Morgunblaðið - 21.12.2000, Side 64

Morgunblaðið - 21.12.2000, Side 64
4 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Hvað eru kr. 76.841.000.000 á milli vina? SAGT er að eitt sinn hafi menn í borgarstjóm við umræðu um fjár- hagsáaetlun rifist mikið um það hvort gera þyrfti við þak á einhverri véla- geymslu, sem væri farið að leka. Eftir uyklar umræður féllust menn á að viðgerðin mætti bíða. Svo var margra milljarða fjárhagsáætlun samþykkt umræðulaust. Ekki veit ég hvort sag- an er sönn en góð er hún. Stórar tölur skilur fólk ekki en hins vegar skilja allir íslendingar lek þök. Framhaldsskdlakennarar og lífeyrisrétturinn Nú stendur yfir verkfall fram- haldsskólakennara. Eitt atriði, sem alltaf gleymist í því sambandi eru líf- eyrisréttindi opinberra starfsmanna. Til þess að varpa ljósi á það atriði skulum við taka dæmi af tilboði Verslunarskólans um rúmlega tvö- földun dagvinnulauna án þess að heildarlaunin hækki sem því nemur. StíSnarar sem voru við störf í árslok 1996 og eiga rétt í B-deild Lífeyris- sjóðs starfsmanna ríkisins fá lífeyr- isrétt, sem miðast við dagvinnulaun eftirmanns síns. Þegar dagvinnu- launin rúmlega tvöfaldast tvöfaldast jafnframt væntanlegur lífeyrir þeirra. Ennfremur tvöfaldast lífeyr- isréttur þeirra fyrrverandi kennara Verslunarskólans, sem eru famir að taka lífeyri. Lífeyrir þeirra tvöfald- ast. Þá tvöfaldast einnig lífeyrisrétt- ur þeirra, sem eru löngu hættir störf- um hjá Verslunarskólanum og eru að vinna úti í bæ. Þannig má segja að þeir séu enn á launaskrá hjá Versl- unarskólanum því allur þessi lífeyr- isréttur er greiddur af Verslunar- skólanum, sem sendir reikninginn til ríkissjóðs, sem sendir reikninginn áfram til okkar ailra, skattgreiðenda. Það erum jú við sem borgum ballið. Hver ríkisstarfsmaður (starfandi, lífeyrisþegi og hættur störfum) á að meðaltali réttindi að verðmæti rúmar 6 mkr. Því má gera ráð fyrir að fyrir samninga sé lífeyrisréttur hvers kennara Verslunarskólans að verð- mæti minnst 7 mkr. Hann tvöfaldast að verðmæti og tilboðið kostar ríkið því um 7 mkr. (Hálft íbúðarverð!) Allt eru þetta mjög lauslegar tölur en þó varlega áætlaðar. Aukning lífeyrisréttar síðustu 4 ár 5 h'feyrissjóðir og lífeyrisdeildir njóta beinnar ábyrgðar ríkissjóðs og byggja á eftirmannsreglunni, þ.e. B- deild Lífeyrissjóðs starfsmanna rík- isins, Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræð- inga, Lífeyrissjóðs alþingismanna og Lífeyrissjóðs ráðherra. Með því að skoða reikninga þessara sjóða sést að skuldbinding ríkissjóðs umfram eign- ir sjóðanna hefur á 4 árum, 1997 til 2000, vaxið um 59.186 mkr. Til við- bótar hefur ríkissjóður á síðustu tveimur árum greitt niður þessa skuld ríkis- jóðs um 17.655 mkr. Alls hefur því skuld- bindingin vaxið um 76.841 mkr. á síðustu 4 árum. Hvm-s lags tala er nú það? Sem dæmi um stórar tölur má nefna að allur lífeyrir Tryggingastofn- unar ríkisins er um 15 mUljarðar á ári sem er nokkru minna en skuld- binding ríkissjóðs vegna starfsmanna sinna hefur hækkað. Um 19.500 ríkis- starfsmenn eru starf- andi og eiga réttindi hjá þessum líf- eyrisdeildum. Þegar ríkið hefur samið við þessa starfsmenn sína á undanfomum 4 árum hefur það kost- að 76.841 mkr. eða um 4 mkr. á hvem starfandi ríkisstarfsmann. Aukning