Morgunblaðið - 21.12.2000, Síða 32
32 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Nýr forseti
í Mexíkó
Reuters
Vicente Fox sver embættiseið.
eftir Jeffrey Sachs
© Project Syndicate.
ÞEGAR Vicente Fox tók við embætti
forseta í Mexíkó fyrsta desember
íognuðu Mexíkóar ekki aðeins leið-
togaskiptum. I fyrsta sinn í sögu
landsins er Mexíkó nærri því að ná
Qórum mikilvægum áföngum öllum í
senn: Raunverulegu lýðræði, efna-
hagslegri velmegun, félagslegri ein-
drægni og góðum tengslum við
Bandaríkin. Það er augljóst að
Mexíkóar eru í ham, og væntingar
eru miklar um að landinu takist að
losna úr viðjum fortíðardrauganna -
óstöðugleika, spillingar og gífurlegr-
ar stéttaskiptingar - og verða at-
kvæðamikið samfélag er byggist á
sterkum, mismunandi menningar-
hefðum, félagslegri einingu og stækk-
andi hlutverki í heiminum.
Fáir Mexíkóar töldu víst að fyrr-
verandi stjómarflokkur, PRI-flokk-
urinn, myndi láta af völdum eftir 71
árs samfellda stjómarsetu. Engu að
síður urðu Mexíkóar vitni að friðsam-
legri valdatilfærslu á forsendum heið-
arlegrar talningar atkvæða. Þetta má
að miklu leyti þakka fráfarandi for-
seta, Emesto Zedillo, sem var síðast-
ur í langri röð forseta PRI. Zedillo
hvatti til lýðræðislegra umbóta á
kjörtímabili sínu, og þess vegna var
mögulegt að kosningar og valdaskipti
gengju friðsamlega fyrir sig.
Zedillo lætur eftir sig merkilega
sterkt efnahagslíf, og er það að mestu
að þakka Fríverslunarsamningi
Norður-Ameríku (NAFTA), sem
tengir efnahag Kanada, Mexíkós og
Bandaríkjanna. NAFTA varð að
veruleika fyrsta janúar 1994. Það var
kaldhæðnislegt að Mexíkó skyldi
sigla inn í tímabundna fjármála-
kreppu síðar það sama ár, en orsökin
var ekki fríverslunarsamningurinn
heldur skyndileg umskipti í fjár-
magnsflæði til landsins - líkt og
kreppan sem varð í Austur-Asíu
þrem árum síðar. NAFTA varð
helsta tólið sem Mexíkóar notuðu við
að komast úr kreppunni, og útflutn-
ingur til Bandan'kjanna margfaldað-
ist með þeim afleiðingum að útflutn-
ingur varð meginforsenda efnahags-
batans.
Viðskiptasamband Bandaríkjanna
og Mexíkós kann að vera mikilvæg-
asta dæmið um það í heiminum nú,
hvemig hægt er að samræma efna-
hagslífið í auðugu ríki og fátæku ríki
þannig að bæði hafi hag af. í skjóli
NAFTA hópast bandarísk fyrirtæki
suður yfir landamærin og hasla sér
völl í Mexíkó til þess að njóta góðs af
lægra launastigi og þar af leiðandi
lægri framleiðslukostnaði. A undan-
fömum ámm hefur Mexíkóum tekist
að laða til sín yfir 10 milljarða dollara
af beinum, erlendum fjárfestingum
árlega, aðallega frá bandarískum fjöl-
þjóðafyrirtækjum.
Bandarísk fyrirtæki koma með
tækniþekkingu sína og fjárfestingar-
vörur til Mexíkós og framleiða síðan
fullbúna vöru í Mexíkó, sem síðan er
flutt aftur út til Bandaríkjanna. Með
Fyrsta markmiðið er
að koma á lögum og
reglu í Mexíkó
þessum hætti hefur heildai-útflutn-
ingur frá Mexíkó vaxið úr um 40 millj-
örðum dollara 1990 í 140 milljarða, að
því er talið er, 1999. Með þessu hefur
orðið sú breyting, að Mexíkó reiðir
sig ekki alfarið á tekjur af olíu, heldur
flytur út margs konar framleiðsluvör-
ur.
