Morgunblaðið - 21.12.2000, Síða 36
36 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Menningarborgarárið er senn á enda í Reykjavík og átta öðrum borgum í Evrópu. Við kyndlinum taka Porto og
Rotterdam. En hvernig hefur til tekist? Hefur verkefnið staðið undir væntingum? Hefur samstarfíð gengið vel og
verður því fram haldið í einhverri mynd, þótt samtök borganna leysist nú upp? Er það kostur eða galli að vera ein
af níu menningarborgum en ekki sú eina? Orri Páll Ormarsson leitaði svara við þessum spurningum hjá stjórn-
endum verkefnisins í erlendu borgunum átta að loknum aðalfundi samtaka þeirra í Bologna um síðustu helgi.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Raddir Evrópu var samstarfsverkefni allra menningarborganna níu.
Santiago de
Compostela, Spáni
Tækifæri til
að sýna á sér
menningar-
hliðina
„HIN almenna skoðun er sú að
menningarborgarárið hafi verið far-
sælt vegna mikilla umsvifa verkefn-
isins og iðandi lífs
í borginni. Ferða-
mönnum hefur
líka fjölgað til
muna,“ segir
Pablo Mai'tinez,
stjómandi Santi-
ago de Compost-
ela 2000.
„Hvort verk-
efnið hafi staðið
undir væntingum
er annað mál,“ heldur hann áfram.
„Ég segi eins og Martin Luther
King, ég á mér draum, öllu heldur
átti mér draum um þetta risastóra
menningarverkefni. En draumur er
eitt, veruleiki annað. Sumt af því sem
við ætluðum okkur náði fram að
ganga, annað ekki. En þannig er líf-
ið.“
Martinez segir menningarborgar-
árið hafa verið upplagt tækifæri til
að auka hróður Santiago de Comp-
ostela út á við. Vekja athygli á borg-
inni. „Santiago de Compostela er
fyrir margra hluta sakir fræg borg,
vegna fegurðai', sögu og annarra
þátta. Listin heyrir ekki til þeim
þáttum. Þetta var því tilvalið tæki-
færi til að sýna á sér menningarhlið-
ina. Ég vona að það hafi tekist.“
Martinez er ánægður með hið fjöl-
þjóðlega samstarf sem menningar-
borgaárið bauð upp á. „í upphafi
urðum við raunar fyrir vonbrigðum.
Við vildum vera Menningarborg
Evrópu árið 2000 - með stóru emmi.
Fljótlega kom þó annað hljóð í
strokkinn og þegar upp er staðið er-
um við ánægð með að mál skyldu
þróast með þessum hætti. Santiago
de Compostela hefur á síðustu miss-
ei'um tengst borgum sem hún hefði
aldrei gert annars. Mörgum hverj-
um nánum böndum. Allt eru þetta
fallegar, frjóar og spennandi borgir,
uppfullar af yndislegu fólká. Mér er
það sönn ánægja að upplýsa í ís-
lenskum fjölmiðli að samstafið við
norrænu borgirnar þrjár hefur verið
sérstaklega ánægjulegt, einkum
Reykjavík. Ég hef nokkrum sinnum
sótt borgina ykkar heim og heillast í
hvert skipti.“
Martinez segir framhaldið undir
borgunum sjálfum komið. „Borgirn-
ar níu eiga örugglega eftir að vinna
meira saman í framtíðinni, í ein-
hverjum mæli. Sumar meira en aðr-
ar. Þetta er aftur á móti ekki undir
stjórnendum verkefnanna komið.
Þeir fara nú hver í sína áttina. Sjálf-
ur er ég á förum frá Santiago de
Compostela. Ég er ekki þaðan. Það
sem skiptir máli er að tengslin eru
fyrir hendi milli borganna og vilji
þær þróa samvinnu sína áfram munu
þær gera það. Á því leikur enginn
vafi.“
Brussel,
Belgíu
Mistök að
útnefna níu
borgir
„VERKEFNIÐ hefur verið mikið
þrekvirki í Brussel. Árið hefur verið
frábært," segir Robert Palmer,
stjórnandi Bruss-
el 2000.
