Morgunblaðið - 21.12.2000, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 21.12.2000, Blaðsíða 34
34 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Lög um Þjó ðsöng samþykkt EFRI deild rússneska þingsins, Sambandsráðið, samþykkti í gær nærri einróma ný lög um þjóðsöng og önnur ríkistákn Rússlands, sem fyrir skemmstu voru afgreidd frá neðri deild þingsins, Dúmunni. 144 fulltrú- ar í Sambandsráðinu, þar sem héraðsleiðtogar rússneska sam- bandsrDdsins eiga sæti, studdu hina nýju löggjöf en einn greiddi atkvæði á móti. Tveir sátu hjá. Að því búnu stóðu þeir upp og margir lögðu hönd á brjóst sér er þjóðsöngurinn - sá sami og Sovétríkin tóku upp ár- ið 1943 - glumdi um þingsalinn. Semja á nýjan texta við þennan þjóðsöng Stalínstímans og kem- ur hann í staðinn fyrir bráða- birgðaþjóðsöng. Tilræði í Moskvu Josef Ordzonikidze, aðstoðar- borgarstjóri Moskvu, var veitt banatilræði í fyrradag. Fór Júrí Lúzhkov, borgarstjóri Moskvu, í gær fram á að eiga viðræður við Vladimír Pútín forseta og Mikhaíl Kajsanov forsætisráð- herra vegna málsins. Sagði Lúzhkov glæpi í Moskvu vera vaxandi vandamál. Branson fær ekki lottóið BREZKI auðkýfmgurinn Rich- ard Branson varð fyrir miklum vonbrigðum í gær, þegar til- kynnt var að fyrirtæki á hans vegum myndi ekki verða falið að reka brezka lottóið á næstu árum. Kom það Branson og mörgum öðrum á óvart í gær, að nefndin sem hefur það hlut- verk að meta um- sóknir um rekstur lottósins skyldi nú úr- skurða að Camelot- samsteyp- unni, sem rekið hefur lottóið sl. 6 ár, skyldi falinn hann í sjö ár til við- bótar. í forúrskurði nefndar- innar í ágúst sl. hafði fyrirtæki Bransons, „People’s Lottery", verið hlutskarpast. Sýkna eftir 47 ár IAIN Hay Gordon, 68 ára gam- all Norður-íri sem árið 1953 var dæmdur til að vistast í sjö ár á geðsjúkrahúsi fyrir morð á dómaradóttur, fékk í gær upp- reisn æru, er áfrýjunardómstóll N-írlands ógilti hinn 47 ára gamla dóm yfir honum. Umburðar- lyndiskönnun DANIR og Belgar hafa, í ESB- samanburði, minnst umburðar- lyndi til að bera í garð fólks sem aðhyllist önnur trúarbrögð en þeir, ef marka má niðurstöður skoðanakönnunar sem Eftir- litsmiðstöð kynþátta- og útlend- ingahaturs í Evrópu (EUMC), sem aðsetur hefur í Vínarborg, kynnti í gær. Samkvæmt niður- stöðunum eru Spánverjar og Ir- ar einna umburðarlyndastir Evrópuþjóða í þessum málum. George W. Bush velur f|óra ráðherra í væntanlega ríkisstjórn sína Paul O’Neill verður fí ármálaráðherra Washington. AP. GEORGE W. Bush, verðandi forseti Bandaríkjanna, hélt áfram að skipa í ríkisstjóm sína í gær. Síðdegis í gær tilkynnti hann um val sitt á Paul O’Neill sem gegna mun embætti fjármálaráðherra. Einnig var búist við tilkynningum um val á Donald Evans, í embætti viðskiptaráðherra, Mel Martinez, í embætti ráðherra húsnæðismála og byggðaþróunar, og Ann Veneman í embætti land- búnaðarráðherra. Bush tilkynnti um val sitt á O’NeilI á fréttamannafundi í höfuð- borg Texas, Austin. „Það er mjög mikilvægt fyrir mig að finna ein- hvem sem hefur víðtæka reynslu og er öruggur. Slíkur maður er O’Neill," sagði Bush við tækifærið. O’Neill sagði í ávarpi sínu að hann tryði á stefnumál Bush. O’Neill, sem er 65 ára gamall, hef- ur verið forstjóri álfyrirtækisins Alcoa síðan 1987. Hann þekkir Dick Cheney, varaforsetaefni Bush vel, þeir gegndu báðir embætti í forseta- tíð Gerald Ford. Þá var O’Neill að- stoðaryfirmaður þeirrar stofnunar er sér um bandarísku fjárlögin en Cheney starfsmannastjóri. O’Neill og Cheney em nú yfir sérfræðinga- ráði íhaldsmanna í Washington, Am- erican Enterprise Institute. Ekki þykir