skuldbindingarinnar vegna samninga við starfandi ríkisstarfsmenn er góð- ur þriðjungur íbúðarverðs á þessum 4 áram á hvem þeirra. Og eiga þó margir eftir að semja, t.d. framhalds- skólakennarar. Hvers vegna vex lífeyrisrétturinn svona? Árið 1996 var ákveðið að taka upp aðlögunarsamninga við opinbera starfsmenn. Það þýðir að alls konar sposlur voru aflagðar og færðar inn í dagvinnulaunin. Dagvinnulaunin vora færð að raunveralega greiddum launum. Þó að þessi breyting ein sér þýddi ekki launabreytingu breyttist lífeyrisrétturinn umtalsvert. Lífeyr- isrétturinn, sem grandvallast á dag- vinnulaunum eftirmanns, hækkaði eins og dagvinnulaunin en ekki bara fram í tímann heldur líka fyrir öll árin frá því starfsmaðurinn hóf störf og hafði greitt iðgjald til sjóðsins af lág- um dagvinnulaunum. Aðlögunar- samningarnir hafa hækkað dagvinnulaun ríkisstarfsmanna um 50% á 4 áram. Auk þess veitir Líf- eyrissjóður starfs- manna ríkisins, B- deild, á margan hátt miklu betri lífeyrisrétt en almennu lífeyris- sjóðimir. T.d. 2% líf- eyrisrétt fyrir hvert ár í stað 1,65%. Taka líf- eyris hefst við 65 ára aldur í stað 67 ára ald- urs. 95 ára reglan. Hækkun lífeyris eins og dagvinnulaun en ekki eins og verðlag. Eg benti á afleiðingar þessara breytinga á Alþingi í des. 1996 en það Skuldbindingar Kannski má selja Landssímann og bank- ana, segir Pétur H. Blöndal, uppí kröfu opinberra starfsmanna og dygði það fyrir helmingi hennar. var ekki hlustað á það og breytingin samþykkt með 53 atkvæðum gegn 2. Kunna ríkisstarfsmenn að meta lífeyrisréttinn? í umræðunni um kjör ríkisstarfs- manna og samanburð við almennan markað er aldrei minnst á þennan líf- eyrisrétt né þá skuldbindingu og ábyrgð, sem ríkið ber. Væri þó gam- an að vita hvað t.d. framhaldsskóla- kennarar væru tilbúnir að „sætta“ sig við mikla launahækkun gegn því að vera tryggðir t.d. hjá Lífeyrissjóði verslunarmanna eða Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda án ríkisábyrgðar. Það er staðan ef þeir hverfa á hinn rnarg- rómaða almenna markað. Vegna þess, sem að framan hefur komið mætti eflaust bjóða þeim 10% til 20% launahækkun um alla framtíð vegna þessa eina atriðis. Hver borgar brúsann? Ogreidd skuldbinding ríkissjóðs vegna þessara lífeyrissjóða er núna um 176.890 mkr. og hefur vaxið um 76.841 á aðeins 4 áram. Hún mun vaxa enn frekar ef samið verður hefð- bundið við framhaldskólakennara. Þeir era um 2000 og ef hver fær aukin lífeyrisréttindi að verðmæti 7 mkr. kostar það 14 milljarða. Heildarskuldina greiða um 130 þús. skattgreiðendur og er hlutur hvers um 1,4 mkr. Ogreidda skuldin er um 2,5 mkr. á hverja fjögurra manna fjölskyldu. Hvernig ætlunin er að greiða þetta hefur enginn sýnt mér fram á en kannski hafa þing- mennimir 53, sem samþykktu þessi ósköp einhvem aur í handraðanum. Kannski má selja Landssímann og bankana uppí kröfu opinberra starfs- manna og dygði það fyrir helming hennar. Kæmi þá í ljós að þessi fyr- irtæki era ekki í eigu almennings heldur opinberra starfsmanna. Það er ekki gaman að skrifa svona dapurlega grein á jólafostu en það er heldur ekki gaman að standa í verk- falli á þeim tíma né hða fyrir verk- falhð með töpuðu námi. Ekki er held- ur gaman að sjá ógreiddar skuld- bindingar hrannast upp. Mikilvægt er að aðilar líti til