Morgunblaðið - 21.12.2000, Side 79
MORGUNBLAÐIÐ
BREF TIL BLAÐSINS
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000 79
Reykja-
lundur
o g bók
Rannveig-
ar Löve
Frá Sveini Indriðasyni:
UNDANFARNA daga hefi ég verið
að lesa bók Rannveigar Löve,
Myndir úr hugskoti. Það er í sjálfu
sér afrek hjá áttræðri konu, að
skrifa bók upp á 344 blaðsíður. Hún
virðist fara létt með það, þar sem
minnið er ótrúlega traust. Rannveig
er elst 15 systra, sem kenndar eru
við við Réttarholt í Reykjavík. í
bókinni segir hún frá búskap á
Vatnsleysuströnd og í Réttarholti,
sem hafði haldist lítt breyttur í þús-
und ár. Hún segir frá því hvernig
hún braust til mennta, lauk við
Kennaraskóla, sérnám til sér-
kennslu og Háskólanám.
Þetta er í raun saga menntunar í
70 ár. Þá er sagan af baráttunni við
berklaveikina ekki síður merkileg.
Hún segir frá því, þegar hún þurfti
að fara frá smábarni til dvalar á
Vífílsstaðahæli og þá var eiginmað-
ur hennar, Guðmundur Löve, sjúk-
lingur þar. Sú barátta tók mörg ár.
Hún segir söguna af stofnun SÍBS
og undirbúningi að stofnun Reykja-
lundai-. Vinnuheimilið tók til starfa
1. febrúar 1945 og um vorið 1945
komu þau hjón sem vistmenn að
Reykjalundi, hún nr. 29 og Guð-
mundur nr. 30. Guðmundur varð
síðan starfsmaður SÍBS og síðan
einn aðalhvatamaður að stofnun Ör-
yrkjabandalagsins og framkvæmda-
stjóri þess meðan honum entist ald-
ur.
Rannveig hefur alla tíð stutt
SÍBS og Reykjalund. Setið í stjórn
SÍBS og gegnt formennsku í
Reykjavíkurdeild.
Nú er verið að byggja stórt þjálf-
unarhús á Reykjalundi. Árið 1998
safnaði þjóðin 5 milljónum ti þess-
ara framkvæmda. Ennþá vantar
samt 200 milljónir. Ég veit að það
myndi gleðja Rannveigu ef þjóðin
hugsaði vel til SÍBS á næstunni og
keypti miða í Happdrætti SÍBS eða
styrkti þessar framkvæmdir með
öðrum hætti.
SVEINN INDRIÐASON,
Árskógum 8, Reykjavík.
Götulifsmynd
Frá Sigrúnu Ármanns sagði sú yngri. Það verða nú engin
Reynisdóttur: jól hjá mér. Unga konan á frama-
VEÐRIÐ var yndislegt um daginn
þegar ég rölti niður Laugaveginn.
Um himin sigldi rósbleikt ský og
fjöldi marglitra jólaljósa lýsti upp
skammdegið og setti hátíðarblæ á
borgina. I húminu hoppuðu jóla-
sveinar og börnin horfðu á, úr svip
þeirra mátti lesa eftirvæntingu. Það
er svo erfitt að bíða eftir jólunum
þegar maður er lítill. Tíminn er svo
voðalega lengi að líða. Á bekk sátu
tveir eldri menn. Þeir spjölluðu glað-
lega saman. Annar þeirra tók upp
neftóbaksdós og bauð hinum, sem
var með langan grænan trefii vafinn
um hálsinn. Framhjá gekk kona í
pels, röskum skrefum í kapphlaupi
við tímann. Sú er nú fín sagði sá með
trefilinn. Skyldi hún vera sæ-
greifafrú? Ætli hún vilji í nefið?
sagði hinn. Svo skellihlógu þeir báðir
og snýttu sér hressilega. Áfram
gekk ég og skoðaði í búðarglugga,
meðan fólkið streymdi framhjá og
bílar þutu um. Við einn gluggann
stóð miðaldra kona í snjáðri kápu
sem svo sannarlega hafði mátt muna
fífil sinn fegri. Hún horfði löngunar-
augum á fallegu vörurnar. Hún var
ósköp föl og greinilega mjög leið.
