Morgunblaðið - 21.12.2000, Síða 78

Morgunblaðið - 21.12.2000, Síða 78
78 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ Jy Grettir Hundalíf r. Hvers vegria bragðast holli maturinn alltaf verr en sá sem er óhollur? Þetta er GJÖftöU SVO VEL, LUBBIMINN. NÚ FÆRÐU NYJAN HOLLAN MAT SEM INNIHELDUR MINNI FITU 06 MIKIÐ AF TREFJUM Ljóska Varstu ekki búin að heyra það? Hvað?! Það var of umdeilt Hvemig gat það verið umdeilt? Skólanefndin er búin að slá Ég skildi það ekki einu sinni sjálf! jólaleikritið þitt af.. 1. BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavik • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Blessuðjólin ... Frá Pórdísi Rós Harðardóttur: BRAÐUM koma blessuð jólin, raula ég fyrir dóttur mína meðan ég svip- ast um eftir jólasögu að íslenskri hefð í litlu bókinni sem okkur var send fá dögunum. Hálf sorglegur tónn í því kvæði, sem síðar var settur í fersklegri göngutón fyrir jóla- tréshátíðirnar. Sem ég fletti í gegnum sögurnar, rifja ég upp eigin æsku með sögum af Grýlu og Leppalúða sem sóttu sér óþæg börn, stungu þeim í poka og átu. Það var nú sjaldnast farið í nán- ustu smáatriði hvað varðar þær sög- ur. En sem móðir heldur eitthvað aftur af mér að segja börnunum mín- um frá þessari undarlegu fjölskyldu á fjöllunum. Drengirnir þrettán virð- ast hinir örgustu þjófar og foreldrar þeirra mannætur. Hvernig jólakötturinn kom inn í málið get ég ekki alveg skilið og er ekki reiðubúin að útskýra fyrir börn- um mínum. Því ekki þætti mér ólík- legt að þau fengju eðlilega illan bifur á köttum eftir þá frásögn. Vænn hluti litlu jólabókarinnar segir frá kettinum sem sækir á fátækt fólk, étur mat þess og það sjálft ef engir eru jólapakkarnir. Einhverra hluta vegna urðu þess- ar sögur til, sjálfsagt til þess að tryggja börnunum nýja leppa að minnsta kosti einu sinni á ári. Áður fyrr var sögunni af jólakettinum þröngvað upp á fólk og það skyldað til að gefa bömunum gjaflr, í dag er það spurning um að setja greiðslu- kortin í botn til að bömin líti ekki illa út meðal bekkjarfélaga sinna (tilgáta höfundar). Hér í Kanada þai- sem við höfum búið undanfarin ár, heyrir maður ólíkan tón á útvarpsstöðvunum. Al- mennt em hin sígildu jólalög spiluð, en einnig ýmsar uppákomm- til þess gerðar að koma vöm og þjónustu á framfæri. Hins vegar em hér stöðv- ar minnihlutahópa, sem gefa upp ástæður þess, að jólin séu tími glöt- unar. Hreinlega stappa stáli hvert íannað, að þetta muni líða hjá sem hvert annað kýli. Þó almenningur vilji ekki horfast í augu við það, geta jólin verið sársaukafullur tími margra sem ekki em megnugir að kaupa sér og fjölskyldu sinni gleði. Þrátt fyrú- gauraganginn í bræðr- unum þrettán, þjófóttir og stríðnir sem þeir áttu að hafa verið, virðist samfélag okkar hafa verið reiðubúið að samþykkja athæfí þeirra sem skemmtilega tilbreytingu í kalda tíð- ina og jafnvel að það stytti biðina að hátíðarkvöldinu þegar Mður ríkti. Meira að segja sveinarnir hættu ólátunum og virtu Mðinn og ljósa- dýrðina, áður en þeir lögðu af stað heimleiðis hver af öðram. Svo einfalt getur það verið. ÞÓRDÍS RÓS HARÐARDÓTTIR, 63 Muriel Avenue Toronto, Ontario, M4J 2Y1, CANADA. Hlutabréf framtíðarinnar Frá starfsfólki í leikskólanum Arnarborg: HVAR LIGGUR auður þessa lands? Hvernig er fjárfestingu til framtíðar háttað? T.d. með inneignum á banka- reikningum - hlutabréfum í ömgg- um fyrirtækjum - fasteignum og bflaflota? En hvar koma börnin okk- ar inn í þessa framtíðarsýn um auð- legð og velferð? Þau em framtíð þessa lands og sá mesti auður sem hægt er að hugsa sér - hlutabréf framtíðarinnar! Hlutabréf rísa og falla og þannig er það einnig með börnin okkar. Þau rísa og falla eftir umhverfínu sem við sköpum þeim til andlegs og líkamlegs þroska. Fram- tíðarsýnin á að felast í því að skapa þessum einstaklingum gott umhverfí til uppeldis og mennta. Stöldmm aðeins við: Hversu oft heyrum við ekki þessi fleygu orð um auðlegð landsins í börnum framtíð- arinnar - en hvað svo? Minnisstæð em orð frú Vigdísar Finnbogadótt- ur, fyrrverandi forseta íslands, um menntun og gildi íslenskrar tungu fyrir komandi kynslóðir. Nú hefur verkfall framhaldsskólakennara staðið á annan mánuð og ekki sér til sólar í samningamálum. Næstir með lausa samninga em gmnnskóla- kennarar og leikskólakennarar. Við sem störfum í leikskóla bíðum í of- væni eftir því hvemig málum lykti hjá kollegum okkar, því öll emm við jú kennarar. Snúum okkur að leik- skóladvöl bamsins. Hvaða kröfur em gerðar til þessa fyrsta skólastigs barnsins? Margir foreldrar, sem betur fer, gera kröfur til leikskólastarfsins og starfsfólks sem vinnur í leikskólun- um en það vill því miður brenna við að krafan um góðan leikskóla víkur fyrir feginleikanum er barnið fær inni í leikskólanum. Að vinna í leik- skóla er allt í senn: Erfitt, ögrandi, hvetjandi og gefandi. En arðurinn er ekki mælanlegur fyrr en bömin vaxa úr grasi og skila sér út í þjóðfélagið. Þá sannast hið forkveðna: Lengi býr að fyrstu gerð. Yfirleitt er rætt um uppbyggjandi uppeldi en til er líka uppeldi sem rífúr niður og það er ör- stutt þarna á milli. Starfsmenn leik- skóla reyna eftir fremsta megni að tileinka sér fagleg og vönduð vinnu- brögð með barnið í brennidepli að leiðarljósi. En það sér hver heilvita maður að ef um tíð mannaskipti er að ræða í leikskólanum er hætta á að þessi gildi falli í skuggann fyrir því að halda uppi lágmarksstarfi í skól- anum. Það er tími til kominn að starfsfólk geti lifað á Iaunum sínum og borið höfuðið hátt. Nú er lag til að breyta og tökum höndum saman til að svo geti orðið. F.h. starfsfólks í leikskólanum Arnarborg, HILDUR GÍSLADÓTTIR. Allt efni sem birtist f Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.