Morgunblaðið - 21.12.2000, Qupperneq 75
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
6 ára börn í Fellaskóla leika á blokkflauturnar sínar í tónlistartíma sem
þau sækja eftir að grunnskólanum lýkur á daginn.
Jólatónleikar
Tónskóla Hörpunnar
TÓNSKÓLI Hörpunnar hélt jóla-
tónleika sína um sfðustu helgi í
Grafarvogskirkju. Skólinn hóf
starfsemi haustið 1999 og fjölgar
nemendum jafnt og þétt í skól-
anum. I haust stunduðu 68 nem-
endur nám í skólanum.
Tónskóli Hörpunnar er þátttak-
andi í tilraunaverkefni í Breið-
holts- og Seljahverfi á vegum
Iþrótta- og tómstundaráðs og
Fræðslumiðstöðvar Reykjavík-
urborgar, þar sem 6 ára börnum
er gefínn kostur á að sækja tón-
listarnám í lengdri viðveru í
grunnskólanum, þ.e.a.s. eftir að
vinnudegi þeirra í grunnskólanum
lýkur.
Alls sótti 81 barn þessa tónlist-
artíma til Tónskóla Hörpunnar,
en kennslan fer fram í Fella-,
Breiðholts- og Ölduselsskóla.
Stefnt að sama
markmiði
STJÓRN SAMFOK hefur sent frá
sér eftirfarandi fréttatilkynningu:
„Þau nýju og jákvæðu vinnubrögð
sem viðhöfð hafa verið í samninga-
viðræðum Kennarasambands Is-
Iands og launanefndar sveitarfélag-
anna hafa vakið þá von í brjósti
okkar foreldra að þessum aðilum
muni takast að semja án sársauka-
fullra átaka. Hér virðast samnings-
aðilar tala sömu tungu og stefna að
sama markmiði; þ.e. betri skóla og
árangursríkara skólastarfi. Það sem
einkum styður þessa von er sameig-
inleg stefnuyfirlýsing samningsaðil-
anna, dagsett 4. desember sl., sem
birt hefur verið í fjölmiðlum.
Foreldrar gera sér fulla grein fyr-
ir því að forsenda þess að hæfír
kennarar fáist til að kenna börnun-
um okkar er að kennarastarfið sé
eftirsóknarvert, sem m.a. þýðir að
kennarar verða að fá greidd sömu
laun og sambærilegar starfsstéttir
fá. Þegar ljóst er að kennarar eru til-
búnir til ýmissa breytinga sem leiða
munu til þróunar í skólastarfinu er
það mat okkar að foreldrar styðji þá
í launakröfum þeirra.
Foreldrar í stjórn SAMFOK óska
samningsaðilum farsældar í starfi og
ánægjulegs nýs árs.“
FERSKT • FRAMANDt • FRUMLEGT
ii/y kaffi
Premiujn ga
frá Itafíu
Suöurlandsbraut 6 ♦ s. 568 3333
Gefið ástinni
hlýj a gjöf
Ekta pelsar
verð frá kr. 50.000
Sigurstjama
Fákafeni (Bláu húsin), I
s. 588 45451
Amaretta er gerviefni sem er líkt
rúskinni viökomu. Helstu kostir
þess eru að það er létt, hlýtt og
þolir vætu án þess að það komi
blettir á flíkina.
tískuverslun
v/Nesveg, Seltjarnarnesi,
sími 561 1680.
Opið
í dag frá kl. 10—20,
föstudag frá kl. 10—20,
Þorláksmessu 10—22.
-------hH---------
Leyfí Tals
ekki aftur-
kallað
Eftirfarandi tilkynning barst frá
Póst- og fjarskiptastofnun í gær:
„Með fréttatilkynningu sem send
var fjölmiðlum [á þriðjudag] skýrði
Póst- og fjarskiptastofnun frá um-
sóknum sem bárust eftir að auglýst
var eftir umsóknum í þriðja far-
símaleyfið í 900 MHz-tíðnisviðinu.
Umsóknarfrestur rann út 15. des-
ember 2000 og bárust tvær umsókn-
ir sem vísuðu til auglýsingarinnar,
frá Íslandssíma ehf. og Tali hf.
Tekið var sérstaklega fram í
fréttatilkynningunni [á þriðjudag]
að tvö leyfi hefðu áður verið veitt
fyrir GSM-farsímarekstri í 900
MHz-tíðnisviðinu og að leyfishafar
væru Landssími íslands hf. og Tal
hf. Þetta virðist hafa valdið þeim
misskilningi hjá sumum að verið
væri að afturkalla gildandi rekstr-
arleyfi Tals hf. Póst- og fjarskipta-
stofnun telur þess vegna rétt að
staðfesta að rekstrarleyfi Tals hf.
fyrir GSM-farsíma í 900 MHz-tíðni-
sviðinu sem upphaflega var gefið út
23. júlí 1997 er í fullu gildi og renn-
ur ekki út fyrr en 31. desember
2007.“
-------»-H--------
■ Forsetakosningarnar í Banda-
ríkjunum. Vaxandi andstæður og
flokkadrættir í borgaralegum
stjómmálum. Málfundur með fram-
sögu og umræðum, föstudaginn 22.
desember kl. 17.30 að Klapparstíg
26, 2. hæð t.v. Fundinn halda að-
standendur sósíalíska blaðsins Milit-
ant og Ungir sósíalistar.
Vit/WAP
Dagbók
Innbyggt loftnet
Raddstýrð úthringing
500 númeríminni
900/1800 MHZ
■
kosti
IMCjKIA
CϒNECTING FEOPLE
Hann b,lti"°
svarar þér
á íslensku!
Nýi NOKIA 6210 er fyrsti Nokia síminn
meö íslenskum texta. Þetta er bylting
sem margir munu taka feginshendi.
Þunnur, léttur, fín upplausn á stórum
skjá. Rafhlaðan endist 10 daga í bið og
4 1/2 klst. í notkun.
Fæst í þremur iitum og kann íslensku!
If
.. ■ ■
Hátekni
Ármúia 26 • Sími 588 5000 • www.hataekni.is
Hafðu samband
Opið Þorláksmessu kl. 12-20