heldur spilla fyrir að O’Neill þekkir Alan Greenspan, seðlabanka- Paul O’Neill Ann Veneman stjóra Bandaríkjanna, ágætlega. Ákvörðun Bush um að tilnefna Don- ald L. Evans sem viðskiptaráðherra þykir ekki koma á óvart. Evans er gamalla vinur Bush og var kosningastjóri hans. Evans, sem er 54 ára gamall, hefur verið fram- kvæmdastjóri olíufyrirtækis í Texas undanfarin ár. Hann var ötull fjár- aflamaður í kosningabaráttu Bush og safnaði um 100 milljónum dollara í kosningasjóð Bush, eða um 8 millj- örðum ísl. króna. Evans hefur litla reynslu af op- inbemm störfum, eina sem kemst nálægt því er seta í stjóm háskólans í Texas en það var einmitt Bush sem tilnefndi hann í þessa stöðu eftir dyggan stuðning í fyrri kosninga- baráttum Bush í Texas. Einnig hefur verið bent á að valið á Evans sé í samræmi við þá hefð sem hefur skapast, að forsetar velji Mel Martinez Don Evans sér fjáraflamenn sína í embætti við- skiptaráðherra. Elizabeth Shogren, blaðamaður Los Angeles Times, benti á það í samtali við CNN að Clinton og Georg Bush eldri hefðu báðir gert slíkt hið sama. Flóttamaður frá Kúbu í ráðherrastól Með vali sínu á Mel Martinez, væntanlegum ráðherra húsnæðis- mála og byggðaþróunar, eignast kúbanski minnihlutinn í Bandaríkj- unum sinn fulltrúa í rfldsstjóminni. Martinez kom til Bandaríkjanna ár- ið 1962 frá Kúbu, þá fimmtán ára gamall. Fjölskylda hans kom fjómm ámm síðar og hefui- hún og vinir Martinez sagt að honum sé mjög hugleikið að endurgjalda Bandaríkj- unum hlýlegar móttökur sem hann fékk er hann flýði Kúbu. Martinez er lítið þekktur utan Flórída, þar sem hann er æðsti embættismaður í Orange-sýslu. Hann komst þó í sviðsljósið er hann talaði máli ættingja kúbanska drengsins Gonzales fyrr á árinu, sem vildu halda honum í Bandaríkj- unum. Strax í gær, áður en valið hafði verið tilkynnt formlega, var farið að efast um réttmæti þess vegna þeirr- ar litlu reynslu sem Martinez hefur í embættum sem tengjast beinlínis ráðherrastöðunni. Hann sá fyrir sér á háskólaámm með því að sjá um fjölbýlishúsið sem hann bjó í, einnig var hann formaður húsnæðismála í Orlando í tvö ár á níunda áratugn- um. Stuðningsmenn hans benda hins vegar á að hann viti mikið um byggðaþróun og hafi fengist mikið við þau mál í Orange-sýslu, þar sem íbúum fjölgar stöðugt. Fyrsta konan í embætti landbúnaðarráðherra Ann Veneman er 51 árs lögfræð- ingur, búsett í Kaliforníu. Hún hef- ur mikla reynslu af landbúnaðar- málum og var fyrsta konan til að gegna æðsta embætti landbúnaðar- mála í Kalifomíuríki. Hún var einn- ig hæst setta konan í landbúnaðar- ráðuneytinu frá 1989-1991 í forseta- tíð Georges Bush eldri. Niels Helveg Petersen segir óvænt af sér sem utanríkisráðherra Danmerkur „Ekkí rétti maðurinn til að vinna við þessar aðstæður“ Niels Helveg Petersen, sem verið hefur utanríkisráðherra Danmerkur í yfír sjö ár, sagðist í gær hafa ákveðið að seg;ja af sér. Urður Gunnarsdóttir sat blaðamannafund ráðherrans í Kaupmannahöfn. Reuters Niels Helveg Petersen á blaðamannafundinum í gær. ÞEIR íyrirvarar sem Danir hafa sett við þátttöku í Evrópusambandinu eru meginástæða þess að Niels Helveg Petersen, utanríldsráðherra landsins til átta ára, hefur ákveðið að segja af sér. „Ég er ekki rétti maðurinn til að vinna við þessar aðstæður," sagði hann á blaðamannafundi í gær og vís- aði til ESB-fyrirvaranna sem hann kvaðst efast um að væru Danmörku til góðs og að þeir lýstu hinum raun- venilega vilja þjóðarinnar. Helveg Petersen lætur þó ekki af störíúm fyrr en eftir áramót en þá hefur for- sætisráðherrann, Poul Nyrup Rasm- ussen boðað uppstokkun í