Mælir hann ár-
angurinn öðru
fremur með
tvennum hætti. „I
fyrsta lagi hefur
borgin fengið
ótrúlega andlits-
lyftingu. Meira
hefur ekki verið
gert fyrir hana á
einu ári frá stríðslokum. Mikil upp-
bygging átt sér stað. Borgin er vita-
skuld mun fallegi'i fyrir vikið. Var þó
ekki amaleg áður. I annan stað var
efnt til um þrjú hundruð ólíkra
menningar- og listviðburða. Við lögð-
um höfuðáherslu á þema ársins sem
snerist um það hvernig listin lagaði
sig að borginni. I þessu skyni fékk
fjöldinn allur af nýlistamönnum að
láta ljós sitt skína. Fjölmörg lista-
verk litu dagsins ljós og mönnum
gafst tækifæri til að þróa hugmyndir
sínar í samvinnu við menningarborg-
ina. Ég held að óhætt sé að fullyrða
að Brussel 2000 hafi í ríkum mæli
stuðlað að nýsköpun."
Palmer segir að Brussel sé mis-
skilin borg víða um lönd. ímyndin sé
óverðskulduð. „Þegar fólk hugsar um
Brussel hugsar það um bákn og
skrifræði. Það er misskilningur. Fólk
gleymir því að innan við 2% íbúa
vinna hjá Evrópusambandinu.
Brussel er fjölbreytt og lifandi borg,
þar sem menningarstraumar berast
úr ýmsum áttum. Töluð eru þrjú
tungumál í borginni, flæmska,
franska og þýska. Nú hefur gefist
sögulegt tældfæri til að sameina
þessa þrjá ólíku hópa því Brussel
2000 er fyrsta verkefnið sem horfir
jafnt til menningarsamfélaganna
þriggja. Langtímaáhrif verkefnisins
ættu því að verða sterk og það er
gaman til þess að vita að hópamir
eru þegar famir að leggja drög að
fleiri samstarfverkefnum. Margt
bendir því til þess að árið 2000 verði
sögulegt ár í menningarlífi Brussel."
Palmer talar enga tæpitungu þeg-
ar talið berst að þeirri ákvörðun að
velja níu menningarborgir árið 2000.
„Ráðstöfunin er ekki alvond. Sam-
starf borganna og athyglin sem þær
hafa vakið hver á annarri eru auðvit-
að af hinu góða. Gallamir vega þó
margfalt þyngra en kostirnir. Ég var
á sínum tíma stjómandi verkefnisins
þegar Glasgow var menningai'borg
Evrópu og út frá þeirri reynslu er ég
ekki í vafa: Evrópusambandinu varð
á í messunni þegar það útnefndi níu
menningarborgh' árið 2000. Ég skil
hugmyndina sem bjó að baki, hið
táknræna sjónarmið samvinnu. Það
hefði líka verið erfitt að velja eina
borg öðram fremur á þessu mikil-
væga ári. Gallinn er bara sá að fyr-
irkomulagið er ómögulegt í fram-
kvæmd. Borgirnar taka hver frá
annaiTÍ og fyrir vikið skila verkefnin
ekki þeim ái-angri sem til var vonast.
Evrópusambandið hefði því átt að
taka af skarið og veðja á eina borg.“
Palmer er andvígur því að stofna
ný samtök utan um samstarf borg-
anna níu, sem raunar er ákveðið að
gera ekki, en útilokar þó ekki sam-
vinnu þeirra í millum í framtíðinni.
„Þetta era að vísu ólíkar borgir en
það þarf ekki að koma í veg fyrir
frekara samstarf sýnist mönnum svo.
Borgirnar þurfa þó ekki á sérstökum
samtökum að halda langi þær að
vinna saman. Nú ganga þær líka í
samtök fyrrverandi menningarborga
og geta öragglega fundið flöt á sam-
starfi á þeim vettvangi." Palmer er
sjálfur formaður þeirra samtaka.
Prag,
Tékklandi
Með nýja sýn
á hefðirnar
„ÁRIÐ hefur verið bæði ánægjulegt
og árangursríkt í Prag. Við vorum
með um fjögur hundrað verkefni,
mörg hver í sam-
starfi við hinar
menningarborg-
irnar átta og aðr-
ar borgir, einkum
í Austur-Evrópu.
Framkvæmdin
hefur gengið vel
og við getum ekki
annað en verið
hæstánægðir,11
segir Michal
Prokop stjórnandi Prag 2000.
Hann segir ekki hlaupið að því að
halda menningarhátíð í Prag - borg
þar sem menning og listir flæði um
götur alla daga ársins. „Okkur var
vandi á höndum. Fjölmargar listahá-
tíðir eru haldnar í Prag á ári hverju
og því reið á að gera eitthvað nýtt,
eitthvað öðruvísi. Markmið okkar
var að koma með nýja sýn á hefð-
irnar. Varðveita gömul og góð gildi í
listum en reiða þau fram með nýstár-
legum hætti, í það minnsta upp að
vissu marki. Okkur finnst þetta hafa
tekist. Ég vona að almenningur sé
ánægður líka.“
www.jolabok.is
er slóðin þar sem fá má upplýsingar um bækumar:
Myndir úr hugskoti eftir Rannveigu I. E. Löve, Ferð
um ísland 1809 eftir William Jackson Hooker,
Völuspá, Sonatorrek og 12 lausavísur Egils. Þráinn
Löve samdi skýringar. Prinsessur eftir Leó E. Löve.
