Morgunblaðið - 21.12.2000, Side 80

Morgunblaðið - 21.12.2000, Side 80
iO FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ í dag er fimmtudagur 21. desem- ber, 356. dagur ársins 2000. Vetr- ^ arsólstöður. Orð dagsins: Biðjið Drottin um regn. Hann veitir vor- regn og haustregn á réttum tíma. Helliskúrir og steypiregn gefur hann þeim, hverri jurt vallarins. Skipin Reykjavíkurhöfn: Blackbird kemur í dag, Goðafoss fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: ' 'S.agarfoss, Ankerg- racht og Svanur fóru í gær. Ako, Pétur Jóns- son og Hamrasvanur koma í dag. Fréttir Bókatíðindi 2000. Núm- er fimmtudagsins 21. desember er 36322. Kattholt. Flóamarkaður í Kattholti, Stangarhyl 2, opinn þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 14- 17. Áheit. Kaldrananes- kirkja á Ströndum á 150 ggji afmæli á næsta ári ogþarfnast kirkjan mikilla endurbóta. Þeir sem vilja styrkja þetta málefni geta lagt inn á reikn. 1105-05-400744. Frímerki. Kristniboðs- sambandið þiggur með þökkum alls konar not- uð frímerki, innlend og útlend, ný og gömul, klippt af með spássíu í kring eða umslagið í heilu lagi. Útlend smá- *ínynt kemur einnig að notum. Móttaka í húsi KFUM og K, Holtavegi 28. Reykjavík, og hjá Jóni Oddgeiri Guð- mundssyni, Glerárgötu 1, Akureyri. Mannamót Árskógar 4. Kl. 9-12 baðþjónusta og bók- band, kl. 9-16.30 penna- saumur og bútasaumur, kl. 9.45 morgunstund, kl. 10.15 leikfími, kl. 11 boccia, kl. 13 opin smíðastofa, kl. 9 hár- og fótsnyrtistofur opnar «4Búistaðarhlíð 43. Kl. 8 hárgreiðsla, kl. 8.30 böðun, kl. 9-9.45 leik- fimi, kl. 9-12 myndlist, kl. 9-16 handavinna og fótaaðgerð, kl. 13 gler- list. FEBK félagar. Að af- loknu jólahlaðborði og annarri dagskrá í Gjá- bakka, fimmtudaginn 21. desember é vetrarsólstöðum verður í boði heimsókn í Kópa- vogskirkju á Borg- arholti. Mæting við kirkjuna kl. 14. Sr. Æg- ir Sigurgeirsson segir i'sögu kirkjunnar í stuttu máli og kynnir safn- aðarstarfið. Að því loknu verður haldið til baka að Gjábakka, þar verður smákökuhlað- borð fyrir þá sem það vilja. Félagsstarf aldraðra, Dalbraut 18-20. Kl. 9 böðun, hárgreiðslu- stofan og handa- vinnustofan opnar, kl. 13 opin handa- , vinnustofan, kl. 14.30 'Vögustund. Félagsstarf aldraðra, Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð- un, kl. 9. fótaaðgerð, kl. (Sak. 10,1.) 10 hársnyrting, kl. 11.10 leikfimi, kl. 13 fóndur og handavinna. Félagi eldri borgara í Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofan er opin alla virka daga frá kl. 10-13. Matur í há- deginu. Ath. Skrifstofa FEB verður lokuð á milli jóla og nýórs. Opn- um aftur þriðjudaginn 2. janúai' kl. 10. Upplýs- ingar á skrifstofu FEB í síma 588-2111 frá kl. 10-16. Félagsst. Furugerði 1. Kl. 9 aðstoð við böðun, smiðar og útskurður, glerskurðarnámskeið og leirmunagerð, kl. 9.45 verslunarferð í Aust- urver, kl. 13.30 boccia. Gerðuberg, Kl. 9-16.30 vinnustofur opnar, frá hádegi er spilasalur op- inn, kl. 13 boccia. Mynd- listarsýning Hrefnu Sigurðardóttur stendur yfir. Veitingar í fallega skreyttu kaffihúsi Gerðubergs. Allar upp- lýsingar um starfsemina á staðnum og í síma 575-7720. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnnustofan op- in, leiðbeinandi á staðn- um kl. 9-15, kl. 9.30 gler- og postulínsmálun, leikfimi kl. 9.05, kl. 9.50 og kl. 10.45, kl. 13 klippimyndir og tau- málun. Kl. 20-21 gömlu dansarnir. Hraunbær 105. Kl. 9- 16.30 bútasaumur, perlusaumur og korta- gerð, kl. 9 fótaaðgerð, kl. 9.45 boccia, kl. 14 félagsvist. Hæðargarður 31. Kl. 9- 16.30 opin vinnustofa, glerskurður, kl. 9-17 hárgreiðsla og böðun, kl. 10 leikfimi, kl. 13.30 bókabíll, kl.15.15 dans. Hvassaleiti 56-58. Kl. 9 opin handavinnustofa búta- og brúðusaumur, böðun, fótaaðgerðir og hárgreiðsla, kl. 10 boccia, kl. 13 handa- vinna, kl. 14 félagsvist. Norðurbrún 1. Kl. 9 handavinnustofurnar opnar, útskurður, kl. 10 leirmunanámskeið, kl. 13.30 stund við píanóið. Vesturgata 7. Kl. 9 fótaaðgerðir og hár- greiðsla, kl. 9.15-12 að- stoð við böðun, kl. 9.15- 15.30 handavinna, kl. 10 boccia, kl. 13-14 leik- fimi, kl. 13-16 kóræfmg. Tréskurðarnámskeið hefst í janúar, leiðbein- andi Sigurður Karlsson. Uppl. og skráning í síma 562-7077. Bridsdeild FEBK, Gull- smára. Spilað mánu- og fimmtudaga í vetur í Gullsmára 13. Spil hefst kl. 13, mæting 15 mín- útum fyrr. Vitatorg. Kl. 9 smiðjan og hárgreiðsla, kl. 9.30 glerskurður, fatasaum- ur og morgunstund, kl. 10 boccia og fótaaðgerð- ir, kl. 13 handmennt, körfugerð og frjálst spil. GA-fundir spilaffkla eru kl. 18.15 á mánu- dögum í Seltjarnar- neskirkju (kjallara), kl. 20.30 á fimmtud. í fræðsludeild SÁÁ, Síðu- múla 3-5 og í Kirkju Óháða safnaðarins við Háteigsveg á laugard. kl. 10.30. Gigtarfélagið. Leikfimi alla daga vikunnar. Létt leikfimi, bakleikfimi karla, vefjagigtarhópar, jóga, vatnsþjálfun. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Nánari uppl. á skrifstofu GI, s. 530 3600. Minningarkort Minningarkort Lands- samtaka bjartasjúkl- inga fást á eftirtöldum stöðum á Vesturlandi: Á Akranesi: í Bóka- skemmunni, Stillholti 18, s. 431-2840, Dalbrún ehf., Brákarhrauni 3, Borgarnesi og hjá Elínu Frímannsd., Höfða- grund 18, s.431-4081. í Grundarfirði: í Hrann- arbúðinni, Hrannarstíg 5, s. 438-6725. í Ólafsvík hjá Ingibjörgu Pétursd., Hjarðartúni 1, s. 436- 1177. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúki- inga fást á eftirtöldum stöðum á Vestfjörðum: Á Suðureyri: hjá Gesti Kristinssyni, Hlíðavegi 4, s. 456-6143. Á ísafirði: hjá Jóni Jó- hanni Jónss., Hlíf II, s. 456-3380, hjá Jónínu Högnad., Esso- versluninni, s. 456-3990 og hjá Jóhanni Káras., Engjavegi 8, s. 456- 3538. í Bolungarvík: hjá Kristínu Karvelsd., Mið- stræti 14, s. 456-7358. