Morgunblaðið - 21.12.2000, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 21.12.2000, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000 55 ~ þessa nótt sagði Jón af einlægni að ef hann myndi deyja eftir að hafa tekið of stóran skammt af kókaíni vildi hann að sagt yrði frá því. Hann vildi vera öðrum víti til varnaðar, jafnvel þótt sannleikurinn myndi ekki forða nema einum frá því að lenda í snöru fíkniefnaneyslu. Of stór skammtur varð Jóni ekki að aldurtila en það er Ijóst að fíkniefni, áfengisneysla, steranotkun, og það álag sem fylgdi líferni hans, gerði útslagið. Jón hafði fengið sig fullsaddan af öllum leynd- armálum og því sem aldrei mátti tala um. Hann hafði brotið af sér þá hlekki og talaði opinskátt um líf sitt frá æsku til fullorðinsára. Feluleikur var honum ekki að skapi. Jón var kærleiksríkur, stórhuga, kraftmikill og hugrakkur. Hann naut vinsælda sem einkaþjálfari enda var hann á stundum nokkurs konar sálu- sorgari þeirra sem nutu handleiðslu hans. Og hann var ávallt traustsins verður. Akkilesarhæll Jóns var ef- laust sá að vilja sigra heiminn í einu vetfangi. Ef honum hefði fyrst tekist að sigrast á sjálfum sér hefði hann lagt heiminn að fótum sér, á sinn hátt. Jón vann stöðugt í því að verða betri maður og stóð Sara við hlið hans eins og klettur, sama hvað á bjátaði. Hún og ljósgeislinn þeirra, hann Tristan Alex, voru haldreipi Jóns í lífinu. Hann unni þeim af öllu hjarta og þráði að tryggja þeim bjarta og örugga framtíð. Missir þeirra er mikill en Jón fer einnig á mis við að njóta þeirra sem reyndust honum best í lífinu. En hann mun vaka yfir þeim. Fyrir nokkrum árum gaf ég Jóni bók og skrifaði í hana; Jón Jesús, vinur minn. Það var gert af einlægni því Jón var mér mikils virði og ég naut nærveru hans og trúnaðar. Augun endurspegluðu þá fögru sál sem hann hafði að geyma, jafnvel þótt hann hafi villst af hinni björtu leið um stundarsakir. Ég sakna Jóns. Og veit að ég mun ávallt sakna hans. Við áttum margt eftir ógert og hlökkuðum til að skoða hellana við Tungná sem koma við sögu í „skáld- sögu“ sem ég hef verið að glíma við síðastliðin ár. Við vorum sannfærðir um að þar hefðum við verið vinh- undir lok átjándu aldar og stutt hvor annan fram í rauðan dauðann. Ég veit að Jón mun glaður fylgja mér þangað næsta sumar eins og segir í ljóðinu hér að ofan; „og ég, þótt lát- inn sé, tek þátt í gleði ykkar yfir líf- inu“. Ég votta Söru, Tristan Alex, for- eldrum Jóns, tengdaforeldrum og ættingjum samúð mína. Minningin um kærleiksríkan dreng mun lifa. Þorgrímur Þráinsson. Við viljum minnast góðs vinar okkar, Jóns Elísar, sem við félagarn- ir vorum vanir að kalla „Jónka“. Kynni okkar hófust í Fellunum íyrir rétt tæpum 28 árum þegar Jónki kom í heiminn, þá vorum við félag- arnir á aldrinum fjögurra mánaða og upp í eins árs. Við áttum skemmtileg ár í Fellunum, hverfið var í uppbygg- ingu og því spennandi fyiir litla stráka að rannsaka heiminn. Jónki var fljótur að taka forystuna í vett- vangsferðum okkar um húsagrunna Fellahverfis. Hann var gjarn á að leiða hópinn, fyrst á þríhjóli og síðar á Universal-reiðhjóli. Rannsóknar- áhugi okkar félaganna minnkaði ekki með árunum, við eignuðumst BMX-reiðhjól, hjól Jónka