J ólas temmning
í Míru
20% afsláttur af öllum
borðstofusettum og sófaborðum til jóla.
30% afsláttur afpostulíni
og glösum
Opið til kl. 22 til jóla
f
mlB
I Bæjarlind 6,
I sími 554 6300
www.mira.is
Pablo
Martinez
Robert
Palmer
Michal
Prokop
Vatn hefur verið miðlægt í hátíð-
arhöldunum í Prag enda rennur það
sögufæga fljót Moldá í gegnum
borgina. Ýmsir viðburðir hafa fært
sig út á fljótið, meðal annars var ýtt
úr vör fljótandi leikhúsi sem Prokop
segir hafa vakið stormandi lukku.
Prokop er þeirrar skoðunar að
samstarfið við hinar borgirnar átta
hafi fleiri kosti en galla. „Þar sem
Tékkland stendur utan Evrópusam-
bandsins hefur það verið mjög
áhugavert að vinna með löndum sem
heyra til sambandinu. Við eram
margs vísari um menningu landanna
og höfum lært margt af hinum borg-
unum. Við höfum líka fengið betri
kynningu en ella. Sameiginleg kynn-
ing, eins og samtök borganna hafa
gengist fyrii', er ný fyifi' okkur. Það
hefur verið spennandi að fylgjast
með henni í framkvæmd. Heilt yfir
hefur verið skemmtilegt að taka þátt
í þessari tilraun, að hafa níu menn-
ingarborgir í Evrópu á sama árinu.
Margreynt hefur verið að hafa bara
eina borg og menn vita hvernig það
fyrirkomulag hefur gefist. Það er
erfitt að gera sér grein fyiir því á
þessu stigi hvort fyrirkomulagið sem
reynt var í ár sé betra eða verra.
Spurðu mig aftur eftir sex mánuði!“
Samtök borganna níu verða nú
lögð niður en Prokop er eigi að síður
sannfærður um að samstarfið muni
halda áfram í einhverri mynd. „Við
þurfum enga yfirbyggingu til að
vinna áfram saman á vettvangi
stofnana og einstaklinga. Ég veit að
margir tékkneskir listamenn og
menningarstofnanir eiga eftir að
færa sér í nyt tengslin sem myndast
hafa á árinu.“
Michaelangelo
Martorello
Bologna,
Ítalíu
Andi Evrópu
fangaður
„HELSTA markmið verkefnisins
var að vekja athygli á Bologna sem
menningarborg innan og utan Ítalíu.
Ferðamönnum
hefur fjölgað um
20% þannig að við
eram í skýjunum.
Þetta hefði ekki
getað gengið bet-
ur,“ segir Mich-
aelangelo Marto-
rello hjá Bologna
2000.
Hann segir
borgina vel
þekkta á Ítalíu en þó fyrst og fremst
fyrir viðskipti, atvinnulíf og mennt-
un. Þar er elsti háskóli í Evrópu.
Listalífið hafi ekki verið eins áber-
andi. „Það er annað sem hefur áunn-
ist. Menningarborgarverkefnið hef-
ur vakið íbúa Bologna til vitundar
um menningarlegan mátt borgarinn-
ar, blásið þeim sjálfstrausti í brjóst.
Ég spái því að menning og listir eigi
eftir að vega sífellt þyngra í borg-
arlífinu þegar fram líða stundir og
Bologna verði ein af mikilvægustu
menningarborgum Ítalíu.“
Martorello segir það hafa mun
fleiri kosti en galla að vera ein af
menningarborgunum níu. „Andi
Evrópu hefur verið fangaður með
þessu verkefni. Ólíkir menningar-
heimar rannið saman. Að mínu viti
er þessar níu borgir hin fullkomna
samsetning. Ólíkar en samt líkar.
Þær vinna líka feikilega vel saman.“
Ekki þarf að koma á óvart að
Martorello er fylgjandi áframhald-
andi samvinnu. „Eg er sannfærður
um að borgirnar eiga eftir að fást í
sameiningu við fjölmörg verkefni í
framtíðinni, tvær eða fleiri saman.
Það þarf bara að finna rétta flötinn.
Menn glopra ekki svona tengslum
niður. Eg er mjög bjartsýnn á fram-
haldið."