Morgunblaðið - 21.12.2000, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 21.12.2000, Qupperneq 60
MORGUNBLAÐIÐ 60 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000 MINNINGAR SIGURRÓS KRIS TJÁNSDÓTTIR + Kristín Sigurrós Kristjánsdóttir fæddist á Leirubakka í Landssveit 17. mars 1922. Hún lést á dval- arheimilinu Ási í Hveragerði 12. des- ember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Sólveig Sigurð- ardóttir frá Leiru- bakka og Kristján bóndi í Vatnsdalshól- um í Austur-Húna- vatnssýslu. Sigurrós ólst upp hjá móður sinni, fyrst á Leiru- bakka síðan í Efra-Langholti 2 í Hrunamannahreppi. Síðustu 40 árin hefur hún búið í Hveragerði. Synir Sigurrósar eru: 1) Sigurð- ur Rúnar Andrésson, Haga 2, f. 1948, kvæntur Jóhönnu Haraldsdóttur, f. 1949. Börn þeirra eru Jóhann Þór, f.1970, Haraldur, f. 1971, Sverrir, f.1983, og Anna Margrét, f. 1987. 2) Sólberg Viðarsson, Laugum, f. 1957, kvæntur Júlíu Vals- dóttur. Börn þeirra eru Júlía Rós, f. 1996, og Sara Dís, f. 1998. Utfór Sigurrósar fer fram frá Hveragerðiskirkju f dag og hefst athöfnin klukkan 13. Jarðsett verður í Hruna. í dag er lögð til hinstu hvílu vin- kona okkar, Sigurrós Kristjánsdótt- ir. I fjörutíu ár kom hún svo að segja í hverri viku að heimsækja mömmu. Þær voru sveitungar, hreppamenn, voru sín á hvoru árinu og þekktust frá þvi þær voru stelpur. Rósa sleit barnsskónum í Hruna- mannahreppnum, hann var sveitin hgíinar og við hann batt hún ævi- langa tryggð. Hún var glaðsinna, hláturmild og stálminnug. Hún gat farið með heilu samtölin frá því hún var barn, lausa- vísur kunni hún fjölmargar og hafði á hraðbergi. Afmælisdagar voru hennar sérgrein, hvort sem það voru okkar systkinanna, bama okkar eða annarra samferðamanna. Rósa fylgdist af áhuga og væntumþykju með uppvexti okkar og lét sér æv- inlega mjög annt um velferð okkar. Hún bjó í Hveragerði í 40 ár, vann lengi á Hótelinu þar hjá Sigríði og Einki sem hún minntist alltaf með hlýju. Síðan bjó hún að Asi í Hvera- gerði til æviloka. Þar eignaðist hún vini sem reyndust henni vel. í dag verður hún jarðsett í Hruna, hún er komin aftur í sveitina sína. Við kveðjum Rósu með virðingu og þakklæti fyrir órofa tryggð og elsku- semi sem hún sýndi okkur og fjöl- skyldum okkar alla tíð og sendum samúðarkveðjur til allra sem eiga um sárt að binda vegna fráfalls hennar. Systkinin frá Flúðum, Selfossi. SVEINN SIGURSTEINSSON + Sveinn Sigur- steinsson var fæddur á Brakanda í Hörgárdal hinn 4. apríl 1920. Hann var sonur hjónanna Lilju Sveinsdóttur og Jóns Sigursteins Júlíus- sonar. Bræður Sveins eru Árni og Eiríkur sem er lát- inn. Sveinn kvæntist Gyðu Eyjólfsdóttur £. 1946 en þau slitu samvistum. Þau eign- uðust fimm börn: Lilju, f. 1945, d. 1969; stúlku er lést í fæðingu; Kristin Ómar, f. 1949, kvæntur Láru Sighvatsdótt- ur, þau eiga tvö börn, Lilju Björk og Sighvat Ómar; Eyjólf Her- mann, f. 1952, kvæntur Aldisi Kristinsdóttur, þau eiga tvo syni, Kristin Aðalstein og Davíð Fann- ar; Bergdísi, f. 1953, gift Þorbirni Sveinssyni, þeirra börn eru Sveinn Hermann, Aldis, Sædís Gyða og Liijar Már. Langafabörnin eru fimm. Sveinn kvæntist seinni konu sinni, Katrínu Páls- dóttur 1964, þau voru bamlaus. Sveinn ólst upp á Brakanda en fluttist svo til Akureyrar þar sem hann lauk gagnfræðaprófi. Hann fluttist síðar til Reykjavíkur og vann um margra ára skeið hjá varnar- liðinu í Keflavík. Árið 1964 keypti Sveinn verslunina Árnes við Leifs- götu sem hann rak fram á tíunda