Morgunblaðið - 21.12.2000, Síða 57

Morgunblaðið - 21.12.2000, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000 57 J ' á Homafirði. Öðru sinni hafði hann fregnir af óútgefinni sagnfræðirit- gerð og vildi að ég hefði uppi á henni. Þau voru ófá skiptin sem hann sendi Boggu punkta á tölvupósti um eitt- hvað sem hann hélt að kæmi að gagni í blaðamennskunni. Hann hafði gaman af stónim hug- myndum, hvort heldur þær voru um þróunina í efnahagsmálum eða bandarískum stjórnmálum. Ungling- ur man ég eftir því að hann lét stórar staðhæfingar flakka og mér lærðist að leita eftir kímnisglampa í augum frænda til að vita hvort ég ætti að trúa eða ekki. Trjárækt var stórt áhugamál frænda síðustu árin og mín kenning er að það hafi verið hans leið til að komast aftur í snertingu við landið eftir langt úthald erlendis. Auðvitað hefði Símon ekki fallist á þessa skýr- ingu. Hann hefði bent á skikann í Biskupstungum og sagt eitthvað á þá leið að hér væri land og það þyrfti að græða upp. Guð varðveiti og styrki Þuríði, Jó- hönnu, Vilhjálm Styrmi, Svein Ori-a og ömmu og afa. Páll Vilhjálmsson og ljölskylda. Elsku frændi. Ég á svo erfitt með að trúa því að þú sért farinn svona skyndilega frá okkur. Ég á ótal margar góðar minn- ingar um þig og það sem þú kenndir mér og systkinum mínum. Þó sér- staklega allar samræðurnar okkar sem gengu út á það að gera mig eins pirraða og hægt var, þannig að það blés úr eyrunum á mér. Það er nú reyndar ekki svo erfitt en ég veit það núna að þú varst bara að kenna mér að vera sjálfstæð og fá mig til að hugsa. Núna seinni árin var ég bara farin að hafa gaman af þessu og sá þig í nýju ijósi. Þú varst alltaf inikill fjölskyldu- maður og sýndir það svo oft í verki og orði en það meina ég í hinum víðasta skilningi. Við erum 20 systkinabömin en þú sýndir okkur öllum jafnmikinn áhuga og athygli líkt og þú værir pabbi okkar. Ég man sérstaklega eft- ir útskriftinni minni, það veitti mér mikla gleði að gera stóra bróður pabba svona stoltan. Þú varst líka svo stoltur af þínum eigin bömum og hæfileikum þeirra, að það lýsti af þér langar leiðir þegar að þú talaðir um þau og afrek þefrra. Þér fannst sér- staklega gaman að tala við mig um hæfileika Sveins Orra í teikningu og láta mig sjá og meta það sem hann var að gera. Ég lofa þér þvi að ég mun hvetja hann áfram eins og þú sjálfur hefðir viljað og gert. Það var alltaf jafngaman að sjá ykkur systkinin saman, sérstaklega uppi í bústað (þar sem þú réðst ríkj- um og stjórnaðir ræktuninni) því þið emð svo samrýnd og góð við hvort annað. Við í þriðju kynslóð eram því með sanni farin að kalla ykkur maf- íuna, þar sem þú varst að sjálfsögðu aðalmafíósinn. Þetta sannaðist enn og aftur við dánarbeð þinn, þar sem þau stóðu öll eins og klettar og styi-ktu hvert annað og okkui- hin. Það er aug- Ijóst að þú varst og munt ávallt vera elskaður. Deyrfé, deyja frændur, deyrsjálfuriðsama. En orðstír Deyraldregi Hveim er sér góðan getur. (Hávamál.) Við munum öll hjálpa Þuríði með strákana og ég mun alltaf minnast þín sem lífsglaða frænda míns sem vildi alltaf hjálpa til og þar sem vesen og vandræði voru strikuð út úr orðabók- inni. Elsku Þuríður, Jóhanna, Villi og Sveinn Orri, afi og amma, finnið styrk í hvora öðra. Sofðu rótt elsku frændi. Þín frænka, Selma Rut. Það reynist mér erfitt að taka penna í hönd og og rita minningarorð um minn elsta vin. Minningarnar hrannast upp í huga minn, frá því er við fyrst kynntumst í gamla Víkings- heimilinu, þá í bamaskóla, Breiða- gerðisskóla 1959 og allar götur síðan. í öllum þessum minningum kemur æ ofan í æ fram mynd af okkur