Morgunblaðið - 21.12.2000, Side 22

Morgunblaðið - 21.12.2000, Side 22
22 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR Verðkönnun á skötu í fískbúðum á höfuðborgarsvæðinu Verðið svip- að og í fyrra Skatan virðist eiga upp á pallborðið hjá mörgum á Þorláksmessu og þá virðast stórar skötuveislur vera algengar. Verð á skötu er svipað og í fyrra en al- gengt verð á henni er 890 kr/kg. Algengt verð á tindabikkju er í kringum 600 kr/kg. Morgunblaðið/Ami Sæberg Ilmur Þorláksmessuskötunnar hringir jólin inn á mörgum heimilum. Hvað kostar Þorláksmessuskatan? Söltuð og kæst skata kr/kg Kæst tinda- bikkja kr/kg Fiskbúð Einars Fiskbúð Hafliða Fiskbúðin Arnarbakka Fiskbúðin Freyjugötu Fiskbúðin Hófgerði Fiskbúðin Reykjavíkurvegi Fiskbúðin Dunhaga Fiskbúðin Sundlaugavégi Fiskbúðin Árbjörg ehf Fiskbúðin Hafberg ehf Fiskbúðin Hafrún Fiskbúðin Nethyl Fiskbúðin okkar Fiskbúðin Stjörnufiskur Fiskbúðin Norðurbæ Fiskbúðin Vör 6/398 995/850 3 890 780 a 890/11504 ekki tiL 99/890° 1. ) 790 krónur = smærn' bitar, endar 2. ) 1.098 krónur = stórskata, 398 krónur = smáskata. 3. ) 995 krónur = stórskata, 850 krónur = vestfirsk skata. 4. ) 1150 krónur = sérvaldir stórir, þykkir, vestfirskir skötubitar 5. ) Hámark tvö kíló á mann kosta 99 krónur kílóið, en hvert kíló umfram það kostar 890 krónur.____________________________________________________________ TIL eru þeir sem finnst skötu- iimur ómissandi á Þorláksmessu, aðrir kjósa helst að sniðganga lyktina og enn aðrir tengja skötu ekki við Þorláksmessu heldur borða hana miklu oftar. Talmenn fiskbúðanna sextán sem haft var samband við á höf- uðborgarsvæðinu voru allir sam- mála um að verð á skötu væri svipað í ár og í fyrra. Skatan virðist höfða til allra aldurshópa og aukning viðist ætia að verða á sölu hennar í ár. „Við seljum skötuna á sama verði og í fyrra en tindabikkjan hefur hækkað örlítið," segir Ein- ar Steindórsson, fisksaii í Fisk- búðinni á Freyjugötu, og bætir við að söltuð og kæst skata kosti 890 kr/kg og tindabikkjan 690 kr/kg. Aðspurður um ráð gegn skötu- lyktinni segir Einar að sér fínn- ist iyktin góð og hann hafi engan hug á að eyða henni. „Það er aldrei neinn að amast við skötu- lyktinni á heimili mfnu þegar skata er elduð. Við eldum sköt- una ekki eingöngu á Þorláks- messu heldur oft á ári enda er ég alinn upp við það. Lyktin er ekk- ert tiltökumál." Hvað varðar matreiðsiu sköt- unnar segist Einar einfaldlega setja hana í pott, sjóða hana í kringum 15 mínútur og borða með henni kartöflur og ein- hveija feiti. Nýjung í vörn gegn skötulyktinni Pálmi Karlsson, fram- kvæmdastjóri Fiskbúðarinnar okkar, tekur í sama streng og Einar þegar hann er spurður hvort verðhækkun hafí orðið á skötunni frá því í fyrra. „Hér er ekki um neina teljandi hækkun að ræða en þess má þó geta að skatan hefur aðeins hækkað í innkaupum," segir Páimi og bætir við að hann seiji bæði stórskötu og vestfírska skötu. „Þegar viðskiptavinir leita ráða til að losna við skötulykt- ina hef ég gjarnan sagt að það sé gott að væta viskustykki í ediki og setja yfír pottinn með skötunni. Þá er einnig hægt að skera í sundur tvo iauka og setja hjá skötunni en þeir breyta bragðinu ekkert. Þá er- um við með nýjung í ár í vörn gegn skötulyktinni og það eru dósir sem innihalda umhverf- isvæn og lyktareyðandi efni. Margir grípa eina dós með sér þegar þeir kaupa skötuna." Að sögn Pálma er það ekki einn ákveðinn aldurshópur sem kaupir skötuna heldur virðist hún höfða til ailra aldurshópa. N útímauppskrift fyrir unga fólkið Verðið er það sama milli ára á skötunni hjá Fiskbúð Hafiiða eða 790 kr/kg. „Við reynum að halda efnahagsþróuninni í góðu lagi,“ segir Heigi Helgason, einn eig- andi Fiskbúðarinnar Hafliða. Að sögn Helga er afbragðsráð að losna við skötulyktina með því að sjóða hangikjötið á eftir. Þá mælir hann einnig með því