Með lýðræðislegum umskiptum og
efnahagslífi sem blómstrar á forsend-
um fjárfestinga innanlands og aukn-
ingar á útflutningi til Bandaríkjanna
tekur Fox forseti við völdum þegar
horfúr eru góðar. Hann nýtur velvild-
ar flestra landsmanna, sem meta mik-
ils heiðarleika hans, greind og vilja til
að stjóma Mexíkó á opinn og fagleg-
an hátt. Fox stóð við orð sín með vali
sínu á ráðherrum. Hann hefur að
undraverðu leyti leitað til sér-
fræðinga á mörgum sviðum, val-
ið fagmenn sem þekktir em fyr-
ir heiðarleika og árangur,
fremur en stjómmálamenn sem
þyrstirí sporslur.
Sérfræðiþekking er auðvitað
einungis hluti af því sem þarf til
við góða stjóm. Þessir nýju ráð-
herrar verða að sýna fram á að
þeir geti líka náð góðum árangri
í stjómmálum - starfað saman,
tryggt sér stuðning almennings,
og hjálpað til við að virkja
ríkjandi bjartsýni fólks á nyt-
samlegan máta.
Ríkisstjórn Fox mun njóta
góðs af því að frumforsendur
hagvaxtar í Mexíkó em í meg-
inatriðum traustar, og munu
verða gmndvöllur þess að efna-
hagsleg velmegun landsins mun
að hluta til spretta af auknum
efnahagssamruna við Kanada
og Bandaiíkin. Fox mun fyrstur
manna viðurkenna að NAFTA segir
ekki alla söguna. Eftir að einn flokkur
hefur setið að völdum í Mexíkó í sjötíu
og eitt ár og fjárfesting hefur í ára-
tugi verið allt of lítil í grannþáttum
efnahagslífsins er mikið verk óunnið.
Fyrsta markmiðið er að koma á
lögum og reglu í Mexíkó. Aratuga
lögleysa hefur leitt af sér spillt rétt-
arkerfi, skort á lagalegri vemd fyrir
minnihlutahópa, gífurleg skattsvik,
skipulagða glæpastarfsemi og lög-
reglu sem fremur er litið á sem ógn
en vemd. Hluta vandans má leysa
með heiðarlegri forystu og lýðræðis-
legra kerfi. En hluti vandans kann
líka því miður að vera handan þess
sem Mexíkóar fá nokkm ráðið um.
Hin óseðjandi löngun Bandaríkja-
manna í kókaín hefur gert Mexíkó að
flutningaleið fyrir suður-ameríska
framleiðendur. Bandaríkjamenn líta
á fikniefnavandann sem sakamál og
reyna að nota aðferðir hers og lög-
reglu til að stemma stigu við innflutn-
ingi fíkniefna. Þeir hafa farið halloka í
þeirri viðureign, en ofbeldi og spilling
í Mexíkó hefui’ vaxið gífurlega því að
fíkniefnaflutningar era arðbær vinna.
Bandaríkjamenn myndu hjálpa
Mexíkó ef þeir myndu einbeita sér að
endurhæfingu fíkniefnaneytenda og
því að draga úr eftirspum, fremur en
reiða sig á hernaðarlegar lausnir.
Næsta verkefni Fox ætti að vera að
undirbúa Mexíkóa fyrir þátttöku í
hinu hnattræna þekkingarhagkerfi.
Eitt lykilatriðið í samkeppnishæfni
verður hátt, almennt menntunarstig.
Enn em framhaldsskólanemar fáir í
Mexíkó, og aðeins um 16% þeirra
landsmanna sem era á háskólaaldri
stunda háskólanám. Almennur að-
gangur bæði ríki-a og fátækra að
framhaldsskólum og mikil fjölgun há-
skólanema verður að vera markmiðið.
