Skírnir - 01.01.1838, Síða 14
svo á stuttum tima komst mikill jiorri landsmanna
í uppnám; óeyr&irnar vöruðu samt ekki mjög leingi
og hættu þær af sjálfu ser að kalla má. Seint í
Aprílmánuði f fyrra lióf Keisarinn ferð um ríki
sitt og þótti það nýlunda, fiykktist múgur manna
að honum og fylgði honum hvar sem hann fór
svo þúsundum skipti; hann gjörði mikið gott á
leið sinni, tók vandlega eptir ástandi borga þeirra
og lieraða sem hann ferðaðist um, fann að því
sem honum þótti ábótavánt, en lofaði hitt er hann
sá vel fara, og þótti hann liafa vaxið af förinni;
7da dag Juní mánaðar kom hann heim aptur og
var þá mikið um dýrðir í Miklagarði, en skömmu
seinna ætluðu þó nokkrir að ráða hann af dögum,
en það tókst ekki sem betur fór, og varð Iíeisar-
inn stórreiður stjórnarherrum sínum af því þeir
þóttnst ekkert hafa vitað um tilræðið, og voru þó
margir menn við það riðnir og ýmsum var stytt-
ur aidur. það var nærri komið að því að Frakkar
og Tyrkjar irðu missáttir, útaf því að Tyrkja-
keisari gjörði nokkur herskip út í fyrra vor, og
let sem það ætti að vera til að æfa sjómannaliðið,
en raunar áttu skipin að fara til Tripolis, en
Frakkar heldu að Keisarinu ætlaði að senda þau
til Túnis til liðveitslu við jarlinn í Konstantine,
þeir brugðust því skjótt við og sendu skip inní
Túnis höfn til að verja Tyrkjum landgaungu og
gjörðu Capúdan jarli, sem fyrir Tyrkja flotanum
reði, þau boð, að honum mundi verða varin höfnin
ef hann ætlaði sér þángað, en það komst bráðt
upp að Capúdan átti að fara til Tripolis, en ekki