Morgunblaðið - 21.12.2000, Side 20

Morgunblaðið - 21.12.2000, Side 20
20 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Óvenjuleg sjdn á Blönduósi Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Maríuerla daglegur gestur á tröppunum Sérhæfð eggjavinnsla sett upp í Vogum Unnið úr 3-4 millj- ónum eggja á ári Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Björn Jónsson framkvæmdastjóri og Valdimar Antonsson framleiðslu- stjóri við vélina sem brýtur eggin og skilur að eggjarauðu og hvítu. LITIL maríuerla hefur verið dag- legur gestur á tröppum hjónanna Jóns Kr. Jónssonar og Herdísar Ellertsdóttur á Blönduósi und- anfarnar vikur, en afar óvenju- legt þykir að sjáist til maríuerla á þessum árstíma. Reyndar hafa þrjár slíkar sést flögra um á Blönduósi og nágrenni. Jón og Herdís fóðra jafnan fugla á veturna og segir Jón að fyrir komi að skógarþrestir sjáist á tröppunum hjá þeim. Þeir hafi verið óvenju aigeng sjón nú í vet- ur og telur hann að trúlega teng- ist það þeim hlýindum sem verið hafí. Fyrir um mánuði urðu þau hjónin svo vör við maríuerluna. „Það er aldeilis útilokað að það hafi nokkurn tímann verið mar- íuerla svona lengi hér fram eftir öllu hausti og fram að jólum,“ segir Jón. „Hins vegar koma stundum þrestir og borða hérna hjá okkur. Einn veturinn höfðum við ellefu eða tólf þresti hérna, þá komu þeir daglega til okkar og einn þeirra elti mig meira að segja einu sinni inn í eldhús.“ Brauð, rauð epli og fitu af kjötsoði Hann segir að þau Herdís gefí fuglunum ýmislegt, til dæmis brauð, rauð epli og fítu af kjöt- soði sem fellur til. „Þeir eru sérlega sólgnir í fítu fuglarnir, en hún heldur í þeim lífínu sérstaklega yfír kalda vetr- armánuðina," segir Jón. Hann segist hafa áhyggjur af því að maríuerlan eigi ekki eftir að lifa lengi nú þegar kólna fer í veðri. „Eg er búin að segja við kon- una mína að mig langi til að nappa hana hérna inn í forstof- una og vita hvort ég get ekki fengið búr og veitt henni skjól þangað til fer að vora. Kannski læt ég verða af því,“ segir Jón. Byrjað að framleiða fuglafóður í vikunni Kristinn Vagnsson, sölustjóri hjá Kötlu, segir að undirbúningur við framleiðslu fuglafóðurs hjá verksmiðjunni fyrir nokkru og að framleiðsla hefjist af fullum krafti í þessari viku. Kristinn segir að framleiðsla fulgafóðurs- ins, bæði hvað varðar magn og tímasetningu, stjórnist af veðri og snjóþunga. Hann segir að fuglafóðrið sé eingöngu búið til úr maís, sem sé malaður, en í ljós hafí komið að fuglar hafi sérstakan smekk fyrir maís. Eitt sinn hafi verið gerð til- raun til að búa til fóður úr blöndu af ýmsum korntegundum, þar á meðal maís, fuglarnir hafi hins vegar ekki verið mjög hrifn- ir af blöndunni, en týnt maisinn úr. Kristinn segir að fóður verði framleitt úr um 20 tonnum af ma- ís til að byrja með en að jafnaði sé búið til fuglafóður úr um 80 til 100 tonnum á vetri. SÉRHÆFÐ eggjavinnsla hefur verið sett upp í Vogum af Nes- búinu á Vatnsleysuströnd. Þar verða framleiddar gerilsneyddar eggjaafurðir fyrir matvælavinnslu, úr þremur til fjórum milljónum eggja á ári í upphafi. Nesbúið er stærsta eggjabú landsins með yfir 60 þúsund hænur í varpi. Eigendur þess hafa unnið að því í ár að koma upp eggja- vinnslu. „Það hefur verið offram- boð á markaðnum og egg verið flutt út til Færeyja. Þegar við keyptum Nesbúið, vorið 1999, komum við að stöðnuðum markaði. Eggjaframleiðendur höfðu lítið gert til að þróa nýjar afurðir og gera eggin að meira aðlaðandi vöru á markaðnum eins og mikið hefur verið unnið að í nágrannalöndun- um,“ sagði Kristinn Gylfi Jónsson í Brautarholti, einn af eigendum Nesbúsins, þegar hann var spurð- ur um ástæður þess að fyrirtækið setti upp eggjavinnsluna. Kristinn Gylfi sagði að erlendis færi sífellt stærri hluti eggjaframleiðslunnar til vinnslu og taldi að slík þróun myndi verða einnig hér. „Við sáum þarna tækifæri til að selja meira af eggjum og að styrkja stöðu eggjanna á matvæla- markaðnum," sagði hann. Aukið öryggi í matvælavinnslu Nesbúið er með útungunarstöð í Vogum. Húsnæði hennar var tekið undir eggjavinnsluna en byggt nýtt hús yfir útungunina. í vinnsl- unni hafa nú verið sett upp tæki frá Sanovo í Danmörku. Tækin brjóta eggin og skilja að eggja- rauður og eggjahvítu og geril- sneyða afurðirnar. Unnt er að framleiða fljótandi egg, eggjarauð- ur sérstaklega og