Morgunblaðið - 21.12.2000, Síða 30

Morgunblaðið - 21.12.2000, Síða 30
30 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT •• Qryggisráð SÞ reynir að knýja Afgana til að framselja Bin Laden Talebanar for- dæma nýjar íslamabad, Samcinuðu þjóOunum. Reulers, AFP, AP. LEIÐTOGAR Taleban-hreyfingar- innar í Afganistan fordæmdu í gær ákvörðun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um að grípa til nýrra refsiaðgerða gegn henni fallist hún ekki á að framselja sádi-arabíska auðkýfinginn Osama bin Laden sem hefur verið sakaður um að hafa skipulagt mannskæð hermd- arverk. Talebanar, sem aðhyllast íslamska strangtrúarstefnu, lýstu öryggisráðinu sem „óvini íslams“ og sögðu að ekki kæmi til greina að framselja bin Laden. UtanríkisráðheiTa Taleban- stjórnarinnar, Maulvi Wakeel Ahmed Muttawakil, sagði að hún myndi ekki verða við kröfum ör- yggisráðsins og hygðist einnig neita að hefja friðarviðræður á vegum Sameinuðu þjóðanna. Oryggisráðið samþykkti í fyrra- kvöld tillögu Bandaríkjamanna og Rússa um vopnasölubann á Taleb- an-hreyfinguna og nokkrar aðrar refsiaðgerðir. Flugbann, sem sam- þykkt var fyrir ári, verður hert og og skrifstofum afganska flugfélags- ins Ariana Airlines erlendis verður lokað. Allar eignir Taleban-hreyf- ingarinnar erlendis verða frystar og bannað verður að selja Afgön- um efni sem notuð hafa verið til að vinna heróín, en talið er að heróín- framleiðsla sé mikil tekjulind fyrir talebana. Annan lagðist gegn refsiaðgerðunum Refsiaðgerðirnar eiga að taka gildi eftir mánuð samþykki taleb- anar ekki að framselja bin Laden og loka þjálfunarbúðum „íslamskra öfgamanna" í Afganistan. Aðgerð- irnar eiga að gilda í eitt ár og ör- yggisráðið þarf að samþykkja þær aftur til að framlengja þær. Talið er að mjög erfitt verði að fram- fylgja samþykkt öryggisráðsins. Þrettán af þeim fimmtán ríkjum sem eiga sæti í öryggisráðinu sam- þykktu refsiaðgerðirnar. Kína og Malasía sátu hjá. Fyrir atkvæðagreiðsluna höfðu Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, og fulltrúar hjálparstofnana ráðið öryggis- ráðinu frá því að samþykkja refsi- aðgerðirnar og sagt að þær myndu torvelda hjálparstarf og friðarum- leitanir í Afganistan. Utanríkisráðherra Taleban- stjórnarinnar sagði að hún myndi loka skrifstofum sendinefndar Sameinuðu þjóðanna í Afganistan og neita að taka þátt í friðarvið- ræðum við andstæðinga talebana í norðurhluta landsins. Hann kvaðst AP Afganar sem flúðu nýlega til Pakistans bíða eftir matarúthlutun í nýjum flóttamannabúðum í vesturhluta landsins. Pakistanar óttast að refsiað- gerðir Sameinuðu þjóðanna gegn Talebönum leiði til mikils straums flóttamanna yfir landamærin. einnig ætla að skora á múslíma úti um allan heim að kaupa ekki bandarískar vörur. Talebanar náðu afgönsku höfuð- borginni, Kabúl, á sitt vald fyrir fjórum árum og hafa náð yfirráð- um yfir 90% Afganistans. And- stæðingar þeirra hafa myndað bandalag, undir forystu Burhan- uddins Rabbanis, fyrrverandi for- seta, til að verja landræmu í norð- urhluta landsins sem talebanar hafa ekki getað lagt undir sig. Milljónir manna sagðar í hættu Vopnasölubannið á ekki að ná til andstæðinga talebana þótt mann- réttindahreyfingar segi að þeir hafi gerst sekir um grimmdarverk eins og talebanar. Hátt í milljón Afgana er háð að- stoð hjálparstofnana vegna stríðs- ins sem geisað hefur í tvo áratugi og mestu þurrka í landinu í 30 ár. Stjórnvöld í Pakistan, einu af þremur ríkjum sem hafa viður- kennt stjórn talebana, gagnrýndu refsiaðgerðirnar og sögðu þær geta orðið til þess að milljónir manna flýðu land eða yrðu hungurmorða. TVær milljónir Afgana hafa þegar flúið til Pakistans. Allir erlendir starfsmenn hjálp- arstofnana Sameinuðu þjóðanna í Afganistan voru kallaðir heim vegna ótta við að ráðist yrði á þá til að hefna refsiaðgerðanna. Inn- lendir starfsmenn stofnananna eiga að halda hjálparstarfinu áfram. „Hvers vegna gera Sameinuðu þjóðirnar okkur þetta?