Allt í einu vatt sér að henni ung vel
klædd kona og heilsaði henni: Hæ
hæ hvað segir þú gott! Konan sneri
sér seinlega frá glugganum. Sæl
vertu, ég segi nú lítið. Hvað er að?
spurði unga konan. Æ ég er búin að
missa heilsuna og orðin öryrki. Ég
dreg fram lífið af bótum og næ eng-
an veginn endum saman. Eg er kom-
in á svartan lista hjá bönkunum og
geri vai-la annað en að ganga á milli
lögfræðinga og reyna að semja.
Unga konan leit á úrið sitt óþolin-
móð. En hvað er að frétta af þér,
góða mín? Ég er nýkomin heim úr
námi og fer að vinna eftir áramótin,
sagði unga konan. Já einmitt, sagði
hin. Ég vildi ég hefði haft tækifæri
til þess að afla mér menntunar þeg-
ar ég var ung, þá væri ekki svona illa
komið fyrir mér. Ég er nú að verða
of sein, en kíktu til mömmu um jólin,
braut gat ómögulega skilið hina
óhamingjusömu konu, sem sam-
félagið var búið að hafna, til þess
hafði hún heldur ekki tíma. Hún
kvaddi því í flýti og hljóp á brott.
Konan vafði gömlu kápunni þéttar
að sér og gekk á brott álút og hvarf
inn í mannhafið. Það var eins og skin
jólaljósanna hefði dofnað, og í huga
mínum ferðaðist myndin af konunni
í gömlu kápunni, sem misst hafði
heOsuna, með mér alla leið heim. Ég
gat ekki hætt að hugsa um hvort ég
gæti eitthvað gert til að gefa ögn
meira ljós gleði inn í líf þessa sam-
ferðamanns míns sem hafði misst
heilsuna. Sjálfsagt vantar enn tvö
tonn af kærleik í ráðstafanir ráða-
manna í ríkisfjármálum og þeim hin-
um sömu virðist meira í mun að skila
tekjuafgangi á blaði, sjálfum sér til
eigin stjórnmálalegs og efnahags-
legs skammtímasóma, þótt hluti af
þeim efnahagslega ábata virðist
fólginn í því að konan sem missti
heilsuna gangi í sömu gömlu káp-
unni sinni ár eftir ár, meðan heil-
brigðir ganga um í hlýjum pelsum
og selskinnskápum. Mér varð litið út
um gluggann og sá að nágranninn
hafði prýtt þriggja metra grenitré
sitt með blikkandi diskóljósum, svo
tunglið missti tilgang sinn þótt fullt
væri. Ég lagðist til svefns og mig
dreymdi forsætisráðherra baslast
við það að festa diskóljós á tunglið,
meðan konan í gömlu kápunni horfði
undrandi á.
SIGRÚN ÁRMANNS
REYNISDÓTTIR,
rithöfundur,
Hraunbæ 38, Reykjarik.
Garðar Ólafsson
úrsmiður, Lækjartorgi
Telpnastígvélin
loksins komin • frábært verð
Fjólublá st. 28-35 _
Rauð st. 28-35 Ver0
Svört st. 28-39 4.390 kr.
Láttu okkur aðstoða þig við val á réttum innleggjum.
^Háateitisbraut 58 • Stmi 553 2300
Fyrir konur, karla, börn og kornabörn
Ull - angóra - silki
100 gerðir af nærbuxum
200 gerðir af nærbolum
Opið 10-22
* silkinærföt
* merinóullarnærföt
* sokkar
* ökklahlífar
* hnjáhlffar
* mittishlífar
* axlahlífar
* úlnliðshlífar
* tískunærföt svört
og hvít
* silkihúfur
* lambhúshettur ull
eða silki
* vettlingar
* inniskór
Allt til að halda hita frá toppi til táar
Náttúrulækningabúðin
Hlíðasmára 14, Kópavogi, s. 544 4344.
Jólatilboð
20% afsláttur fram að jólum
Hiá Svönu
Opið mán.-laugard.
frá kl. 10-18.
Kvenfataverslun, Garðatorgi 7, Garðabæ, sími 565 9996.
ólagjöfin hennarl
Stuttir og síðir
pelsar i úrvali
Minkapelsar
Tilboð
50Vo útborgun
og eftirstöðvar
vaxtalaust allt uð
12 mánuðum.
Pelsfóðurs-
kápur og jakkar
Ullarkápur og
jakkar með
loðskinni
Loðskin nsh úfur
Loðskinnstreflar
Loðskinnshárbönd
Klassískur fatnaður
Bocace-skór
Þarsem
vandlátir
versla
PELSINN
Kirkjuhvoli, sími 552 0160,
Raðgreiðslur i allt að 36 mánuði