að fólk hafí gluggana vel opna á meðan á suðu skötunnar stendur. Nýjar ieiðir eru að ryðja sér til rúms við matreiðslu skötunnar segir hann en hann notast þó að- allega við tvær uppskriftir sjálf- ur. „Ég ólst upp við skötuna sem barn og þykir hún góð. Gamla hefðbundna fjölskylduupp- skriftin inniheldur vel kæsta skötu, vestfirskan hnoðmör og kartöflur. Spariútgáfan eða öllu heldur nútímaútgáfan er skata soðin og hreinsuð frá brjóskinu. Skatan er þá sett í hrærivél ásamt mjölmiklum skrælnuðum kartöflum. Þá hef ég tilbúið brætt smjör sem ég hellti yfír þegar vélin er að störfum og krydda síðan með svörtum pipar og hvítlauk. Að lokum set ég síð- an steinselju yfír og þá er komin afbragðs skötustappa sem gott er til dæmis að setja á rúgbrauð. Þessi uppskrift er meira fyrir ungu kynslóðina og hver veit nema í framtíðinni að ég fari að selja hana fulltilbúna í búðinni enda höfum við orðið vör við aukinn áhuga ungs fóiks á þess- um þjóðarsið." Ódýrasta tindabikkjan og dýrasta skatan „Við erum að bjóða kæsta tindabikkju frá 99 kr/kg, hefð- bundna kæsta og salta skötu á 890 kr/kg og loks erum við með eidrauða þykka og stóra vest- fírska skötubita og þeir kostar 1150 kr/kg,“ segir Kristján Berg, eigandi Fiskbúðarinnar Vör. Að sögn Kristjáns er verðið á skötunni svipað og í fyrra nema að kæsta tindabikkjan er mun ódýrari. „Ég átti upphaflega tvö tonn af tindabikkjunni og það er langt komið. Ég ákvað að að setja ákveðna takmörkun á það hvað hver og einn gæti verslað, eða hámark tvö kg, tii þess að fyr- irbyggja að stór fyrirtæki kæmu og kláruðu lagerinn hjá mér,“ segir Kristján og bætir við að tvö kfló dugi í matinn fyrir fímm til sex manns. „Stærsti viðskiptamannahóp- urinn er frá 30 ára og upp úr og þá er farið að aukast að fólk haldi stórar skötuveislur og sé að kaupa mikið magn. Mest sem ég hef afgreitt í einu eru 35 kg í einni pöntun.“ Breytingar í Kringlunni Inngangur færður og rúllustiga lokað FYRIRHUGAÐ er að færa inngang og taka niður einn rúllustiga í Kringlunni að sögn Einars Halldórs- sonar, framkvæmdastjóra rekstarfé- lags Kringlunnar, en markmiðið er að jafna flæði fólks um húsið. Eftir breytingamar verður ein- ungis hægt að fara milli hæða í sitt- hvorum enda hússins. Aðspurður segir Einar þó ekki verið að gera við- skiptavinum erfiðara um vik með þessu, því skrefin milli stigans sem fjarlægður verður og stigans í suður- enda hússins, sem taka mun við allri umferð, eru að hans sögn ekki svo mörg. „Núverandi inngangur við apótek- ið á jarðhæð er ekki á mjög hent- ugum stað,“ segir hann, „en eftir stækkun hússins var hann fyrir miðju hússins fremur en í öðrum enda þess sem þykir gagnast betur.“ Nýr inngangur verður þess í stað milli verslunarinnar Byggt og búið og Tekk vöruhúss. Rætt hefur verið um að færa sæl- gætisbúðina sem nú er á jarðhæð hússins í það lausa pláss sem mynd- ast þar sem stiginn er nú og uppi hafa verið hugmyndir um að þar fari einnig fram veitingasala. Auk þessa verður á nýju ári unnið við að bæta lýsingu á fyrstu hæð í norðurhúsi Kringlunnar og sömu- leiðis verður lýsing á bílastæðum bætt. Nýjólakorta- þjónusta NETVERSLUNIN Senter.is býður fyrir jólin upp á nýja jólakortaþjónustu. Netverslun- inni er sendur tölvupóstur með mynd í jólakortið, texta og heimilisföngum þeirra sem eiga að fá kort. í fréttatilkynningu segir að vinnsla netverslunar- innar fari í gang um leið og við- komandi hafi staðfest pönt- unina og síðan líða tveir til þrír virkir dagar þar til kortið er komið á áfangastað. Verð er frá 150 til 190 krónur á kort en fyr- ir tíu kort eða fleiri er veittur magnafsláttur. Þá býður net- verslunin einnig upp á þá þjón- ustu eingöngu að prenta kortið. Hluti af söluvirði jólakort- anna rennur til Umhyggju, félags til stuðnings langveikum bama.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.