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúkl- inga fást á eftirtöldum stöðum á Austfjörðum. Á Seyðisfirði: hjá Birgi Hallvarðssyni, Botna- hlíð 14, s. 472-1173. Á Neskaupstað: í blóma- búðinni Laufskálinn, Kristín Brynjarsdóttir, Nesgötu 5, s. 477-1212. Á Egilsstöðum: í Blómabæ, Miðvangi, s. 471-2230. Á Reyðarfirði: hjá Grétu Friðriksd., Brekkugötu 13, s. 474- 1177. Á Eskifirði: hjá Aðalheiði Ingimundard., Bleikárshlíð 57, s. 476- 1223. Á Fáskrúðsfirði: hjá Maríu Óskarsd., Hlíðargötu 26, s. 475- 1273. A Hornafirði: hjá Sigurgeir Helgasyni, Hólabraut la, s. 478- 1653. Styrktarfélag krabba- meinssjúkra barna. Minningarkort eru af- greidd í síma 588-7555 og 588-7559 á skrif- stofutíma. Gíró- og kreditkortaþjónusta. Samtök lungnasjúk- linga. Minningarkort eru afgreidd á skrif- stofu félagsins í Suð- urgötu 10 (bakhúsi) 2. hæð, s. 552-2154. Skrifstofan er opin miðvikud. og fóstud. kl. 16-18 en utan skrif- stofutíma er símsvari. Einnig er hægt að hringja í síma 861-6880 og 586-1088. Gíró- og kreditkortaþjónusta. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavik. SÍMAR: Skiptiborð: 669 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 669 1329, fréttir 669 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- -£>TJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 1.900 kr. á mánuði innanlands. í Iausasölu 160 kr. eintakið. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Þakkir ÉG er búin að vera með falskar tennur í yfir þrjátíu ár og hef aldrei getað notað þær. Yngvi Jón tannlæknir á Akureyri á heiður skilinn fyi'ir tennumar sem hann smíðaði fyrir mig og hann á einnig heiður skilinn fyrir alla hjálpina. Guðmunda Guðmundsd. Frábær þjónusta GUNNHILDUR hafði samband við Velvakanda og langaði að koma á framfæri þakklæti til Sólningar í Kópavogi fyrir frábæra þjónustu og lipurð. Hafið mína bestu þakkir fyrir. Misjöfn afgreiðsla í húsgagnaverslunum ÉG er búin að fara í nokkr- ar húsgagnaverslanir og hef fengið æði misjafna af- greiðslu. Mig langar að þakka versluninni Sætir sófar í Kópavogi fyrir frá- bæra þjónustu. Starfsfólkið þar var einstaklega lipurt og þægilegt. Margrét. Grár Volvo FÖSTUDAGINN 15. des- ember sl. Fyrsti snjórinn féll í Reykjavík, ég er ný- komin til landsins, tíl yl- hýru ástkæru foldarinnar. Ég býð móður minni í bæj- arferð á Laugaveginn. Ljósadýrð og snjóflyksur, fátt fólk á ferli en yfir þessu hvíldi dulúð og rómantík. Æi, erfitt að fá bílastæði, en ég er með litla göngugetu (enda í gifsi núna) jú, lán- samar, bíll bakkar út, beint við búðina sem við ætluðum í. Við bíðum, bílstjórinn ræsir sinn bíl, þurrkar snó- inn af (ca 1 mín.) en við heyrum í fjarska að einhver hggur á flautunni. Allir aðr- ir rólegir og njóta dagsins, enda Laugavegurinn aldrei verið nein hraðbraut, frek- ar sjarmerandi göngugata. Jæja, bílinn bakkar út, við keyrum inn, drepum á bíln- um. Við móðir mín litum til hliðar og okkur brá. Stór grár Volvo hefur stoppað fyrir aftan okkur. Undir stýri er fullorðinn maður, hann skrúfar niður rúðuna og sendir okkur