Skírnir - 01.01.1838, Blaðsíða 59
61
var hann og trúr konúngi sínum, hann haföi í
láugann tima veriÖ forseti ,thins danska Vísinda-
felags”, en í staÖ lians er nú valinn Kristján FriÖrik
konúngsefniÖ og mentavinurinn mikli, hann tókst
þaÖ fúslega á hendur og pakkaði kosnínguna með
fögrum orðum. Ilauch dó 26ta Febrúar. Páli
Martin Möller, háskólakénnari í heimspeki, létst
13da Marts nærri hálffímtugur, hann var mikil lær-
dóms- og gáfumaður, skáld gott og hinn ráðvand-
asti maður, allir sem heyrðu kénningu hans, og
þekktu mannkosti hans treguðu hann mikiö, og
sýndi það sig við moldir hans hvað margir þeir
voru.
Veðuráttufar var hér gott í fyrra sumar og
þó æði lieitt stundum, uppskéra reyndist all góð,
en svo kom veturinn ekki mjög slæmr fyrst, eu
á jólaföstunni komu dæmalausar hörkur og hríðir,
lagði hér sjóinn um allt svo lángt sem eygt varð,
póstar teptust svo að í lángann tima komu hingað
aungvar fréttir frá útlöndum; vetrarrikið náði
suðuryfir alla norðurálfu og eunþá er svo mikill
ísgángur i Eystrasalti, að ekkért skip hættir sér
austur í Garðaríki; hér á Sjálandi voru frost svo
mikil, aö vart mun dæmi til. þó tekur yfir allt hvað
veturinn hefir orðið lángur, því ennþá (síðast í Apríl
mánuði) eru frost og snjókomur; ísinn iág á Eyra-
sundi hérumbil í 3 raánuði, og var þá mikil um-
ferð ámilli Sjálands og Skáneyar, má kalla að
vinátta hafi eblst eigi alllítið millum nábúanna,
þvi hvörjir kepptust við aðra, Sviar og Danir, aö
sýna géstrisni og vinahót, bæði komu Stúdentar .
frá háskólanum í Lundi hingað og var vel tekið