var króm- að og bar af í vinahópnum. Það leið ekki á löngu áður en við vorum búnir að gera hjólabrautir og þá var keppt að vetri sem og að sumri. Áhugi á hjólabrautinni minnkaði þegar við nálguðumst kynþroskaaldurinn og þá stefndi hugurinn inn á nýjar brautir. í Fellahelli áttum við eftir að eiga margar góðar stundir. Þá var ekki lengur fiott að vera á BMX- reiðhjóli heldur varð maður að verða sér úti um skellinöðru. Jónki var fljótur að tileinka sér góða fæmi á skellinöðrunni sem síðar breytist í alvöru mótorhjólaáhuga. Hann hafði einnig mikinn áhuga á bílum og átti Jónki eftir að eignast þá marga af öllum stærðum og gerðum. Jónki var mjög framarlega í öllu því sem hann tók sér fyrir hendur. Hann spilaði körfubolta í nokkur ár, fyrst hjá Fram og síðar hjá íR. Hann þótti efnilegur en það voru ekki hóp- íþróttimar sem heilluðu Jónka og tók hann að æfa lyftingar ungur að áram og eins og áður lagði hann sig allan fram og náði góðum árangri. I lyftingunum setti Jónki nokkur ís- landsmet og fékk fljótt viðurnefnið „Jón Massi“ og á seinni áram hefur hann verið betur þekktur sem „Massinn". Jónki valdi snemma að snúa sér að þjálfun, það gaf honum mikið að hjálpa öðra fólki að styrkja heilsu sína. Jónki var í blóma lífsins þegar hann lést. Óvænt fráfall hans hefur knúið okkur vinina, hvern á sinn hátt, til að endurskoða lífið og hverf- ulleika þess. Við viljum minnast Jónka með ljóði sem Rristján Jóns- son orti um látinn vin sinn: Nú samvist þinni sviptur er ég sé þig aldrei meir! Astvinimir, sem ann ég hér, svo allir fara þeir. Ég felldi tár - en hví ég græt ? Þvíheimskingiéger! Þín minning hún er sæl og sæt Ogsömuleiðégfer. Já sömu leið! En hvert ferð þú ? Þighyljasééggröf þar mun ég eitt sinn eiga bú ofævisvifinnhöf. En er þín sála sigri kætt Ogsælabúinþér? Ég veit það ekki! - sofðu sætt! En sömu leið ég fer. Það er sárara að kveðja Jónka en orð fá lýst en minningin um hann er sterk og mun lifa! Við vottum Söra og Tristan sem og öðrum aðstandendum okkar dýpstu samúð. Jón, Árni og Ágúst. „Tilvera okkar er undarlegt ferða- lag, við eram gestir og hótel okkar er jörðin.“ Þannig hefst eitt af ástsæl- ustu ljóðum Tómasar Guðmundsson- ar og kom upp í huga minn þegar ég fékk þau válegu tíðindi að vinur minn Jón Elís Guðmundsson væri látinn, að „ferðalagi" hans væri lokið og hann farinn af „hótelinu“. Snemma árs 1994 ætlaði ég eins og svo margir aðrir að kaupa mér kort í ræktinni og hefja heilsu- og líkamsrækt af miklum móð. Gym 80 varð fyrir valinu og þar kynntist ég Jóni. Hann starfaði þar sem einka- þjálfari og tókst með okkur strax mikill vinskapur. Ekki leið á löngu þar til ég var orðinn einn af við- skiptavinum hans og var það í góðan tíma. Árangurinn lét ekki á sér standa enda var hann hafsjór af fróð- leik um líkamsrækt og kom aldrei upp sú spuming sem hann gat ekki svarað enda átti þetta starf hug hans allan. Það var engin tilviljun að Jón var einn af vinsælustu einkaþjálfuram landsins. Þar kom ekki bara við sögu hæfni, metnaður og kunnátta heldur líka persónuleiki hans því margir af viðskiptavinunum ui-ðu hans bestu vinir, það geta margir sem þetta lesa stapfest. Á þessum tima starfaði ég á Jarl- inum sem þá var með aðsetur á