Morgunblaðið - 21.12.2000, Blaðsíða 44
MORGUNBLAÐIÐ
44 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000
Heimur
VÍÍ5SINS
„Þessi bók er auðlesin og
skýr. Allt vínáhugafólk getur
haft gagn af, bæði það sem er
að hefja „meðvitaða" léttvíns-
drykkju og það sem lengra er
komið. Matarkaflarnir skilja
eftir vatn í munni."
Einar Thoroddsen,
Morgunblaðið.
Heimur vínsins
Tilboð til áskrifenda
Morgunblaðsins
Fyrsta íslenska alfræðiritið um vín og vínmenningu er komið út. Bókin
er m.a. byggð á vinsælum greinum Steingríms Sigurgeirssonar, vín- og
matarsérfræðings Morgunblaðsins. Þetta er glæsileg bók sem endur-
speglar hrífandi veröld vínmenningarinnar og er prýdd á annað hundrað
litljósmyndum. Salka gefur bókina út í samvinnu við Morgunblaðið.
Nú gefst áskrifendum Morgunblaðsins einstakt tækifæri til
að eignast bókina á tilboðsverði.
Tilboðsverð er 3.900 kr. en leiðbeinandi verð er 5.480 kr.
Áskrifendur geta komið í Morgunblaðshúsið í Kringlunni 1 eða
keypt bókina í Moggabúðinni á mbl.is.
Fáðu nýja sýn á veröid vínsins!
pJorgiinMaWib
Salka
LISTIR
Jólin bakvið
bambusinn
MYJVDLIST
G a 11 e r í i 8,
Ingólfsstræti 8
HÖGGMYND
& LJÓÐMÆLI
SIGURÐUR
GUÐMUNDSSON
Desember-janúar.
YFIR jól og áramót er það vani
Gallerís i8 að birta verk gegnum
gluggann þótt lokað sé. Fyrir ári
mátti sjá forláta brunn Ólafs Elías-
sonar upplýstan í skammdegis-
rökkrinu með glitrandi vatnsbunu
sem hvarf jafnharðan ofan í ílátið.
Nú blasir þar við höggmynd, eitt af
hinum forláta portrettum
Sigurðar Guðmundssonar
sem eru í formi stílfærðs
prófíls eigin höfuðs. Að
minnsta kosti lýsti lista-
maðurinn eitt sinn yfir
því að um eigið höfuð
væri að ræða.
Höfuðið þekkja margir
frá sýningunni í Lista-
safni Islands fyrr í vetur.
Um það hefur verið slegið
bambusstillönsum eins og
þeim sem hvarvetna má
sjá í Kína. Reyndar er
hugmyndin þaðan komin
þótt hún sé útfærð í
smækkaðri mynd. Það er
merkilegt að hugsa til
þess að með þessum
grindum eru allt í einu
komin stærðarhlutföll á
þetta áleitna mótíf Sig-
urðar sem hann er búinn
að fóstra með sér í nær-
fellt tvo áratugi. Með
vinnupöllunum er allt í
einu hægt að ímynda sér
risastærð höfuðsins út frá
mannlegum stærðum.
Og hvað er það sem
mónumental risahöfuð
segir okkur, svo sem hinir
frægu stórsteinar Páska-
eyju? Það er vissulega eitthvað guð-
dómlegt við stærðina, því er varla
hægt að neita, en á tímum lýðræðis
og tiltölulega mikils jafnaðar - mið-
að við fyrri tímabil í sögunni - verða
stórar brjóstmyndir táknmyndir
allt annarra tilfinninga. Þær minna
á einstæða kletta, vissulega stóra og
sláandi en einmana engu að síður.
Þá tilfinningu þekkti rómantíkin vel
enda má segja að Sigurður sé ófor-
betranlegur rómantíker í eðli sínu,
ef til vill meir en nokkur annar nú-
lifandi myndlistarmaður hér á landi.
Bakvið hið stæðilega höfuð - um
postmódernískar eigindir þess
mætti fara mörgum orðum - stend-
ur sérkennilegt ljóð ritað á ensku á
endavegginn berlega með einhvers
konar Genfarfonti. Það er eins og
Daníel sé kominn til hirðar Belsass-
ars - svo áhrifarík eru orð sem
dregin eru á veggi að þau hljóma
sem grafskrift. Þó er hér aðeins um
mjög látlausan texta að ræða frá
1971, meira að segja meingallaðan
ef grannt er farið í enskuna. En ein-
mitt vegna þess að sérkennilega
byrjun kvæðisins má túlka einhvern
veginn svona:
Jólin munu hremma þig
óðarenþiggrunar
verður það svo óumræðilega
fyndið að varla er annað hægt en
skella upp úr. Það er einmitt í þess-
twsifth of ma&mR
THIATEENTM Ot DECStOF’K
FOURTerNTH «• DtCCMaiR
riMCENTM Of DfiCtMWW
SíXTEéNThoh m.C€MB£fi
œvSffmiWTH CF OECCMMfl
EtiWTKKNTH OF DeCEMUtfl
NINSTEPNTH 0» OClJCW “
TWENTiCfíOF CÆCtMf
mcNTÝ-t?pnr tjf D x
TW!:N1T4'^jH0‘CTfl
TWEWTY--ÍlfiöOf
Ljósmynd/Halldór Bjöm.
Gluggi Gallerís i8 með Höfði Sigurðar Guð-
mundssonar, og Jólakvæði frá 1971.
um lunkna riðslætti milli dauðans
alvöru og drepfyndni sem rómantík
Sigurðar verður svo ekta og sönn.
Nú þegar Gallerí i8 er að kyssa okk-
ur bless eftir frábært lífshlaup - til
þess að flytja sig um set yfir á
Klapparstíginn - fer ekki hjá því að
glugginn út að götunni við Ingólfs-
stræti 8 endurómi þann ljúfsára
söknuð sem höfuðið og kvæði Sig-
urðar stafa, enda er þá stutt í bæn-
ina:
Veitt’ okkur nú stillans
því brátt eru jólin öll.
Halldór Björn Runólfsson
Fékkstu kartöflu
í skóinn?
Snúðu þá vörn í sókn!
Gifshúðaðu þær kartöflur sem þú hefurfengið
í skóinn þetta árið og reyndu að láta þær
líkjast sem mest venjulegum golfkúlum.
Lakkaðu þær svo nokkrum sinnum og
laumaðu þeim í golfpokann í geymslunni.
Fylgstu svo spenntur með þegar pabbi þinn
fer fyrstu átján holurnar næsta vor.
Pínir vinir
íslenskir kartöflubændur