Morgunblaðið - 21.12.2000, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ
_________________________FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000 65
UMRÆÐAN
Siglingastofnun sveik
TRILLUKARLINN var kóngur í
ríki sínu einn á báti, jafnvel úti í
hafsauga, talandi við fuglinn og
sjálfan sig, og ef eitthvað alvarlegt
skeði, þá við þann sem
öllu ræður. Hann reri
til fiskjar þegar veður-
útlit og sjólag var hon-
um að skapi og bað
engan leyfis. Trillu-
karlinn var sjálfstæð-
astur allra sjálfstæðra
manna og ekkert frelsi
var þessu frelsi frjáls-
ara. Hann var og er
stoltur í smæð sinni og
enginn þolir verr yfir-
gang og ofbeldi.
Draugur sá er vak-
inn var upp og nefnist
kvótakerfi sjávarút-
vegsins ríður húsum
landsbyggðarinnar og
hefur fengið að brjóta
þar niður byggðir og fólk afskipta-
laust, hann er einnig að brjóta niður
lífsmáta og hugsjón trillukarlsins.
Ef frammámenn opinberrar þjón-
ustustofnunar telja að þessa menn
eigi að umgangast með svipuna á
lofti, þá er það skaðleg skammsýni.
Hroki og valdniðsla er slíkt eitur að
áhrif þeirra eru varanleg.
Ég segi þetta að gefnu tilefni
vegna samskipta við Siglingastofn-
un íslands á liðnu sumri. Ég vil þó
strax taka fram að ég tel langt yfir
90% af starfsfólki stofnunarinnar in-
dælt úrvalsfólk og reyndar hefði ég
ekki trúað svona framkomu upp á
nokkurn þar að óreyndu.
Mál þetta snerist um það að koma
báti til veiða í svokölluðu 23ja daga
sóknarkerfi. Það er leyfi til að sækja
sjó með handfærum í 23 daga af 365
dögum ársins og þetta er næstum
það eina sem eftir er af frelsi trillu-
karlsins, þótt aldrei hafi þorskstofn-
inum staðið ógn af útgerðinni hans.
Samskipti við Siglingastofnun
varðandi þennan bát hófust um
mánaðamótin maí-júní, en í byrjun
júlí þegar allt virtist strand bað eig-
andi bátsins mig að koma að málinu
fyrir sig, þar sem hann var við sjó-
róðra vestur á fjörðum. Ég ætla
ekki að rekja hér alla þá þvælu sem
þetta mál fór í, en 17. júlí var gert
samkomulag á fundi í Siglingastofn-
un um það hvernig ljúka skyldi mál-
inu.
Samkomulagið var þannig að bát-
urinn kæmi inn á skipaskrá sem ný-
smíði að vissum skilyrðum uppfyllt-
um. Fund þennan sátu Haraldur
Árni Haraldsson, eigandi bátsins,
Öm Pálsson, framkvæmdastjóri LS,
og undirritaður og af hálfu Siglinga-
stofnunar þeir Páll Hjartarson og
lögfræðingur stofnunarinnar, Hlyn-
ur Skúli Auðunsson.
Strax var hafist handa
um framkvæmd sam-
komulagsins og það
allt unnið eftir fyrir-
mælum stofnunarinnar
og undir eftirliti skoð-
unarmanna.
1. ágúst var bátur-
inn fullfrágenginn og
skoðaður í Sandgerðis-
höfn og merktur sem
nýsmíði. Sótt var um
frest á hluta raflagna
fram til 1. september.
Beðið var um flutn-
ingsleyfi fyrir bátinn
til Flateyrar.
Um morguninn 2.
ágúst, þegar taka átti
flutningsleyfið og halda af stað,
hafði heldur betur skipt um vindátt
í Siglingastofnun. Starfsmenn stofn-
unarinnar höfðu fengið vinnuplagg,
undirskrifað af Tómasi Sigurðssyni,
dagsett 2. ágúst, með vinnureglum
um endurbyggingu báta. þar stóð að
ekki kæmi til álita hvort leyft yrði
að smíða bátinn, sem þá lá fullfrá-
genginn og skoðaður í Sandgerð-
ishöfn, og liggur enn, fyrr en búið
væri að smíða annan bát á undan
honum sem marga mánuði hefði
tekið. Þar með var búið að svíkja
samkomulagið frá 17. júlí og hafa af
eigandanum róðradagana 23, sem
ekki var hægt að flytja á milli ára og
urðu því að nást fyrir 1. september.