Mexíkó stendur ennfremur mjög
höllum fæti í samanburði við hátekju-
ríki er varðar gæði menntunar í vís-
indum og stærðfræði, og viðleitni í
vísindarannsóknum. Til dæmis veija
Mexíkóar aðeins um einum þriðja af
einu prósenti vergrar þjóðarfram-
leiðslu til rannsókna og þróunar, en
Kórea (til samanburðar) ver yfir 2%
af vergri þjóðarframleiðslu til vísinda
og þróunar.
Meðal annarra helstu markmiða
ættu að vera endurnýjun heilbrigð-
iskerfisins, umbætur á fjármála-
markaðinum og viðleitni til að draga
úr gífurlegum launamun. Ennfremm-
þarf að auka fjölbreytni í efnahagslíf-
inu til þess að það sé ekki algerlega
selt undir hagsæld í Bandaríkjunum.
En þrátt fyrir þau stóra verkefni sem
bíða era skilaboðin í grandvallarat-
riðum skýr. Með tilkomu ríkisstjóm-
ar Fox eru möguleikar Mexíkóa á að
koma á lýðræði og velsæld orðnir
betri en þeir hafa nokkurn tíma verið
í nútímasögu landsins.
Jeffrey Saclis er Galen L. Stone-
prófessor i hagfræði og fram-
kvæmdastjóri Alþjóðaþróunar-
miðstöðvarinnar við Harvard-
háskóla íBandaríkjunum.
§f|§|| |||||
^ m mth : L js »
8bJP
oroblu@sokkar.is www.sokkar.is
slcrefi framar
Jólasokkabuxurnar 2000
{ Kynning í dag frá kl. 14-18 í
Apótekinu Smáratorgi.
20% afsláttur af öllum OROBLU sokkabuxum.
Tilboð gildir einnig í Apótekinu Nýkaupi, Kringlu.
Smára
Smáratorgi I
sími 564 5600
Kringlunni
sími 568 1600
Nýkaupi
Uppstokkun í Astralíustjórn
Howard býr í hag-
inn fyrir kosningar
Canberra. AP.
JOHN Howard, forsætisráðherra
Ástralíu, hefur tilkynnt um
meiriháttar uppstokkun í ríkis-
stjórn sinni í kjölfar þess að þrír
ráðherrar létu af störfum. Miðar
uppstokkunin að því, að blása
nýju lífi í stjórnina, sem nýtur
minni stuðnings en stjórnarand-
stöðuflokkurinn, Verkamanna-
flokkurinn, í skoðanakönnunum.
Innan við ár er þar til kosningar
til alríkisþingsins fara fram.
Sagði Howard þetta vera „nýja
uppröðun fyrir nýja þúsöld. Fjöl-
skyldu- og samfelagsstarfaráð-
herrann, Jocelyn Newman, til-
kynnti fyrst um að hún væri á
förum, og skömmu síðar greindi
vamarmálaráðherrann, John
Moore, frá því að hann væri
einnig að hætta störfum. Fram-
byggjamálaráðherrann, John
Herron, er ennfremur að hætta.
Dómsmálaráðherrann, Am-
anda Vanstone, mun taka við
embætti Newmans. Ráðherra
málefna atvinnu, vinnustaða-
tengsla og smáfyrirtækja, Peter
Reith, mun taka við af Moore.
Phillip Ruddock mun bæta við
sig ráðuneyti málefna frum-
byggja, en hann gegnir nú emb-
ætti ráðherra málefna innflytj-
enda.
Horftá
sjónvarp
f^inn vióskiptavinur a dag
sem kaupir rúm í Betra Bak í
desember fær 20" Philips
sjónvarp í svefnherbergið.
drauminn, einn viðskiptavinur
okkar í desember eignast stór-
glæsilegt 46" Philips heimabíó