vinun- um, þar sem við gengum heilan vetur í Réttarholtsskólann, frá Vogahverfi, reyndar bjó Símon þá á Laugarás- veginum og ég á Skeiðarvoginum. Líkt og mér var Símoni ekki um að breyta til með skóla, þegar við flutt- umst í nýtt hverfi, heldur héldum við tryggð við Réttarholtsskóla. Þessi ganga okkai’ á hverjum virkum degi tók a.m.k 1 klst. og gott betur fyrir hann, þar sem hann átti um lengri veg að fara. I hvaða veðri sem var, all- an veturinn, þrömmuðum við þessa leið, framhjá gamla Hálogalandi, þar sem við æfðum handbolta í Víkingi, að sjálfsögðu, yfii- kartöflugarðana er þá lágu á milli Suðui’landsbrautar og Miklubrautar, sem að mig minnir að hafi enn verið ólokið og síðan upp síð- asta hjallann að skólanum. Margt var skrafað og skeggrætt á þessum göng- um okkar til og frá skólanum þennan vetur, sem ekki verður hér rakið. Frá hinu skal samt greina að á þessum göngum kynntist ég fyrst fyrir alvöra þeim eðliskostum sem prýddu vin minn Símon Pálsson. Þeir eiginleikar vora helstir, tryggð, staðfesta og ein- m-ð. Ég átti að sjálfsögðu eftir að kynnast honum mun betur eftir því sem á leið, en þessir kostfr komu þá þegar skýrt í ljós og drógu mig að honum og milli okkar hefur æ síðan ríkt gagnkvæm vinátta. Áiin liðu og lengi vel áttum við samleið í skóla, barnaskóla, gagn- fræðaskóla og síðan í Menntaskólan- um á Akureyri, þar sem margt var brallað, sem ekki verður hér haft eft- ir. Það sem að mínu mati einkenndi vináttu okkar var þó sú staðreynd að þótt að við værum á stundum, jafnvel áram saman, fjairi hvor öðram, slitn- uðu aldrei þau bönd, sem í æsku vora bundin. Gilti þá einu, þó að við væram í sitt hvorri heimsálfunni eða nálægt hvor öðram, þráðurinn slitnaði aldrei og tal var tekið upp þar sem síðast var frá horfið. Ein mesta gæfa vinar míns var þegar hann kynntist eftirlifandi eig- inkonu sinni, Þuríði Vilhjálmsdóttur, lífsglaðri konu, sem kom eins og skært Ijós inn í hans líf. Ég nefndi í upphafi þá mannkosti, sem ég tók fyrst eftir í fari vinar míns þegar í æsku. A manndómsáram hans komu í Ijós frekari kostir sem hann prýddu. Hann var mikill heim- ilisfaðfr, natinn við böm sín og vildi gefa allt af sjálfum sér þeim til fram- fara og heilla, kærleiksríkur en um- fram allt, ætíð nálægur og reiðubúinn til hjálpar. Þegar ég segi að hann hafi verið mikill heimilisfaðir, þá nær það ekki eingöngu tU hans nánasta heim- ilis, heldur til foreldra hans, systkina hans og bama þeirra. Hann beinlínis naut þess að eiga „stóra fjölskyldu.“ Utan bama sinna og umhyggju fyrir þeim og eiginkonu átti minn vinur eitt stórt og mikið áhugamál, sem hann reyndi að sinna í öllum tómstundum sínum, en það var hvers konar rækt- un, blóma og trjáa. Lengi býr að fyrstu gerð þannig að sú ræktun á eftir að minna okkur öll á hann, þegar við virðum afrakstur tómstunda hans. Naut hann sín best við þá iðju og ég held að hún hafi veitt honum einhvers konai’ hvfld frá amstri dagsins. Nú á þessari kveðjustund, sem ég á mjög bágt með að skflja og hvað þá meðtaka, vU ég biðja Alföður að veita honum viðtöku, styrkja og leiða á þeirri vegferð sem hann nú hefur lagt út á, um leið og ég þakka kæram vini fyrir allt og allt. Elsku Þuríður mín, Jóhanna, Vil- hjálmur Styrmir og Sveinn Orri, ykk- ar er sorgin og söknuðurinn mestur. Ég bið góðan Guð að varðveita ykkur og styrkja í sorg ykkar nú og á kom- andi tímum, sem og foreldra Símon- ar, þau Jóhönnu Símonardóttur og Pál Þorsteinsson og systkin öU. Guð varðveiti minningu um góðan dreng. Þess óskar þinn vinur, Þorsteinn Eggertsson. Símon Pálsson hafði ákaflega góða nærvera. Hann hafði fina kímnigáfu