Þetta þýddi margra milljóna tap
miðað við veiði á Vestfjarðamiðum.
Kvóti
Kvótadraugurinn, segír
Haraldur Jóhannsson,
er að brjóta niður
lífsmáta og hugsjón
trillukarlsins.
Einnig var Siglingastofnun búin að
láta vinna við bátinn eftir samkomu-
laginu sem gert var fyrir æma upp-
hæð, sem nú kom engum að gagni.
Ég fór strax á skrifstofuna til
þessa Tómasar og spurði hvað væri
um að vera, hvort svíkja ætti sam-
komulagið sem gert var. Hann sagði
þetta vinnureglur í stofnuninni. Ég
vildi þá fá að vita af hverju þessar
vinnureglur hefðu ekki legið fyrir
hálfum mánuði áður, þegar sam-
komulagið var gert. Svarið var,
„þetta eru vinnureglur hér“. Ég
spurði hvort þessar reglur styddust
við einhver lög eða reglugerðir og
svarið var það sama, „þetta em
vinnureglur hér“. Ég sagði þá að
hann gerði ekkert annað en stanga
sama steininn, en þá komu greini-
lega aðalrök hans í málinu og þau
voru „út með þig, komdu þér út“ og
þannig var málið afgreitt. Á þetta
hlustaði skoðunarmaður sem hann
kallaði inn á skrifstofuna meðan ég
var þar. Ekki vissi ég við hvað þessi
Tómas Sigurðsson starfaði þarna á
stofnuninni - þekkti hann ekki - en
taldi víst að á skipasviði hlyti hann
að vera, þar sem hann skrifaði undir
vinnureglur um bátasmíði. En
seinna um daginn var ég látinn vita
að hann væri á vitasviði og þá fór ég
líka að skilja þetta betur því mað-
urinn virtist greinilega vera á milli
vita og ég get alveg látið hann vita,
þótt aðrir ættu frekar að láta hann
vita, að hann er vita vonlaus í þeim
málum sem komin eru frá Siglinga-
málastofnun og það ætti hann best
sjálfur að vita.
Aura urðu örlög þín
Siglingamálastofnun
Enginn hjá Siglingastofnun, sem
kom nærri þessu máli, lét að því
liggja að fyrirmæli um þessa af-
greiðslu málsins væni komin frá al-
mættinu, eða einhverjum sem teldi
sig búa við réttlætisveginn þangað
upg.
Ég varð fyrir miklum vonbrigðum
með Pál Hjartarson. Þótt hann
héldi fram ýmsu sem hann gat ekki
staðið fastur á, þá hvarflaði ekki að
mér að honum væri ekki treystandi.
En því miður, hann sveik samkomu-
Haraldur
Jóhannsson
Notaleg stæði í sex bílahúsum bíða þín í jólaumferðinni
Bergstaðir
A homi Bergstaðastrætis
og Skólavörðustígs.154 stæði
lagið frá 17. júlí, samt vil ég ekki
trúa því að það hafi hann gert með
gleði.
Lögfræðingur Siglingastofnunar,
Hlynur Skúli Auðunsson, stóð
við samkomulagið sem gert var 17.
júlí. Það verður að teljast mjög
slæmt og vonandi að þessi ungi og
geðugi maður skilji ekki eftir sig
svona gjörninga, sem vörður inn í
framtíðina.
I því eina samtali sem ég átti við
Hermann Guðjónsson, forstjóra
Siglingastofnunar, fékk ég ekkert
bitastætt varðandi þetta mál. Mig
minnir að hann segði hvert svið inn-
an stofnunarinnar hafa sjálfstæða
afgreiðslu mála. Ekki veit ég hvort
allir eru því sammála og vil ekki
trúa að í þeirri stofnun dansi h(?Á
uðið eftir limunum. En ég vil benda
þessum glaðlega manni á að hann
leysir ekki þetta mál með því að
svara ekki þeim bréfum sem eigandi
þessa umrædda báts hefur sent
Siglingastofnun, fyrir vikum og
mánuðum. Bótaskyldan hverfur
ekki á þann hátt.
Að lokum vil ég taka fram að það
er greinilega verkefni vitasviðs Sigl-
ingastofnunar að byggja vita á
skerjum þeirra mannlegu samskipta
sem Tómas Sigurðsson strandaði á
2. ágúst sl.
Höfundur er trillukarl.
Gervijóiatré
með fæti 09
2.995,-
OPIDTIL
0LLKV0LD
Full verslun
af frábærum
jólagjöfum
M
METRO
Skeifan 7 • Sfmi 525 0800