áratuginn en þá hætti hann rekstri vegna aldurs. títför Sveins fer fram frá Hall- grímskirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 13.30. Vetrarsólstöður. Dagurinn dimmur en ber þó með sér von um bjartari tíma. í dag verður afi lagður til hinstu hvílu hér á jörð. Ég kveð með sorg í hjarta en þó von um endurfund. ff- Þegar ég var lítil átti afi Sveinn búð og í augum lítillar stelpu var það eitt- hvað ótrúlega ævintýralegt. Hillumar í litlu búðinni voru þéttskipaðar alls kyns forvitnilegum hlutum sem gam- Formáli minn- ingargreina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- ,: um. an var að skoða og ekki varð ánægjan minni þegar maður fékk að velja sér nammi. Þegar maður er lítill heldur maður að afar séu bara góðir menn sem hafi þann eina tilgang að þykja vænt um mann og gefa góðar gjafir. Þegar maður eldist lærir maður hins vegar að lífið _ snýst ekki bara um mann sjálfan. Á unglingsárum var ég svo lánsöm að fá að vinna part úr sumri í litlu búðinni með afa og þá kynntumst við á annan hátt en áður. Það var gaman að ræða við hann og hann sýndi því sem við unga fólkið tókum okkur fyrir hendur mikinn áhuga. Ég á margar góðar minningar um afa og mun geyma þær í hjarta mínu. í seinni tíð hringdi hann oft til mín til að vita hvemig lífið gengi hjá elstu afastelpunni og ég mun sakna þess að heyra ekki frá honum. Ég veit að það hefur verið tekið vel á móti þér afi minn og þú unir þér í ei- lífðar paradís þar til við hittumst á ný. Takk fyrir samíylgdina. Elsku Kata mín, þú hefur misst mikið. Megi drottinn sefa sorg þína og fylla tómarúmið sem myndast hef- ur. Guð veri með okkur öllum. Lilja Björk. ÁRSÓL KLARA GUÐMUNDSDÓTTIR + Ársól Klara Guð- mundsdóttir fæddist í Hellukoti í Vatnsleysustrandar- hreppi 26. nóvember 1908. Hún andaðist á Hrafnistu í Reykjavík 17. des- ember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Guðrún Helga- dóttir, f. 14. nóvem- ber 1884, d. 12. mars 1917, og Guð- mundur Ólafsson, f. 10. september 1885, d. 7. janúar 1947. Alsystkini Klöru voru: Regin- baldur, f. 21. október 1909, d. 15. maí 1928; Helgi Ragnar Haf- berg, f. 17. nóvember 1910, d. 10. mars 1922; Ólafur, f. 12. maí 1912, d. 5. desember 1997 og Guðjón, f. 18. júní 1914, d. 6. ágúst 2000. Hálfsystur Klöru samfeðra eru Guðrún, f. 13. ágúst 1921; Rósa Guðrún, f. 8. október 1923, d. 10. september 1984 og Guðfinna Gyða, f. 13. febrúar 1925. Klara ólst upp frá unga aldri hjá föðurfor- eldrum sínum, Ólafi Jónssyni og Guðfinnu Guðmundsdóttur, fyrst á Stokkseyri en sfðar í Hafnarfirði. Klara giftist 6. október 1928 Svavari Sigfínnssyni, f. 29. nóvember 1906. Þau skildu. Þeirra börn eru Regína Fjóla, f. 29. maí 1929 og Garðar, f. 21. október 1930. Klara giftist aftur 1. ágúst 1944 Lúðvík Kristjáns- syni, f. 25. nóvember 1894, d. 27. ágúst 1971. Stjúpdóttir Klöru af síðara hjónabandi er Soffía Lúð- víksdóttir Taylor, f. 8. júní 1939. títför Klöru fer fram frá Foss- vogskirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 15. Elsku besta amma, ég vil kveðja þig með nokkrum orðum: Þú varst glæsileg amma, þú varst áhugasöm, þú varst yndisleg amraa, þú varst alltaf svo sönn, þú varst amma mín langa, þú varst alltaf svo góð. Nú er þinni göngu lokið. Þín, Þórdís. Elsku amma mín, nú ertu dáin. Amma var yndisleg manneskja sem gott var að leita til, hvort sem ég var svöng, lyklalaus eða bara eitthvað eirðarlaus. Amma bjó ekki nema nokkur hús írá mér og því var svo auðvelt að rölta yfir