rfldsstjórn- inni. Helveg Petersen kveðst ekki á leið út úr stjómmálum og lýsti í gær áhuga á því að setjast í forsetastól danska þingsins. Afsögn utanríkisráðherrans kom algerlega að óvörum er tilkynnt var um hana í gær. Helveg Petersen sagði að rekja mætti hana allt aftur til 28. september sl. er Danir höfnuðu aðild að evrópska myntbandalaginu í þjóðaratkvæðagreiðslu. „Þá hvarflaði þetta fyrst að mér en ákvörðunina tók ég síðar,“ sagði ráðherrann. Hann kvaðst ekki hafa viljað segja af sér fyrr en eftir leiðtogafúnd Evr- ópusambandsins í Nice þar sem erfitt væri fyrir nýjan mann að byrja á því að sækja fund sem hefði verið í und- h'búningi svo lengi. Nú væri stækkun ESB meira og minna í höfn og engin ástæða til að bíða lengur. Eins og áður segir voru fyrirvarar Dana við aðild að ESB, er varða vam- armál, sameiginlega mynt, sameigin- legt réttarkerfi og borgaraleg réttindi ástæða þess að Helveg Petersen ákvað að láta af störfum. „Fyrirvar- amir em staðreynd og þeir verða ekki fjarlægðir nema í þjóðarat- kvæðagreiðslu. Slíkt er ekki tíma- bært. I síðustu þjóðaratkvæða- greiðslu vann ég að málstað sem var felldur," sagði ráðherrann. Saknar þingstarfsins Hann nefndi einnig aðra ástæðu að baki ákvörðun sinni, þá að hann sakn- aði stjómmálastarfsins. Helveg Pet- ersen er einn reyndasti stjórnmála- maður Danmerkur, hefur setið næstlengst núverandi þingmanna og ævinlega tekið virkan þátt í starfi þingsins, t.d. vann hann að endur- skoðun stjómarskrárinnar. Aðspurð- ur viðurkenndi hann að hann hefði áhuga á því að setjast í stól forseta þingsins en hafnaði því með öllu að honum hefðu verið gefin nokkur fyr- irheit um stöður eða embætti. A móti ákvörðuninni hefði mælt sú ánægja sem hann hefði haft af starf- inu í utanrfldsráðuneytinu og svo þær vangaveltur um ástæðumar sem myndu óhjákvæmilega koma upp. Því er ekki að leyna að alls kyns til- gátur hafa skotið og munu skjóta upp kollinum. Sjá sumir afsögn Helvegs Petersens sem merki um að ríkis- stjómin standi tæpt en þvi neitaði ráðherrann, sagði að ákvörðun sín væri alls ekki vantraustsyfirlýsing á stjórnina. Þá hafa vangaveltumar hafist um hverjir verði hinir nýju ráðhemar í stjórninni nú þegar tveir reyndustu ráðhemamir hafa tilkynnt brotthvarf sitt með stuttu millibili en Hans Hækkerup vamarmálaráðhema er á föram til Kosovo sem þar sem hann mun verða yfirmaður Sameinuðu þjóðanna. Ljóst er talið að fleiri ráð- herrar muni hverfa við uppstokk- unina en engin nöfn hafa enn verið nefnd, þótt blaðamenn ýjuðu að því í gær að Helveg Petersen væri að rýma til fyrir elsta syni sínum, Mort- en Helveg Petersen. Niels Helveg Petersen, sem er 61 árs, er reyndastur utanríkisráðhema Evrópusambandsins og hefur auk þess setið á þingi fyrir Radikale Venstre í þijátíu ár. Stjómmálin eru honum í blóð borin, faðir hans var menningar- og menntamálaráðherra, móðirin borgarstjóri. Helveg Peter- sen er lögfræðingur að mennt og auk þingsetunnai' staiíaði hann í þijú ár hjá Evrópubandalaginu í Brussel. Hann var efnahagsmálaráðhema í stjóm Pouls Schliiters 1988-1990 og hefur verið utanríkisráðhema frá þvi í janúar 1993. Frá ráðhematíð sinni kvaðst Hel- veg Petersen einkum minnast þróun- ar mála innan Atlantshafsbandalags- ins og formennskunnar í Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu áríð 1997, sem hann setti svip sinn á. Hann hef- ur einnig fengið mörgu áorkað í Evr- ópumálum, Danir hafa samþykkt ESB-sáttmála í tvígang frá því að hann tók við, árið 1993 og 1998. Neiið í september sl. varð honum hins vegar töluvert áfall.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.