og lét sér fátt óviðkomandi. Umræðu- efnin sýndu mann sem hafði brenn- andi áhuga á starfi sínu og fjölskyldu ásamt stóra tómstundagamninu, skógræktinni. Hann var stoltur af því sem hann áorkaði í lífi og starfi, en hreykti sér ekki. Þrátt fyrir rólegt fasið vai’ hann kappsamur og horfði langt fram í tím- ann að hætti skógræktandans. Það var mér heiður að eignast vináttu og trúnað Símonar. Samstarf vegna vinnu og sameiginlegur áhugi á stjórnmálum leiddi af sér margar ánægjulegar samverastundir og minningar sem munu lifa. Fráfall Símonar Pálssonar er mik- ill harmur. Þó er missir fjölskyldu hans sárastur og votta ég henni mína dýpstu samúð. Ólafur Hauksson. Það er erfitt að trúa því að hann Símon sé allur. Að ég skuli vera að skrifa minningargrein um Símon Pálsson er einhvem veginn ekki raunveralegt og allt of endanlegt. Að- eins fyrir nokkram dögum voram við í daglegu sambandi enda hann einn af mínum nánari samstarfsmönnum og góður vinur. Hann hélt starfsmönn- um sínum veglega jólaveislu á föstu- dagskvöldi og lék á als oddi. Var til þess tekið hve vel hann gerði við alla og naut samverannar við starfsmenn- ina. A sunnudegi var hann farinn. Hann fór snögglega og án sjúkralegu eða undangenginna hamlandi veik- inda. Það hefði ekki hentað honum að fara með öðram hætti. Símon var stórbrotinn persónu- leiki. Hann var ekki endilega allra, en leitaði ráða í tiltölulega þröngum hópi fólks sem hann treysti vel. Hann var mjög hreinn og beinn og gekk ákveð- ið og fumlaust til allra verka. Hann var maður ákvarðana, aðgerða og framkvæmda, en var minna fyrir langar orðræður eða miklar vanga- veltur. Símon var heldur ekki mikið fyrir kurteisishjal eða að sækja til- gangslítil mannamót. Þó var hann mikill höfðingi þegar sá gállinn var á honum. Hann hafði einnig ánægju af þeim félagsstörfum sem hann tók á annað borð að sér, eins og t.d. að starfa að málefnum Bresk-íslenska verslunarráðsins þar sem hann sat í stjóm. Símon starfaði allan sinn starfsferil hjá Flugleiðum, nú síðustu árin sem svæðisstjóri fyrir sölusvæðið ísland. Það er mikið starf og vandasamt sem hann leysti afskaplega vel af hendi. Mér fannst hann í raun blómstra í því starfi enda var hann við fráfall sitt bú- inn að gegna því lengur en flestir for- verar hans. Símon var mikill Flug- leiðamaður. Hann unni félaginu og lagði sig allan fram um efla hag þess. Faðir hans hafði verið starfsmaður Flugleiða alla tíð og sat í stjórn félagsins. Hún Þuríður, kona Símon- ar, stai-far hjá Flugleiðum og Jó- hanna dóttir hans gerði það einnig til skamms tíma. Margir af hans bestu vinum vora einnig samstarfsmenn hjá Flugleiðum. En þótt Flugleiðir hafi skipað stóran sess í lífi Símonar, þá var okkur sem kynntumst honum náið ljóst að hjartað vai’ framai’ öllu hjá fjölskyldunni. Það var Ijóst af tali hans að fátt gaf honum meiri gleði en að vera með fjölskyldunni í sumarbú- staðnum og gróðursetja. Einnig hafði hann afskaplega mikla ánægju af því að fylgjast með íþróttaiðkun drengj- anna og var greinilega mjög stoltur af bömum sínum. Eins og margir for- eldrar í krefjandi og tímafrekum störfum vildi Símon geta eytt meiri tíma með fjölskyldunni. Því er það sérstakt ánægjuefni að fjölskyldan tók sér óvenjulangt sumarfrí í sumar og fór til Flórída. Þegar Símon kom til baka áttum við langt og persónu- legt samtal um þessa ferð, hvemig hann hafði notið tímans með fjöl- skyldunni og leyft strákunum að ráða hvemig tímanum skyldi varið. Þessi ferð var Símoni mikils virði og hefði verið honum enn meira virði ef hann hefði vitað hve skammt var til næstu ferðar, þeirrar síðustu sem við