór Eyjafjarðar jólalög kl.
20.30.
Friðarganga á Þorláksmessu
Á Þorláksmessu verður einnig
ýmislegt um að vera, jólasveinn les
jólasögu á Amtsbókasafninu kl. 14,
Jólablúndurnar verða á ferðinni
hressar að vanda og þá verður
dregið í risalukkuleik jólasvein-
anna á jólasveinasögustöðum kl.
18. Klukkan 19 fer friðarganga frá
Eimskipafélagsbryggjunni og
verður gengið upp í miðbæ. Þar
tekur barna- og unglingakór Ak-
ureyrarkirkju á móti göngunni
með söng. Kyndlar verða seldir á
bryggjunni fyrir göngu. Þá verða
krakkarnir að muna eftir lukkuk-
istu jólasveinanna.
Loks má geta þess að bæj-
arstjórn Akureyrar samþykkti á
fundi sínum í vikunni að fella niður
stöðumælagjald á bflastæðum í
miðbænum fram til jóla, þ.e. frá
hádegi hvern dag.
Viður-
kenndu
innbrot
og þjófnaði
RANNSÓKNARDEILD lögregl-
unnar hefur upplýst innbrots- og
þjófnaðarmál frá því fyrir helgi.
Brostist var inn á veitingastaðinn
Setrið í Sunnuhlíð sl. föstudags-
morgun, í þriðja sinn á skömmum
tíma og stolið þaðan um 100 þúsund
krónum í peningum. Maður sem
handtekinn var í kjölfarið viður-
kenndi verknaðinn.
Hann viðurkenndi jafnframt að
hafa ásamt öðrum manni stolið tækj-
um úr tveimur fyrirtækjum í miðbæ
Akureyrar um miðjan dag á fimmtu-
dag og var sá maður handtekinn í
Reykjavík í kjölfarið. Mennirnir
stálu fartölvu úr húsnæði Landssím-
ans og skjávarpa á Kaffi Amour.
Báðir mennirnir hafa áður komið við
sögu lögreglunnar, vegna innbrots-
og fíkniefnamála.
------♦-♦-♦----
Skralli og Lalli
á geisladiski
LÖGIN úr leikritinu „Tveir misjafn-
lega vitlausir“, sem Leikfélag Akur-
eyrar í samstarfi við Vitlausa leik-
hópinn hefur sýnt og mun sýna í
Samkomuhúsinu á Akureyri og víðar
á Norðurlandi, eru komin út á geisla-
diski. Þar er einnig að finna flutning
á broti úr leikritinu.
Um er að ræða trúðaleikrit eftir
Aðalstein Bergdal og fer hann með
hlutverk trúðsins Skralla, en Skúli
Gautason leikur yngri bróður hans,
Lalla. í leikritinu segir frá því þegar
Lalli tekur að sér að gæta barns,
gerist dagmamma, en þar sem hann
er svefnpurka mikil lendir pössunin
að mestu á Skralla. Bræðumir
standa frammi fyrir mörgum erfið-
um spumingum því þeir eru ekki vel
að sér um hvað bamapössun er.
Auk þess sem þeir félagar syngja
lögin úr sýningunni og leika brot úr
leikritinu eru lögin einnig leikin
þannig að hver sem er getur sungið
með.
Tvær sýningar verða á leikritinu í
Samkomuhúsinu á Akureyri milli
jóla og nýjárs, en þráðurinn að nýju
tekinn upp eftir áramót. Þá er einnig
fyrirhugað að ferðast með verkið um
Norðurland eða frá Hvammstanga
að Vopnafirði.
---------------
Tdnleikar
á Græna
hattinum
EIGENDUR Græna hattsins við
Hafnarstræti á Akureyri ætla að
bjóða bæjarbúum og gestum á tón-
leika með hljómsveitinni 200.000
naglbítum á veitingastaðnum á Þor-
láksmessukvöld.
Hljómsveitina skipa þeir Vilhelm
Jónsson, Kári Jónsson og Axel Árna-
son, en á tónleiknum á Græna hatt-
inum munu þeir félagar fá þrjá tón-
listarmenn til liðs við sig, þá Róbert
Reynisson á gítar, Benedikt Bryn-
leifsson á slagverk og Heimi Hlöð-
versson á hljómborð. Tónleikarnir
hefjast kl. 22 en húsið verður opnað
kl. 20.
------♦-♦-♦----
Kirkjustarf
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Föstu-
daginn 22. desember kl. 21 verða
haldin litlu jól í umsjón unga fólks-
ins. Jólahugleiðing, skemmtiatriði
og veitingar.
LAUFÁSPRESTAKALL: Að-
ventusamvera, kvöldstund við kerta-
ljós verður í Laufáskirkju fimmtu-
daginn 21. desember kl 21. Sr.
Sólveig Lára Guðmundsdóttir flytur
hugvekju.