algerlega nýrra leiða við lausn á þessari deilu þannig að skattgreiðendur fái miklu meiri menntun fyrir fjármuni sína. Ekki veitir af. Höfundur er alþingismaður. Pétur H. Blöndal Bestajólagjöfín Óskar Bryndís Isfeld Kristjánsdóttir EINS og líklega allir foreldrar grunnskóla- bama vita renna samn- ingar við grunnskóla- kennara út núna um áramótin. Þau nýju og jákvæðu vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið í samningaviðræðum Kennarasambands Is- lands og launanefndar sveitarfélaganna hafa vakið þá von í bijósti okkar foreldra að þess- um aðilum muni takast að semja án sársauka- íúllra átaka - eins og þeirra sem við horfum á varðandi samninga við framhaldsskólakennara. Hér virðast samningsaðilar tala sömu tungu og stefna að sama markmiði; þ.e. betri skóla og árangursríkara skólastarfi. Það sem einkum styður þessa von er sameiginleg stefnuyfirlýsing samn- ingsaðilanna, dagsett 4. desember sl., og birt hefur verið í fjölmiðlum. Þetta mun vera í fyrsta sinn hér á landi sem slík stefnuyfirlýsing er gefin út á meðan kjaraviðræður eru enn í full- FERSKT • FRAMANDI • FRUMLEGT ítalskar, spánskar um gangi. Þama hafa samningsaðilar sest niður og farið yfir málið með því hugarfari að um sameiginlega hags- muni sé að ræða. Þannig kynntu þau Guðrún Ebba Ólafsdóttir, formaður Félags grannskólakennara, og Birgir Bjöm Siguijónsson, formaður launa- nefndar sveitarfélaganna, máhð fyrir okkur foreldram sem sitjum í stjórn og framkvæmdastjóm SAMFOK. í stefnuyfirlýsingunni era birt þau at- riði sem báðir aðilar eru sammála um en einnig lögðu þau Guðrún Ebba og Birgir Bjöm fram hsta yfir þau atriði sem enn á eftir að ná samkomulagi um. Jafnframt sögðu þau að mikil bjartsýni ríkti um að samkomulag myndi nást og að samningar yrðu jafnvel í höfn fyrir áramót. Það von- um við foreldrar svo sannarlega enda væri það besta jólgjöfin sem hægt væri að færa okkur öUum. Foreldrar hafa fengið að fylgjast með Auk þess að birta stefnuyfirlýs- inguna opinberlega hafa samningsað- ilar gert sér far um að kynna fulltrú- um foreldra þær áherslur sem hvor um sig vili leggja í þessum viðræðum. Að undanfómu hafa foreldrar al- mennt fengið skammir í ýmsum fjöl- miðlum fyrir að hafa lítið látið til sín heyra varðandi kjarabaráttu kenn- ara. Hvað varðar okkur fulltrúa for- eldra grannskólabama í Reykjavík þá er það að segja að snemma í haust fóram við á fund borgarstjóra og af- hentum formlega bréf þar sem við minntum á að kjarasamningar myndu renna út um áramótin og hvöttum samningsaðila til að hefja viðræður þegar í stað. Borgarstjóri fræddi okk- ur þá um að þegar væra hafnir óform- legir fundir. Einnig kom fram að bæði foreldrar og borgarstjóri voru sam- mála um að komandi samningar yrðu að endurspegla vilja beggja aðila til að auka sveigjanleika í skólastarfinu. Skömmu síðar óskuðu formaður og varaformaður Félags grannskóla- kennara, þau Guðrún Ebba Ólafs- dóttir og Finnbogi Sigurðsson, eftir Kennarar Ef kennarar eru tilbúnir til breytinga sem leiða munu til þróunar í skólastarfínu þá telja Oskar Isfeld og Bryndís Kristjánsdóttir að for- eldrar séu reiðubúnir að styðja kröfur þeirra. fundi með stjóm SAMFOK þar sem þau skýrðu sínar áherslur og kröfur. Jafnframt hlustuðu þau á hugmyndir og óskir sem foreldrar hafa um