öll fór- umí. Sorg og söknuður Þuríðar, Vil- hjálms, Sveins Oira og Jóhönnu er mestur og eigum við Anna þá ósk þeim til handa að góðu minningarnar lini þjáningar þeirra. Steinn Logi Bjömsson. Það vora ekki létt spor sem við gengum að morgni mánudagsins 11. desember sl. til að heimsækja sölu- stjórn Flugleiða við Skútuvog. Þarna var stór vinnustaður þar sem ríkti sorg og djúp samúð vegna þess að foringinn var fallinn. Símon Pálsson var staddur í blóma lífsins, svo skyndilega án nokkurs fyrirvara var hann kallaður á brott. A föstudags- kvöld hélt hann jólagleði fyrir starfs- fólk sitt, geislandi af krafti og vígreif- ur til að takast á við komandi verkefni með sínu fólki, sem hann treysti og sem treysti og bar virðingu fyrir hon- um á móti. Hann sem kom fyrstur á morgnana og fór ekki heim fyrr en verki var lokið. Hugurinn leitaði skjótt til íjölskyldunnar, eiginkon- unnar, ungra sona, uppkominnar dóttur, aldraðra foreldra og stórrar fjölskyldu. Okkar missir var aðeins lítill hluti af þeirra. Kynni okkar hófust upp úr 1970, unnum við þá stutt saman en héldum okkur báðir við ferðaþjónustu og vor- um aldrei langt hvor frá öðram. Um áramótin 1983/84 ákváðu Flugleiðfr að senda okkur báða í útlegð, hann vestur um haf en mig til Noregs. Við það fóra leiðir okkar að liggja oftai’ saman, sambandið að styrkjast og vinátta að myndast. Svo höguðu ör- lögin því þannig að þau hjónin tóku við búi eftir okkur hjónin í Oslo 1987 og síðan líka í London 1992. Við þetta mynduðust traust bönd bæði okkar í millum og milli fjölskyldna okkar. Af þessu öllu tel ég að orðið hafi mjög gott samstarf, samráð, virðing og ekki síst góð en talsvert sérstök vin- átta. Að setjast niður og kveðja sér yngri vin og samherja er sem betur fer ekki tíður viðburður. Persónuleiki Símons verður mörgum minnisstæð- m-. Hann var ekki allra, en vai’ vinur vina sinna og traustur þeim sem hann stjórnaði og var í viðskiptum við. Hann gat verið stuttur í svöram og nokkuð snefsinn, en þeir sem honum kynntust og unnu með honum lærðu á mannkostina, eljusemina og dugn- aðinn. Lognmolla og droll var ekki til í fari hans. Hann var fljótur að sjá hvað skipti máli, það þurfti enginn að SJÁNÆSTU SÍÐU t Ástkær faðir okkar, PÁLL BJÖRGVIN ODDSSON byggingameistari, Vesturgötu 7, lést miðvikudaginn 20. desember. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Oddný Þorgerður Pálsdóttir, Eiín Pálsdóttir, Jón Pálsson. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, KJARTAN GÍSLASON málarameistari, Jöklafold 12, sem lést föstudaginn 15. desember, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju föstudaginn 22. desember kl. 15.00. Sigríður Pálsdóttir, Stefanía Kjartansdóttir, Margrét L. Kjartansdóttir, Jóhannes Þ. lngvarsson og barnabörn. + Hjartans þakkir til ailra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, STEFANÍU ELÍNAR HINRIKSDÓTTUR, frá Hellissandi. Guð veri með ykkur. Albert G. Guðlaugsson, Guðlaugur J. Albertsson, Jóhanna B. Hallbergsdóttir, Lára Karólína Albertsdóttir, Þröstur Heiðar, Þröstur Albertsson, Sóley Jónsdóttir, Hinrik B. Karlsson, Ingunn K. Aradóttir og barnabörn. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur hlýhug og vináttu við andlát og útför AUÐUNS KR. KARLSSONAR, Ásabraut 2, Keflavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðis- stofnunar Suðurnesja og starfsfólks Land- sþítala Fossvogi. Guð blessi ykkur öll. María Auðunsdóttir, Hallgrímur Kristmundsson, Sigríður Auðunsdóttir, Reynald Þorvaldsson, Helga Auðunsdóttir, Garðar Brynjólfsson, barnabörn , barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.