Morgunblaðið - 21.12.2000, Side 35

Morgunblaðið - 21.12.2000, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000 35 ERLENT Rannsókn lokið á slysinu á Hróarskelduhátíðinni Röð óheppilegra kring- umstæðna olli slysi Kaupmannahöfn. Morgnnblaðið. ROÐ óheppilegra kringumstæðna er um kennt að níu manns tróðust undir á tónleikum Pearl Jam á tónlistarhátíðinni í Hróarskeldu í sumar. Lögreglan í Hróarskeldu birti í gær skýrslu sína um málið en hún er byggð m.a. á viðtölum við ríflega 900 manns sem voru á tónleikunum. Til að koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig hefur verið lagt til að hið opinbera setji reglur um viðbúnað og eftirlit við tónleikahald þótt það sé undir tón- leikahöldurunum sjálfum komið að meta áhættuna. Þá hefur verið lagt til að takmörk verði sett við því sem hljómsveitir megi hvetja áhorfendur sína til. Síðastnefnda atriðið hefur ekki mælst vel fyrir hjá dönskum rokksveitum. í skýrslu lögreglunnar segir að ástæða harmleiksins í Hróarskeldu hafi verið margþætt. Einkum megi um kenna veðri, hávaða og stemmningunni á tónleikunum, sem hefur verið lýst sem „nei- kvæðri rétt eins og á mörgum öðr- um tónleikum hljómsveitarinnar" þar sem það sé regla fremur en undantekning að bjarga þurfi áhorfendum úr troðningnum við sviðið. Þá segir í skýrslu lögreglunnar að „umfang slyssins jókst af því hve seint menn gerðu sér grein fyi-ir alvöru málsins, efasemdum um hverjir réðu og boðleiðum, trú á að hægt væri að leysa málið inni á tónleikunum, auk þess sem það að stöðva tónlistina er stór ákvörð- un“. Að síðustu hafði það áhrif að langur tími leið frá því tónleikarn- ir voru stöðvaðir þar til áhorf- endur gátu komist frá sviðinu. ÓUós skýrsla í kjölfar slyssins skipaði menn- ingarmálaráðherra Danmerkur sérstaka Hróarskeldunefnd til að leggja fram tillögur um hvernig koma megi í veg fyrir slys af þessu tagi. Hún hefur skilað áliti sínu sem er í stuttu máli það að ábyrgðin á öryggismálum eigi áfram að hvíla á herðum þeirra er skipuleggi tónleika en bæta eigi þjálfun starfsmanna á tónleikum og upplýsa tónleikagesti um hætt- una sem þeir geti lent í. Ekki þurfi að setja reglugerðir en rétt sé að setja saman leiðbeiningar fyrir skipuleggjendur og ábyrgðar- menn. Skýrslan er um margt óljós, t.d. er óljóst hver ber ábyrgð á því að tryggja nægan viðbúnað lækna verði slys. Er Politiken spurði nefndarmenn, töldu þeir ábyrgðina liggja hjá sveitarfélögunum en talsmenn samtaka sveitarfélaga hafa hins vegar ekki verið hafðir með í ráðum. Þá hefur það mælst illa fyrir hjá rokkhljómsveitum að nefndin legg- ur til að settar verði takmarkanir við framferði þeirra á tónleikun- um. Vill nefndin að hljómsveitir undirriti samning þar sem þær heiti því t.d. að hvetja ekki til heimskulegs eða hættulegs athæf- is. Með slíkum samningi sé auð- veldara að draga tónlistarmennina tii ábyrgðar fari eitthvað úrskeiðis. Danska hljómsveitin D-A-D hafnar þessu með öllu í samtali við Berlingske Tidende. Segir söngv- ari hennar hljómsveitarmeðlimi ekki vera öryggisverði og að vilji þeir tjá sig um eitthvað, geri þeir það. HÚSASMIÐJAN Sími 525 3000 • www.husa.is Syngjandi jólasveinn 1.990 kr Syngjandi jólasveinn sem dansar N ýj ar uppgötvanir styrkj a kenningar um líf á Mars The Daily Telegraph. GEIMFERÐASTOFNUN Banda- ríkjanna, NASA, sagði frá því í vik- unni að „miklar líkur“ væru fyrir því að eitt sinn hefði verið líf á Mars. Seguljámsteinskristallar, sem eingöngu bakteríur geta mynd- að, hafa uppgötvast í loftsteini frá Mars. Þessa nýja sönnun á lífi í geimnum uppgötvaðist í sama loft- steininum, sem er á stærð við kart- öflu, og komst á forsíður allra blaða fyrir fjórum ámm þegar vísinda- menn NASA, dr. David McKay og dr. Everett Gibson, héldu því fram að í honum væri að finna sönnun á lífi á Mars fyrir milljónum ára. Síðan vísindamennirnir sendu frá sér niðurstöðurnar fyrir fjórurn ár- um hefur frekari rannsókn dregið fullyrðingar þeirra í efa. Einn hóp- ur vísindamanna komst t.d. að Rækjuverksmiðja til sölu Tíl sölu er eign þrotabús Nasco Bolungarvík hf., fasteignin Hafnarstræti 80, Bolungarvík, ásamt viðbyggingum og öllum vélum og tækjum til rækjuvinnslu. Um er að ræða eina fullkomnustu rækjuverksmiðju landsins með 6 pillunarvél- um og 2 laservélum. Æskilegt er að kauptilboð nái einnig til allra lausamuna í húsinu sem tilheyra rækjuvinnslu. Einnig eru til sölu fasteignir þrotabúsins í Hafnargötu 41, Hafnargötu 1 7-19 og Grundarstíg 10 í Bolungarvík. Óskað er eftir tHboðum í ofangreindar eignir, hverja fyrir sig eða allar saman, eigi síðar en föstudaginn 5. janúar 2001, kl. 16.00. Nánari upplýsingar gefur Tryggvi Guómundsson hdl., Hafnarstræti 1, ísafirói, sími. 456 3244, fax: 456 454, netfang: tryggvi@snerpa.is þeirri niðurstöðu að lífræni hluti loftsteinsins væri sennilega upp- runninn á jörðu. Annar komst að því að „steingervingamir" frá Mars hefðu getað verið myndaðir í ólíf- rænu ferli og rannsókn á brenni- steinssamsætum hefur einnig dreg- ið úr líkum kenninga um líf. Nú hafa hins vegar fundist í stein- inum örsmáir kristallar seguljárn- steins sem eru hliðstæðir þeim sem vatnsbakteríur jarðarinnar nota til að finna mat og orku. Þessi upp- götvun rennir styrkum stoðum und- ir kcnninguna um líf á Mars, segir NASA en vísindamennimir McKay og Gibson hafa skrifað grein um þessar nýju uppgötvanir og má lesa hana í nýjasta tölublaði timaritsins Geochimica et Cosmochimica Acta. Njóttu þess að fjárfesta í íslenskri myndlist Rauðarárstíg 14-16 sími 551 0400 og Kringlunni sími 5468 0400 www.myndlist.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.