fingurinn. Jæja, er þetta ísland í dag? Ég vona að elsku mann- inum hafi liðið betur eftir aðgerðina. Við óskum honum gleði- legrar hátíðar ljóss og frið- ar og biðjum drottin um að blessa hann. Kona úr útlönduin. Tapað/fundið Karlmannsúr í óskilum MÁNUDAGSKVÖLDIÐ 18. desember sl. fannst karlmannsúr á bilastæði lögreglunnar við Pósthús- stræti. Upplýsingar í síma 557- 2468. Grágræn ullarkápa tapaðist HÁLFSÍÐ, grágræn ullar- kápa tapaðist á Gauki á Stöng laugardagskvöldið 16. desember sl. Einnig tapaðist veski með snákamunstri á sama stað. Upplýsingar í síma 552-6819. Hurðaskellir og Stúfur VEIT einhvar hvort gamla góða platan með Hurða- skelli og Stúf er til á geisla- diski og þá hvar? Upplýs- ingar í síma 565-2085 eða 864-4259. Gullkross tapaðist GULLKROSS með einum litlum demanti tapaðist annaðhvort fyrir utan Sjúkraþjálfun Garðabæjar, Garðaflöt, eða á bílastæðinu Garðatorgi. Upplýsingar í síma 565-6055 eftir kl. 16. Dýrahald Sex mánaða læða hvarf að heiman HÁLFPERSNESK sex mánaða læða, ljósgrá og hvít, hvarf frá Víðimel 56 fóstudaginn 14. desember sl. Hún er með rauða ól með göddum. Ef einhver hefur orðið hennar var eða veit hvar hún er niðurkomin, vinsam- legast hafið samband í síma 898-2426. Kros LÁRÉTT: 1 snjáidur, 4 knöttur, 7 minnast á, 8 sviku, 9 óhróður, 11 magurt, 13 hugboð, 14 nói, 15 gaffal, 17 atiaga, 20 blóm, 22 skóflar, 23 rík, 24 Ijúka, 25 ijóma. *gata LÓÐRÉTT: 1 glatar, 2 ýl, 3 svelgur- inn, 4 fjöl, 5 er til, 6 kona Braga, 10 urg, 12 verkur, 13 á litinn, 15 þegjanda- leg, 16 votan, 18 dreg í efa, 19 seint, 20 dysja, 21 landspildu. LAUSN SIÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 hrákadall, 8 lúkan, 9 tefja, 10 nót, 11 meija, 13 unaðs, 15 glaða, 18 smátt, 21 lét, 22 grand, 23 arfur, 24 hlunnfara. Lóðrétt: 2 ríkur, 3 kenna, 4 duttu, 5 lyfta, 6 Glám, 7 rass, 12 jóð, 14 nem, 15 gagn, 16 aðall, 17 aldin, 18 starf, 19 álfur, 20 tóra. Víkverji skrifar... RÚV hefur í nokkur ár verið með sjónvarpssendingar frá Al- þingi. Ekki veit Víkverji hversu mik- ið er horft á þessar útsendingar, en hann grunar að það séu allmargir sem fylgist með þeim. Pólitískur áhugi á Islandi er þrátt fyrir allt enn talsvert mikill. Víkverji veit einnig til þess að margt fólk sem ekki er á vinnumarkaði, t.d. aldraðir og ör- yrkjar, fylgjast með störfum Alþing- is af áhuga. Sjónvarpsútsendingar frá Alþingi eru hins vegar aðeins á þeim tímum þegar hefðbundin dagskrá er ekki í gangi. Útsetning Alþingis er því nær daglega rofin áður en þingfundi er lokið. Stundum er þetta bagalegt, ekki síst þegar um fréttnæmar um- ræður er að ræða. Sl. föstudag fóru t.d. fram umræður á Alþingi um úr- skurð samkeppnisráðs um samein- ingu Landsbanka og Búnaðarbanka. Beðið hafði verið eftir þessum úr- skurði og ríkti mikil spenna um nið- urstöðuna. Sameining bankanna hefði falið í sér einhver mestu tíðindi á íslenskum fjármálamarkaði í ára- tugi. Sjónvarpið tók ekki tillit