Sprengisandi. Ég var mættur í rækt- ina til Jóns snemma morguns og því næst var branað í vinnuna. Eins og gengur og gerist með marga sem byrja í líkamsræktinni dettur úr einn og einn tími. Eins var farið hjá sumum þeim sem æfðu hjá Jóni. Þá notaði hann tækifærið, skrapp til mín í vinnuna, fékk sér að borða af salatbarnum og var svo rokinn til að sinna næsta kúnna. Þessar heim- sóknir urðu þegar fram í sótti fastur punktur hjá Jóni enda þekkti hann orðið allt starfsfólkið með nafni og það að sjálfsögðu hann. Honum var boðið í starfsmannahóf og einnig ef annað skemmtilegt kom upp á, því eins og áður segir var hann persónu- leiki sem laðaði fólk að sér. Árin liðu, ég lærði matreiðslu og við héldum áfram að rækta vinskap okkar þótt ekki hafi gefist sá tími sem við höfðum áður. Ég hóf störf á veitingahúsinu Einari Ben við Veltu- sund en þá bjó Jón á Tryggvagöt- unni og því stutt fyrir hann að kíkja í heimsókn, fá sér kjúklingasalat og að sjálfsögðu vatn að drekka. Jón var líka með ólæknandi bíla- dellu, hvort sem það vora jeppar eð sportbílar, enda vora þær ekki fáar jeppaferðimar sem mér var boðið í og er ein sérstaklega minnisstæð en þá var farið upp að Síðujökli sem þá var að ryðjast fram af miklum krafti. Farkosturinn var Willys-jeppi á 38 tommu dekkjum með öllu tilheyr- andi. Eins fóram við nokkram sinn- um til rjúpna með misjöfnum ár- angri enda tilgangurinn frekar sá að vera í góðum félagsskap hvor ann- ars, áhyggjulausir og glaðir. Til marks um það hversu góður vinur Jón var, bæði minn og fjöl- skyldu minnar, var hann gestur í brúðkaupi tvíburasystur minnar og eins í skírn sonar míns og þar tók hann að sér stoltur að stjórna seg- ulbandinu fyrir prestinn sem þáði aðstoðina með þökkum. Ég gæti eflaust skrifað meira um þær góðu stundir sem við Jón áttum saman, því hér hefur aðeins verið stiklað á stóra. Með þessum fáu orðum langar mig að kveðja Jón Massa sem nú er kominn á annað „hótel“. Fimm stjörnu hótel sem býður bara upp á það besta og þar átt þú örugglega inni. Við hittumst seinna, vonandi á sama „hóteli" og ef ég lendi í ein- hverjum vandræðum í „lobbíinu" þá veit ég að þú kemur og réttir fram hjálparhönd eins og þér er einum lagið. Vertu sæll, elsku vinur. Ég votta unnustu Jóns, syni, for- eldrum, systkinum, ættingjum hans og vinum mína dýpstu samúð. Guð blessi ykkur öll. Reynir Örn Þrastarson. Ég var nýbúinn að kveikja á síma- num mínum eftir hádegi hinn 10. desember þegar hann hringdi. Það var Fjóla systir hans Jóns sem sagði að bróðir hinn væri látinn og mín fyrstu orð vora þau: Ég trúi því ekki. Það hlýtur að vera hið fullkomna óréttlæti að svona duglegur, atorku- samui' og góður drengur skuli vera tekinn frá okkur svona sviplega. Það er erfitt að koma orðum að þeim missi og þeim tómleika sem ég finn fyrir. Þú varst alltaf svo sterkur og fastur fyrir og í mínum augum varstu ódauðlegur. Það var alltaf svo mikið að gera hjá þér og þú slakaðir aldrei á, varst alltaf á fullu að græja og gera alla hluti. Þú máttir ekkert aumt sjá og varst alltaf tilbúinn að hjálpa og að- stoða en áttir sjálfur erfitt með að þiggja aðstoð annarra þegar á móti blés. Mér verður alltaf minnisstætt þegar þú snerir þér að mér og sagðir að það