til hennar eftir skóla og fá hjá henni hrökkbrauð og haíragraut, sem hún vissi að mér þótti mjög góður, og svo uppáhaldið mitt, röndóttan brjóstsykur, í eftir- rétt. Eins voru það ekki svo fá skipt- in sem ég bankaði upp á hjá henni ömmu til þess að fá aukalykilinn að húsinu heima, þar sem ég var gjörn á það að læsa mig úti. Kannski var ég líka ögn kærulausari með lyklamálin því ég vissi að ekki var langt að fara eftir aukalykli. Amma gat nú oft ekki varist hlátri þegar ég mætti og sagði að ég væri lokuð úti, hvort ég gæti nokkuð fengið lykilinn, sérstaklega þegar ég hafði gleymt að koma með aukalykilinn til baka og var nú búin að læsa báða lyklana inni. En þá var hún snögg að bjóða mér inn og gefa mér að borða og meðan við biðum eftir því að einhver kæmi heim til að hleypa mér inn röltum við út í búð eða upp á bókasafn. Við amma vor- um báðar miklir lestrarhestar og fórum við margar ferðirnar saman upp á safn til að ná okkur í lestr- arefni og eyddum drjúgum tíma í það vandaverk að velja okkur bæk- ur, því að við létum ekki bjóða okkur hvað sem var í þeim efnum. Eitt er mér sérstaklega minnis- stætt. Það var þegar ég var sem mest hjá henni í pössun og hafði enn ekki hafið skólagöngu. Þá gaf hún mér stílabók merkta mér og í hana lét hún mig teikna og æfa mig í því að skrifa stafina. Mörgum árum seinna kallað hún svo í mig og sagðist þurfa að sýna mér svolítið. Hún fór í kistuna sem geymd var frammi á gangi (innihald þessarar kistu vakti alltaf mikla forvitni mína þegar ég var yngri) og leitaði þar í smástund þangað til hún fann gamla stílabók og rétti mér. Þarna var þá komin gamla stílabókin mín, með fyndnum og stundum svolítið óskiljanlegum myndum og stöfum. Mér þótti mjög vænt um að hún skyldi hafa geymt hana öll þessi ár. Alltaf fylgdist amma vel með mér og hvað ég hafði fyrir stafni og alltaf hafði hún miklar áhyggjur af því hvernig mér liði. Ég man að hún sagði alltaf að heilsa hennai- sjálfrar væri ekki áhyggjuefni því að hún værir orðin svo gömul, en það væri verra með mig sem ætti allt lífið framundan. Það væri því jafngott að læknarnir færu að gera eitthvað í mínum málum. Þannig hafði hún æf- inlega meiri áhyggjur af öðrum en sjálfri sér. Kallið er komið, kominernú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimirkveðja, vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margterhéraðþakka. Guðisé lof fyrir liðna tíð. Margseraðminnast, margseraðsakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt Gekkst þú með Guði, Guð þérnúfylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Elsku amma mín, ég er þakklát fyrir að hafa fengið að vera hluti af tilveru þinni til dauðadags. Nú ertu dáin en ekki farin því ég mun ætíð minnast þín. Þín Þórhildur. + Ólafur Eyjólfsson fæddist 22. sept- ember 1914. Hann lést á hjúkrunar- heimilinu Uppsölum á Fáskrúðsfirði 10. desember siðastlið- inn. Foreldrar hans voru hjónin Eyjólfur Ólafsson frá Orms- stöðum í Breiðdal og Jónína Guðlaug Er- lendsdóttir frá Fá- skrúðsfirði. Hann var þriðji elstur sex systkina. Elstur var Sverrir, þá Kristín, Sigrún, Konráð og yngstur Hjalti, sem enn er á lífí. Ólafur kvæntist 1942 Helgu Kjartansdóttur frá Fáskrúðsfirði sem einnig er látin og eignuðust þau fimm börn: 1) Jón Alfreð, f. 1943, ógiftur og barnlaus. 