Morgunblaðið - 21.12.2000, Qupperneq 26
26 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRVERINU
Nýjar eftirlitsreglur ESB með fískimjöli
Morgunblaðið/Kristján
Hertar reglur ESB um meðferð fiskimjöls munu ekki breyta miklu í starfsemi íslenskra fiskimjölsverksmiðja.
Ekki mikil áhrif á
fískimjölsiðnaðiim
HERTAR eftirlitsreglur með fiski-
mjöli sem samþykktar voru á fundi
dýraheilbrigðisnefndar Evrópusam-
bandsins í gær hafa ekki mikil áhrif
á íslenskan fiskimjölsiðnan. Regl-
urnar gætu hins vegar gert fóður-
verksmiðjum erftitt fyrir.
Jón Reynir Magnússon, formaður
Samtaka íslenski'a fiskmjölsfram-
leiðenda, segir að sér sýnist að nið-
urstaða dýraheilbrigðisnefndarinn-
ar muni ekki hafa áhrif á
fiskimjölsiðnaðinn hérlendis. „Far-
artækin sem notuð ei-u mega flytja
annað en mjöl en hert á reglum um
þrif og eftirlit. Þó má ekki flytja
annað fóður í farartækinu á sama
tíma og fiskimjöl. Það breytir í
sjálfu sér engu fyrir okkur. Héðan
er fiskimjöl ilutt út laust í hefð-
bundnum flutningaskipum og þau
flytja þá gjarnan annars konar fóð-
ur til baka til landsins."
I upphaflegum tillögum fram-
kvæmdastjórnar ESB fólst meðal
annars að farkostinn sem mjölið er
flutt með mætti ekki nota til annars-
konar flutninga. Það hefði þýtt að
farskipin yrðu ekki notuð í annað en
flutninga á fiskimjöli. Jón Reynir
segir að hefði sú tillaga náð fram að
ganga hefði orðið allt of dýrt að
flytja mjölið á markaði erlendis og í
raun þýtt dauðadóm yfir íslenskum
fiskimjölsiðnaði. Hins vegar hafi
verið tekið tillit til athugasemda og
sér sýnist að hertar eftirlitsreglur
muni ekki hafa mikil áhrif hér á
landi.
Gerir fóðurverksmiðjum
erfitt fyrir
I upphaflegum tillögum fram-
kvæmdastjórnar ESB kvað á um að
fóðurblöndunarverksmiðjur yi-ðu að
sérhæfa sig í fóðri sem væri ein-
göngu fyrir önnur dýr en jórturdýr.
Við þetta voru gerðar athugasemdir
og lagt til að verksmiðjur mættu
framleiða hvort tveggja ef fram-
leiðsluferillinn væri aðskilinn.
Framkvæmdastjórnin féllst ekki á
það og í breyttum tillögum var lagt
til að verksmiðjur mættu framleiða
fóður fyiir allar skepnur að því til-
skildu að framleiðsla fyrir jórturdýr
yrði aðskilin frá annarri framleiðslu
og var það samþykkt.
Fóðurblandan hf. kaupir lang-
stærstan hluta þess fiskimjöls sem
framleitt er hér á landi og ekki fer
til útflutnings. Bjarni Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Fóðurblöndunnar hf.,
segir ekki ljóst hvernig reglur
Evrópusambandsins muni koma til
framkvæmda hér á landi. Muni
þessar reglur ganga yfir íslenskar
fóðurverksmiðjui- komi þær hins
vegar til með að hafa veruleg áhrif
og gera þeim mjög erfitt fyi-ir. „Við
framleiðum flestar tegundir fóðurs í
sömu vélum, rétt eins og gert er er-
lendis. Ef við þurfum að aðskilja
fóðurframleiðslu fyinr jórturdýr frá
fóðurframleiðslu úr fiskimjöli, mun-
um við að öllum líkindum hætta að
nota fiskimjöl í fóður fyrir aðrar bú-
fjártegundir, svo sem kjúklinga og
svín. Heimamai'kaðurinn er ekki
það stór að það borgi sig að setja
upp aðra fóðurverksmiðju eingöngu
til fóðurframleiðslu úr fiskimjöli. Eg
sé fyrir mér að þetta verði einnig
gert í fóðurverksmiðjum erlendis og
menn muni snúa sér að annars kon-
ar próteingjafa, svo sem sojamjöli,“
segir Bjarni.
