Morgunblaðið - 21.12.2000, Síða 33

Morgunblaðið - 21.12.2000, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000 33 ERLENT Arafat sakar Israela um að grafa undan friðarumleitunum Þrír Palestínu- menn skotnir og fjöldi særður Jcrúsalem. Reuters. YASSER Ai-afat, forseti heimastjóm- ar Palestínumanna, sakaði í gær Isra- ela um að grafa undan frumkvæði Bandaríkjamanna að fríðarumleitun- um fyrir botni Miðjarðarhafs með því að koma af stað óeirðum sem kostuðu þrjá Palestínumenn lífið, þar af var einn 14 ára. Tveir Palestínumenn féllu fyrir kúlum ísraelskra hermanna á Gasasvæðinu þegar til harkalegs skotbardaga kom milli palestínskra byssumanna og ísraelsku her- mannanna skammt frá egypsku landamærunum. Einnig féll 18 ára Palestínumaður í þeim átökum. Að minnsta kosti 50 aðrir særðust, fjórir alvarlega, í átökunum. Talsmað- ur hersins sagði að um 300 manna hópur Palestínumanna hefði komið til að fylgjast með skotbardaganum og vera kynni að einhverjir hefðu orðið fyrir kúlum. I öðru tilfelli sögðu palestínskir sjúkrahússtarfsmenn að ísraelskir hermenn á verði við ísraelskt land- námssvæði hefðu skotið á rútu og fellt einn Palestínumann. ísraelar neituðu að staðfesta þetta. Vænta ekki mikils „Þessi stigmögnun [ofbeldisað- gerða] er til þess ætluð að gera út um friðarumleitanimar," sagði Arafat við Reuters Palestínumenn leita skjóls, þegar sprengikúla frá ísraelskum hermönnum springur skammt frá þeim, á Gaza- svæðinu nærri egypsku landamærunum í gær. fréttamenn er hann kom heim frá Kaíró þar sem hann hafði setið fund með forseta landsins, Hosni Mub- arak. Að minnsta kosti 333, flestir Palestínumenn, hafa fallið í þessari nýjustu átakalotu, sem braust út í lok september. Ekki eru miklar væntingar vegna funda ísraelskra og palestínskra samningamanna í Bandaríkjunum, en þeir ræða hvorir í sínu lagi við banda- ríska embættismenn. „I hreinskilni sagt er ekki annað en þetta á döfinni, ég vænti ekki mikils,“ sagði Saeb Erekat, formaður samninganefndar Palestínumanna, við fréttamenn í Washington. Israelski ráðherrann Amnon Lipk- in-Shahak, sem undirbjó viðræðumar á fundum með Arafat, sagði að þótt hann efaðist um að viðræðumar leiddu til samnings teldi hann nokk- urs árangurs að vænta. ,3áðir aðilar hafa væntingar. Ann- ars hefði hvomgur mætt,“ sagði hann í útvarpsviðtali. Utanríkisráðherra Egyptalands, Amr Moussa, sagði eft- ir fund Mubaraks og Arafats, að mögulegt væri að samningar næðust innan fárra vikna. Bill Clinton með við- talsþátt? YFIRMENN NBC sjónvarpsstöðv- arinnar hafa hug á því að krækja í Bill Clinton eftir að hann lætur af embætti sem forseti í janúar. Að því er greinir frá í The Washington Post hringdi Ed Wilson, forstjóri NBC, í framleiðandann Harry Thomason fyrir um mánuði siðan í þeim erinda- gjörðum að biðja þann síðarnefnda um að koma þeirii hugmynd á fram- færi við Clinton hvort hann væri tilbúinn til að taka að sér hlutverk gestgjafa í vikulegum viðtalsþætti. Thomason er gamall vinur Clintons og Wilson og Thomason þekkjast einnig frá fornu fari. Fréttin um þennan mögulega starfsvettvang fráfarandi forseta birtist fyrst á vefriti Matt Drudge. Hatry Thomason staðfesti þegar The Washington Post hafði samband við hann í fyrradag að hringt hefði verið í þau hjónin, en eiginkona hans, Linda Bloodworth Thomason, er einnig framleiðandi. Hann sagði hins vegar að þau hefðu ekki átt neinar viðræður við forráðamenn NBC vegna málsins og sagði þau hjónin of upptekin við vinnu að nýj- um sjónvarpsþætti til að „að hafa áhyggjur af næsta starfi forsetans.“ Talsmaður Hvíta hússins, Nanda Chitre, sagði að enginn hefði haft samband við forsetann út af málinu og sagðist stórefast um að nokkuð yrði úr því. Clinton sagðist reyndar sjálfur í viðtali við CBS að hann vildi hvflast um sinn og venjast því að vera almennur borgari á nýjan leik. Fangauppreisn heldur áfram Istanbúl. Reuters. FANGAR í uppreisnarhug í Tyrk- landi beittu í gær eldvörpum í átökum við liðsmenn öryggissveita, sem reyndu að binda enda á fangaupp- reisnina, sem kostað hefur nítján manns lífið fram að þessu. Dóms- málaráðherra landsins skoraði á fangana í gær að hætta mótmælaað- gerðum sínum, sem leitt hafa til þessa ófremdarástands. I Umraniye-fangelsinu í Istanbúl sögðu liðsmenn sérsveita innanríkis- ráðuneytisins fanga hafa mætt þeim með „eldvörpum gerðum úr eldhús- gaskútum, benzínsprengjum, röra- sprengjum og eggvopnum". Lögregla mætti sízt minni mótspymu í Canak- kale-fangelsinu í Vestur-Tyrklandi, þar sem hún rauf stór göt í múra fangelsisins til að komast inn í það. Tyrkneski dómsmálaráðherrann, Hikmet Sami Turk, sagðist á blaða- mannafundi í Ankara skora á fangana í báðum fangelsum að gefast upp. Greindi Turk frá því, að tveir öryggis- lögreglumenn hefðu látizt og sextán fangar, sem flestir brenndu sig sjálfa til dauða þegar lögreglan braut sér leið inn í 20 fangelsi þar sem fangar, flestir Kúrdar, voru í hungurverkfalli, aðallega til að mótmæla áformuðum flutningi í önnur fangelsi þar sem þeir yrðu vistaðir í einangrunarklefum. 17. fanginn lézt í gær af brunasárum á sjúkrahúsi í Ankara. Yfirvöld höfðu með þessum harka- legu aðferðum í gær náð stjóm á ástandinu í öllum fangelsum landsins nema í Umraniye og Canakkale. Tals- menn stjórnvalda í Grikklandi og framkvæmdastjómar ESB lýstu í gær áhyggjum af ástandinu. Herranáttföt frá kr. 2.900 Herrasloppar frá kr. 3.500 Opið frá kl. 10-21 alla daga til 23. des. Nýbýlavegi 12, Kóp., s. 554 4433. 5 Ertu meðvitaður um gæði Sjáðu merkið /---------------------------------------------------N ROLEX Við óskum viðskiptavinum okkar £fleðile£fra jóla ÚRSMÍÐAMEISTARI LAUGAVEGUR 15 • SÍMI 511 1900 • FAX 511 1901
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.