2) Eyj- ólfur, f. 1944, sambýliskona hans er Vilma Brazaite og eiga þau einn son, Ólaf Andrius. Eyjólfur á þrjár dætur og sjö barnabörn frá fyrra hjónabandi með Björgu Ás- geirsdóttur. Dætumar eru Hug- Góður vinur er genginn, félagi tryggur er lagður upp í þá fór sem all- ir eiga vísa. Til baka leitar hugur um hartnær hálfa öld, til löngu liðinna stunda sem Ijóma bregður á í und- arlega ljóslifandi minning. Þar bregð- ur honum Ólafi mínum æði oft fyrir og þó ómar hreimfogur rödd hans enn frekar fyrir innri eyrum, því þama á kirkjuloftinu á Búðum áttum við þá saman marga indæla stund. Þar var hinn þaulvani söngmaður, sem kunni listavel rödd í hvaða sálmi sem var, að rún Harpa, gift Daníel Eyjólfssyni. Þeirra börn em: Ey- björg Helga og Björgvin Logi. Ey- rún Björk, gift Jens Sigurðssyni. Þeirra börn eru Jenný Björk, Erla Björg, Sindri Freyr og Sig- urður Brynjar. Kristbjörg Helga, sambýlismaður hennar er Gylfi Am- ar Isleifsson og þeirra sonur Krist- ófer Breki. 3) Þor- björg, f. 1950, gift Ingabimi Krist- inssyni. Þeirra synir eru: Helgi Ólafur og Kristbjörn. 4) Kjartan, f. 1953, kvæntur Elinu Ósk Ósk- arsdóttur. Þau eiga einn son, Heimi Þór. 5) Elísabet, f. 1956, gift Bimi Aðalsteinssyni. Þeirra börn eru Jakobína, Ólafur og Dagur. Unnusti Jakobínu er Þor- geir Einar Sigurðsson. títför Ólafs Eyjólfssonar fór fram laugardaginn 16. desember sfðastliðinn. reyna að kenna hinum unga og óreynda leyndaróma þeirra listar, hlýr og einlægur, glaður og gaman- samur með tónlistarinnar gullna galdur í blóðinu, lagviss svo af bar. Glettnin grómlaus og hnyttnar at- hugasemdir milli sálma léttu okkur lundina og stundum varð hún Elin- borg okkar að minna okkur hógvær- lega á stað og stund. Ljúft er þessa bergmáls af liðnum ómum að minnast nú við leiðarlok. Seinna löngum áttum við leið sam- an á hinum pólitíska vettvangi, þaðan sem svo margra vaskra vina er verð- ugt að minnast en á Fáskrúðsfirði var óvenju harðsnúin sveit sósíalista sem fléttuðu fagurlega saman draum hug- sjónar og dagsins virkileika. Það yljar huganum að hugsa til fylgdar þessara mætu félaga og máttugrar málafylgju þeiiTa. Þar voru engir veifiskatal• á ferð og atfylgi þeirra í kosningum ein- stakt. Ólafur minn var einn þeirra sem þar fóru fremst, gjörhugull og glögg- m-, næmur á allar hræringai- sam- félagsins á Fáskrúðsfirði og þess vegna var dýrmætt að leita í smiðju hans um hollráð góð, eins og í söngn- um forðum fann hann hinn rétta_ tón og honum gott að hlýða. Honum Ólafi á ég hlýja þökk að gjalda fyrir gefandi stundir áranna, fyrir grómlausa vin- áttu og samfylgd, fyrir að vera æv- inlega heill og sannur í hverri gjörð. Ólaíúr var í hvívetna hinn gjörvuleg- asti, vænn var hann verkmaður, greiðviknin góð honum í blóð borin og svo átti hann þessa farsælu fylgd tón- listarinnar sem auðgaði allt hans líf. Hann var gæfumaður, átti fylgd ljóm- andi lífsförunautar og bamalán höfðu þau hjón en sú mæta kona hans Helga kvaddi fyrir nokkrum árum. Ég hverf í huganum yfir á kirkjuloftið á Búðum og nem tæra tóna fallegrar raddar hans, hverf til átaka áður á velli þjóð- málanna þar sem hvatning hans ein- læg og sönn hljómar í muna mínum. Þar fór um veg vænn drengur verka góðra, þar sem samvizkusemi og trú- mennska héldust í hendur. Bömum hans og aðstandendum öðmm sendum við Hanna hlýjar sam- úðarkveðjur. í aðdraganda jólanna á aðventunni er lagt upp í hinztu veg- ferð, leiðin á vit hins ókunna greiðfar- in góðum dreng þar sem vonglöð vissa hans hlýtur uppfylling sína. Blessuð sé hin bjarta minning Ólafs Eyjólfssonar. Helgi Seljan. OLAFUR EYJÓLFSSON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.