Fjölnir - 01.01.1839, Qupperneq 25

Fjölnir - 01.01.1839, Qupperneq 25
25 Nú er að minnast á breítíngu skólans; og verður ekki dulist við, að á henni sje þörf, fiar sem so mikið vantar á, að hann gjeti jafnast við aðrar samkinja stiptanir i' riki Danakonúngs: og varðar þó miklu meíra um skólann hjer enn þar; því hjer verður nægast að búa að þeírri mentun, sem í honum er færi á að öðlast, þar sem slíkar stiptanir eru erlendis ekki nema eínn áfángastaðurinn á veíginum til kunnáttunnar. Hjer eru margir erviðleíkar á jþví, að únglíngar gjeti í skólanum, eíns og nú er hann, feíngið þá lögun, sem til er ætlað, og so margháttaða fræðíngu, sem nú þarf að halda á, eígi menn að gjeta loðað í tölu mentamannanna á þessum ti'mum. Efnin liafa skamtað gánginn í þessu sem öðru, og fátæktin í h'kamlegu efn- unum hefir verið þess ollandi, að meðölin skorti til efi- íngar mörgu því, er til andans framfara horíir. f>etta hefir stjórnin vitað leíngi, og leíngi hafa menn veriö að velta firir sjer, hvursu ráðin irði bót á því. Núna á síð- ustu árunum hafa menn verið að undirbúa lagfærínguna með því, eíns og helst lá við, að komast niður í því, hvað efnum skólans líður; og þegar því var lokið, og menn höfðu tekiö ráð sín í þessu, hefir skólastjórnin í Kaup- mannahöfu heímt af landsilirvöldunura nú í sumar frum- varp til breítínga þeírra, er skólinn þirfti við; hafa þau og gjört það sem í þeírra valdi stóð, til þess að mál þetta irði grandgjæíilega skoðað, og kvöddu til ráðs með sjer helstu mennina sem til varð náð; var að vísu þess von, að tillögurnar irðu nokkuð inismunandi og sitt litist hvurjum, þar sem so áríðandi máli var að skipta. f>ó leítst öllum, að skólinn þirfti lagfærínga, og ekki irði komist hjá að verja til þeírra nokkrum kostnaði; enn í því lielst urðu menn ekki á eítt sáttir: hvurt þessu væri kostandi til skólans þar sem hann nú er, eða hann bæri að flitja til Reíkjavíkur — nje í því, hvur sainastaður væri honum hentugri, þegar ætlað er til lángrar fram- búðar. |>eír, sem voru með því, að skólinu sje látinn vera kirr, færa helst til síns má!s, að á Bessastöðum sje meíri

x

Fjölnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölnir
https://timarit.is/publication/61

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.