“ spurði 45 Nýársgleðí Hdtel Loftleiða 1. janúar 2001 HOTEL LOFTLEIÐA Gestamatreiðslumeistari nýársgleðinnar, Ragnar j Wessman er fyrtr löngu kunnur | hér á landi sem erlendis fyrir störkostlegan feril á sviði matargerðarlistarinnar. Matseðill kvöldsins er settur saman af alkunnri snilld Ragnars. Menu de l'an 2001 Nýársmatseðill 2001 Champagne et amuse-gueule Kampavín og smágóðgæti Foie gras et confit d'agneau en terrine sur salade de celéri-rave Gæsalifrar- og lambasultutemna á seljurótarsalati Veislustjóri verður Steingrimur Sigurgeirsson fréttastjóri á Morgunblaðinu og vínspekingur sem gaf nýverið út bókina Heimur vínsins. Steingrfmur valdi vínseðil kvöldsins. surglace d'araignée de mer Humar með kórianderkrydduðu eplamauki á krabbagljáa Roulade de canard et son magret croustillant fenouif braisé et glace de canard aux cassis Andarúlla og stökkstelkt andabringa með gufusteiktri fennikku, sólberja- og andasósu. Puráe de poires givráe et sorbet au citron vert et basilic Frosið perumauk með Ifmónu- og basllíkukrapís Steintjrímur Sigurgeirsson Kaffi og konfektkökur Souper de minuit Góður matur glæsileiki Verð kr. 12.500- g a m a n JT VEITINGAR HÖTEL LOFTLEIÐUM Fordrykkur frá kl. 19.00 Veislustjóri: Steingrímur Sigurgeirsson, rithöfundur Söngskemmtun: Jóhann Valdimar Friógeirsson meðleikari Ölafur Vignir Albertsson Kvöldverðartónlist: Hilmar Sverrisson Danshljómsveit: P, ásamt Þuríði Sigurðardóttur Gistitilboð Gisting í 2ja manna herbergi kr. 6.000.- -Tekifl er á móti pöntunum í símum 562 7575 og 5050 925, fax 562 7573 Yfirmatreiflsliimeistari: Veitingastjóri: Reynir Magnússon Traustl Vígl Yfiitramreiflslumeistari: Blómaskreytingar: Gunnhildur Gunnarsdóttir Kristín I ára Afgani, einn af hundruð Kabúl- búa sem biðu í kaldri og dimmri strætisvagnastöð í afgönsku höf- uðborginni. „Við eigum við nógu mörg vandamál að stríða nú þegar. Ég var kennari en nú á ég ekkert. Ég get ekki gefið börnunum mín- um að borða. Hvers vegna haldið þið að allt þetta fólk bíði hérna í myrkrinu? Börnin skjálfa af kulda. Það er vegna þess að landið hefur verið eyðilagt og það er Sameinuðu þjóðunum að kenna. Ég skil þetta ekki.“ Lýst sem atlögu að íslamska stjórnkerfinu Bandaríkjastjórn hefur krafist framsals bin Ladens og sakað hann um að hafa staðið fyrir sprengju- árásum á bandarísku sendiráðin í Kenýa og Tansaníu árið 1998. Um 225 manns biðu bana í árásunum og 4.000 særðust. Talabanar segja að engar sann- anir séu fyrir því að bin Laden sé viðriðinn tilræðin. Öryggisráðið hafi notað ásakanirnar á hendur honum sem tylliástæðu til að reyna að kollvarpa íslamska stjórnkerfinu í Afganistan. „Þetta mál snýst um andúð á ísl- amska kerfinu okkar,“ sagði Qudratullah Jamal, upplýsinga- málaráðherra Taleban-stjórnarinn- ar. „Við getum ekki breytt kerfi okkar til að þóknast Bandaríkjun- um. Við getum ekki hegðað okkur eins og Bandaríkjamenn vilja.“ Margir af liðsmönnum Taleban- hreyfingarinnai’ voru áður í skæru- liðahreyfingum sem nutu stuðnings Bandaríkjanna og Pakistans í níu ára stríði þeirra gegn sovéska hernum eftir að hann réðst inn í Afganistan um áramótin 1979-80. Rússar beittu sér fyrir refsiaðgerð- unum þar sem þeir telja að taleb- anar hafi staðið á bak við uppreisn Tsjetsjena og „öfgamanna“ í fyrr- verandi sovétlýðveldum í Mið-Asíu. Rannsókn á farsímanotkun Engin tengsl við heila- krabba Washington. AFP. EKKERT bendir til þess að samband sé á milli nokkurra ára farsímanotkunar og krabbameins í heila, sam- kvæmt rannsókn bandarískra vísindamanna. Rannsóknin var gerð á árun- um 1994-98 og beindist að 890 körlum og konum á aldrinum 18-80 ára. 469 þeirra voru með heilakrabbamein. Rannsóknin byggðist á við- tölum við þátttakenduma, sem voru spurðir hvort þeir notuðu farsíma reglulega, hversu mörg ár þeir hefðu notað þá, hversu lengi þeir töluðu í farsíma í hverjum mánuði, hvaða gerð síma þeir ættu og hversu hár farsímareikningur þeirra væri að meðaltali. 700 þátttakend- anna voru einnig spurðir hvora höndina þeir notuðu til þess að halda á símanum. Krabbameinssjúklingarnir notuðu farsíma í 2,5 klukku- stundir á mánuði að jafnaði en viðmiðunarhópurinn í 2,2 klukkustundir. Þeir höfðu not- að farsíma í 2,8 ár að meðaltali og viðmiðunarhópurinn í 2,7 ár. Skýrt er frá rannsókninni í nýjasta hefti The Journal of the American Medical Association. Vísindamennirnir segja niður- stöðu hennar þá að ekkert samband sé á milli heilakrabba- meins og hóflegrar notkunar farsíma. Þeir bæta þó við að frekari rannsókna sé þörf til þess að meta áhrif lagtímanotk- unar farsíma, einkum með tilliti til heilaæxla sem vaxa hægt.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.