eina sem virkilega skipti máli í þessu lífi væri íjölskyldan. „Pass- aðu vel uppá fjölskylduna, hún er það eina sem maður raunverulega á,“ sagðir þú. Það var greinilegt hverja þér þótti vænst um. Mér verða alltaf kærar þær stund- ir sem við áttum saman og þá er efst í huga sumarbústaðarferðin sem við fórum í með konum okkar og böm- um í júní síðastliðnum. Þið Sara vor- uð mjög samrýnd og ykkur þótti svo vænt hvora um annað. Ég dáist að styrk Söra, hún stóð alltaf eins og klettur við hlið þér í gegnum allai' þær hremmingar og þá erfiðleika sem upp komu. Einnig hugsa ég til Tristans sonar ykkar sem var það yndislegasta sem þú áttir en oftar en ekki var hann með í för þegar við skruppum saman í hádegismat. Strákurinn er lifandi eftirmynd pabba síns og það var alltaf svo gam- an að sjá ykkur tvo saman. Það er erfitt að horfa á eftir manni sem var í blóma lífsins og ég get ekki annað en hugsað til fjölskyldu Jóns á þessum erfiðu tímum. Ég vona að þau Sara og Tristan veiti hvort öðra styrk til þess að komast í gegnum þetta mikla áfall. Um leið og ég kveð Jón vil ég þakka honum fyrir þann tíma sem ég gat kallað hann vin minn. Einnig vil ég þakka fyrir þann hlýhug sem hann og fjölskylda hans sýndu mér. Söru og Tristan votta ég hér með mína innilegustu samúð, sem og foreldmm hans, bróður og Fjólu. Steinbergur Finnbogason. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, sonur, bróðir, tengdasonur og afi, SÆVAR MÁR STEINGRÍMSSON sölustjóri, Álfhólsvegi 79c, Kópavogi, lést á Landspítala Hringbraut þriðjudaginn 19. desember. Bára Hákonardóttir, Hrönn Sævarsdóttir, Arnar Þórir Ingason, Drffa Sævarsdóttir, Sævar Már Sævarsson, Sigrún Fanney Sigfinnsdóttir, Einar Steingrímsson, Sigríður Steingrímsdóttir, Ólafía Árnadóttir, Hákon fsfeld Jónsson, Harpa Sif, Ómar Þór og Kara Björk. t Elsku hjartans eiginkona mín, móðir okkar, dóttir og systir, MAGDALENA ELÍASDÓTTIR COAKLEY, lést á heimili sínu í Englandi föstudaginn 15. desember. Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykja- vík fimmtudaginn 28. desember kl. 15.00. Dennis Charles Coakley, Georg Christopher, Atli Heimir og Ellen Grace Coakley, Ragnhildur Guðrún Bergsveinsdóttir, Elías Baldvinsson Baldvin Elíasson, Bergsveinn Haralz Elíasson. + Ástkær eiginmaður minn og faðir, SIGURSÆLL MAGNÚSSON, Sóllandi við Suðurhlíð, lést á Landspítalanum í Fossvogi þriðjudaginn 19. desember. Jarðarförin auglýst síðar. Olga Stefánsdóttir, Stefán Sigursælsson. t Eiginmaður minn, GUNNSTEINN STEINSSON, Skógargötu 9, Sauðárkróki, lést á Sjúkrahúsi Skagfirðinga þriðjudaginn 19. desember. Útförin auglýst síðar. Eiginkona, dætur og aðrir aðstandendur. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir, afi, sonur og bróðir, RAGNAR KARLSSON, Smárahlíð 2 Akureyri, lést af slysförum þriðjudaginn 19. desember. Fyrir hönd aðstandenda, Ellen Jónasdóttir. Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í simbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. -*/ Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú er- indi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein- ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttii- ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.