eggjahvítu. Þá er mögulegt að blanda aukaefnum í þessar afurðir, eins og sykri og salti, eftir óskum kaupendanna. Af- urðirnar eru seldar á brúsum og hentugum stórumbúðum fyrir mat- vælaiðnaðinn. I húsnæðinu eru einnig tæki sem harðsjóða egg og brjóta af þeim skurnina. Soðnu eggin eru ekki sist ætluð salatgerðum, samloku- gerðum og veitingahúsum. Björn Jónsson, framkvæmda- stjóri Nesbúsins, sagði að vaxandi markaður væri fyrir eggjaafurðir í matvælavinnslu. Nefndi sem dæmi að framleiðsla á mæjonesi og margs konar sósum færi vaxandi. I alla slíka framleiðslu væri gerð krafa um gerilsneyddar eggjaaf- urðir. Til þessa hefðu fyrirtækin flutt inn eggjahvítuduft og ger- ilsneyddar eggjarauður. Þá hefðu bændur verið að selja fljótandi egg, ógerilsneydd, til bakaríanna. „Við teljum eðlilegt að bjóða upp á þessa vöru til þess að mæta sívax- andi kröfum um öryggi í matvæla- vinnslu,“ sagði Björn Jónsson Hrærð egg Nú eru flutt til landsins 100-200 tonn af eggjarauðum og eggja- hvítudufti á ári og er Björn bjart- sýnn á að vinnslan nái smám sam- an markaði fyrir 200 tonn af fljótandi eggjavöru, auk soðnu eggjanna. Það þýðir að unnið verði úr þremur til fjórum milljónum eggja sem annars hefði þurft að flytja inn frá útlöndum. Vinnslan getur annað miklu meiru, eða um 500 tonnum á ári. Þrír til fjórir starfsmenn verða við eggjavinnsl- una í upphafi en framleiðslustjóri hennar er Valdimar Antonsson mjólkurtæknifræðingur og er hann jafnframt gæðastjóri búsins. Eggjavinnslan hóf nýlega starf- semi en hafði áður verið með til- raunavinnslu í tvo mánuði. Björn sagði að viðtökur á markaðnum hefðu verið góðar til þessa en sagði að það tæki tíma að vinna upp góð .viðskiptasambönd. Nefndi hann sem dæmi að bakaríin hefðu sýnt framtaki þeirra áhuga og nokkur væru þegar komin í viðskipti. „Með vinnslunni getum við líka boðið viðskiptavinum okkar heild- arþjónustu, selt þeim heil egg og allar þær eggjavörur sem þeir þurfa á að halda. Einn veitinga- maður spurðist til dæmis fyrir um það hvort hann gæti ekki fengið hrærð egg á brúsa fyrir morg- unverðarborðið og ég vonast til að við getum boðið honum upp á þá þjónustu," sagði Björn. Kristinn Gylfi sagði að það kæmi í ljós á næstu mánuðum og árum hvernig þeim gengi að komast inn á markaðinn. Eggjavörurnar eru fluttar til landsins án tolla og á lágu verði enda hefur þessi vinnsla ekki verið stunduð hér. Kristinn Gylfi tók það fram að Nesbúið hefði ekki gert kröfu um upptöku tolla á þessar afurðir. „Við teljum hins vegar ekki óeðlilegt að vinnsla úr eggjum sitji við sama borð og önnur úrvinnsla úr landbúnaðar- afurðum hér á landi,“ sagði hann. Ásgeir Valdimarsson, byggingameistari Andakots, við nýja húsið. Ungur byggingameistari afhenti öndunum hús Blönduósbær og Engihlíðarhreppur Kosið um sameiningu sveitarfélag- anna 7. apríl SVEITARSTJÓRNIR Blönduós- bæjar og Engihlíðarhrepps hafa samþykkt að almenn kosning fari fram um sameiningu sveitarfélag- anna 7. aprfl á næsta ári. Til grundvallar þessari samþykkt liggja tillögur og skýrsla samstarfs- nefndar um sameiningu og hafa sveitarstjórnimar samþykkt að fela nefndinni undirbúning að kynningu tillagnanna gagnvart íbúum og fram- kvæmd kosninganna. íbúar Blönduósbæjar og Engihlíð- arhrepps voru 997 hinn 1. desember 1999. Verði sameiningin samþykkt mun hún taka gildi við sveitarstjórn- arkosningar árið 2002. Selfossi - Ásgeir Valdimarsson fjögurra ára byggingameistari af- henti öndunum á andatjörninni við gististaðinn Gesthús á Selfossi nýtt hús á þriðjudaginn. Nýja húsið ber nafnið Andakot. Ásgeir, sem er skráður bygg- ingameistari hússins, hafði tvo menn í vinnu við smíðina, föður sinn Valdimar og afa sinn Árna Valdimarsson. Ásgeir er mikill aðdáandi andanna og kemur oft að tjörninni til að gefa þeim. Honum fannst vanta húsaskjól fyrir endurnar og nú er það kom- ið. _ Á vígsludaginn var kveikt á ljósaseriu sem prýðir húsið og félagar Ásgeirs á leikskóladeild- inni Álfasteini komu í heimsókn. Húsbændur í Gesthúsum buðu síðan öllum gestunum í kakó og kökur að lokinni formlegri athöfn og ávörpum við afhendingu húss- ins. Nýja húsið er staðarprýði og einkenni eins og endurnar eru á umráðasvæði Gesthúsa. . . Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Ásgeir og félagar hans úr Álfasteini gefa öndunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.