Festi og Nót sameinast
UNDIRRITUÐ hefur verið yfirlýs-
ing um sameiningu útgerðarfélag-
anna Festar hf. í Grindavík og Nótar
ehf. í Keílavík. Fyrh’tækið verður
sameinað um áramótin undir nafni
Festar og hefúr það yfir miklum upp-
sjávarveiðiheimildum að ráða.
Festi hf. gerir úr nótaskipið Þórs-
hamar GK en Nót efh. gerir út nóta-
skipið Öm KE. Ennfremur á Nót ehf.
nóta- og togveiðiskipið Guðrúnu
Gísladóttur KE, sem nú er I smíðum í
Kína, en skipið verður búið fullkomn-
um búnaði tU frystingar og ílökunar á
uppsjávarfiski og verður væntanlega
afhent í mars nk.
Heildareignir félaganna eru um 4,6
milljarðar króna. Sameinað félag mun
ráða yfir 6,15% loðnukvótans og 3,5
sUdarkvótum, auk þess sem það hefur
tvo kvóta I norsk-íslensku síldinni eða
u.þ.b. 6.000 tonn. Þá á dótturfélag
Festar, Gautavík hf„ eignarhlut í
fiskimjölsverksmiðju á Djúpavogi.
Öm Erlingsson, útgerðarmaður og
eigandi Nótai' efh., segir samein-
inguna fyrsta skrefið í þá átt að opna
fyrirtækið fyrir íleiri fjái'festum og
hugsanlega íleiri sameiningum.
„Mai'kmiðið með sameiningunni er
fyi-st og fremst að renna styrkari
stoðum undir rekstur félaganna. í
rekstrarumhverfi sjávarútvegsins í
dag em stærri einingar sterkari og
við emm því opnir fyrir því að stækka
félagið enn frekar.“
Ægir Páll til Isfélagsins
STJÓRN ísfélags Vestmannaeyja
hf. hefur ráðið Ægi Pál Friðberts-
son viðskiptafræðing sem fram-
kvæmdastjóra félagsins og tekur
hann við starfinu í janúar nk. Ægir
Páll, sem útskrifaðist sem viðskipta-
fræðingur frá Háskóla Islands árið
1991, starfaði hjá Frosta hf. í Súða-
vík á námsámm sínum, m.a. sem
skrifstofustjóri, og frá 1990 til 1991
var hann stjórnarformaður Spari-
sjóðs Súðavíkur. Ægir Páll starfaði
hjá íslandsbanka hf. frá 1992-2000,
m.a. sem viðskiptastjóri sjávarút-
vegsfyrirtækja í fyrirtækjaþjónustu
bankans, en undanfarna mánuði
hefur hann verið fjármálastjóri
Samvinnuferða-Landsýnar hf. Ægir
Páll er 34 ára, kvæntur Huldu Pét-
ursdóttur og eiga þau fjþgur börn.
„Starfið leggst vel í mig, ísfélagið er
rótgróið fyrirtæki og vel rekið og ég
tel að það eigi mikla möguleika á
komandi áram. Eg er sannfærður
um að hægt er að koma fyrirtækinu
aftur á réttan kjöl,“ sagði Ægir Páll
í samtali við Morgunblaðið.
Frá andláti Sigurðar Einarsson-
ar, aðaleiganda og forstjóra ís-
félagsins, hefur Jóhann Pétur And-
ersen gegnt starfi fram-
kvæmdastjóra tímabundið. Hann
mun hverfa aftur til fyrri starfa sem
yfirmaður uppsjávarsviðs, að því er
segir í frétt Frétta í Vestmanna-
eyjum.