skóla- starfið í náinni framtíð en þar er rauði þráðurinn sá að skólastarf verði sam- bærilegt við það sem gerist í ná- grannalöndunum og jafnframt að skóhnn starfi þannig að börnum hði þar vel. Bam sem hður illa lærir nefnilega ekki. Fulltrúar kennara sögðu að þeir gerðu sér fulla grein fyrir því að skólastarfið þyrfti að breytast og að það væri hluti þess sem rætt yrði í samningaviðræðunum. Strax í upphafi vetrar virtist þvi góður vilji hjá báðum aðilum. Frá þessum fundum hefur SAMFOK skýrt fulltrúum foreldra í öllum grannskóium Reykjavíkur, þannig að þó að foreldrar grannskólabama hafi ekki verið að tjá sig í fjölmiðlum um samningamál kennara hafa þeir vissulega verið að fjalla um þessi mál á öðram vettvangi. Nú siðast óskuðu Guðrún Ebba og Birgir Bjöm eftir að hitta stjóm SAMFOK til að kynna stefnuyfirlýs- inguna og fara yfir stöðuna. Mörg göð markmið Hvað stefnuyfirlýsinguna varðar þá er ánægjulegt að sjá þar strax í upphafi að samningsaðilar telja að virkt samstarf foreldra og skóla sé ein af forsendum árangursríks skóla- starfs. Þama er gert ráð fyrir að for- eldrar fái fræðslu til að þeir séu betur í stakk búnir til að sinna þeim skyld- um og þeirri ábyrgð sem þeir bera á skólagöngu barna sinna. í yfirlýsingunni kemur einnig fram að vinnutímaskilgreiningu kennara verður breytt. Hvorki við sem eram í stjóm SAMFOK né foreldrar al- mennt skiljum til hhtar vinnutíma- skilgreiningu kennara en í stuttu máli er hér átt við að með nýju samning- unum verði hægt að endurskoða og breyta skipulagi skólastarfsins. Að vísu kom fram í máli Birgis Bjöms að hann sér fyrir sér að þetta muni ger- ast á mörgum áram. Við minntum hann þá á að skólaganga bams á hveijum tíma væri afar verðmæt og að fyrirhugaðar umbætur í framtíð- inni gögnuðust ekki bömum sem væra í skólanum núna - þ.e. við for- eldrar teljum að hraða eigi öllum um- bótum sem leiða til þess að grann- skólinn á Islandi verði á allan hátt sambærilegur við það sem best gerist í nágrannalöndunum. Foreldrar era ánægðir með þá áherslu sem þama er lögð á velferð nemenda en það er ein- mitt eitt af þeim atriðum sem við for- eldrar höfum viljað leggja mun meiri rækt við. Styrkja á samband kennara og nemenda enn frekar, sem kallar á skýrar samskiptareglur milli þeirra og milli foreldra. Góðar óskir til handa samningsaðilum Mörg fleiri ágæt langtímamarkmið era þama nefnd sem báðir samings- aðiiar era sammála um. Þess ber þó að geta að á síðasta spretti samninga- viðræðnanna átti eftir að skilgreina nánar útfærslu ýmissa þeirra og vona foreldrar að það takist giftusamlega. Foreldrar gera sér fulla grein fyrir því að forsenda þess að hæfir kenn- arar fáist til að kenna bömunum okk- ar er að kennarastarfið sé eftirsókn- arvert, sem m.a. þýðir að kennarar verða að fá greidd sömu laun og sam- bærilegar starfsstéttir fá, þ.e þeir sem era með áþekka menntun og ábyrgð í starfi. Þegar Ijóst er að kennarar eru tilbúnir til ýmissa breytinga sem leiða munu til þróunar í skólastarfinu teijum við að allir for- eldrar séu reiðubúnir að styðja þá í launakröfum þeirra. Foreldrar í stjóm SAMFOK óska samningsaðil- um farsældar í starfi og ánægjulegs nýsárs. Óskar er formaður SAMFOK. Bryndfs er varaformaður SAMFOK.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.