til þessa heldur stöðvaði útsendinguna þegar hún var rétt ný hafinn til að koma að Sjónvarpskringlunni og Leiðarljósi. Þarna hefði verði verið eðlilegt að sýna alla umræðuna jafn- vel þó að auglýsingatímar og sápu- myndaflokkar hefðu riðlast. Fjöl- miðill sem vill standa sig vel í því að flytja fréttir af fréttnæmum við- burðum hlýtur að gera það. YÍKVERJI er þeirrar skoðunar að borgaryíirvöld hafi ekki ver- ið nægilega dugleg að bera sand á gangstéttir að undanförau. Afar hált hefur verið síðustu daga og veit Vík- verji um þónokkra sem hafa dottið illa og slasað sig. Tjón fólks sem beinbrotnar er mikið og sömuleiðis tjón samfélagsins. Fjárhagslega er það því mikið mál að draga úr hálku á gangstéttum, að ekki sé minnst á þjáningar fólks sem meiðir sig. XXX YÍKVERJI er einn' þein-a sem ekki hafa enn sett nagladekk undir bílinn þrátt fyrir að vetur sé löngu genginn í garð. Ástæðan er sú að ekki hefur verið brýn ástæða til að skipta um dekk. Það sem af er hefur veturinn verið einstaklega mildur. Víkverja telst til að það sem af er vetrar hafi færð verið slæm í tvo daga á höfuðborgarsvæðinu. Þessa daga hefði verið gott að vera á nöglum. Aðra daga hefur færðin ver- ið góð. Að vísu verður að segjast að oft er erfitt að komast um á bíla- stæðum og heimkeyrslum ef bíllinn er ekki á nagladekkjum. Það er hins vegar spurning hvort ekki væri hægt að leysa það með salti eða sandi. Nýverið var bent á það að mikil loftmengun hlýst af því þegar nagla- dekk tæta upp malbik af götunum. Ef borgaryfirvöld gætu komið meira á móts við íbúanna varðandi hálku- eyðingu í heimkeyrslum og bíla- stæðum gætu bifreiðaeigendur kom- ið sér hjá því að aka um á nagladekkjum. Síðan er spurning hvort fólk getur ekki bara tekið strætó þessa örfáu daga á ári þegar göturnar verða illfærar. XXX INAR Sigurbjörnsson guð- fræðiprófessor sendi Víkverja bréf þar sem hann þakkar fyrir ábendingar hans um jólasveina. „Mig langar til að þakka Víkverja dagsins í dag, 14. desember, fyrir þörf orð um Grýlu og jólasveinana. Ég er honum innilega sammála um að þetta jólasveinafargan er orðið yfirgengilegt. Þetta verður ágeng- ara með hverju árinu sem líður og hreinlega eins og látið sé í veðri vaka að koma jólasveinanna sé aðalatriði jólahaldsins.11 Víkverji þakkar fyrir sig. Það er hins vegar greinilegt að sumir prest- ar eiga í erfiðleikum með að standast ágengni jólasveina. Víkverji heyrði nýlega af jólaballi í safnaðarheimili í Reykjavík þar sem jólasveinar voru mættir. Þeir voru óvenju upp- átækjasamir og gátu t.d. ekki sungið jólalög með börnunum án þess að snúa út úr textunum. Ekki kunnu öll börn að meta lætin og bullið í þeim því að sum fóru að gráta. Ekki virtist það slá neitt á fyrirganginn í jóla- sveinunum. Víkverji hefur efasemd- ir um að jólasveinar eigi neitt erindi inn í kirkjur eða safnaðarheimili. Þeir eru nógu víða samt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.