Kristileg smárit handa Íslendingum - 01.01.1869, Page 3

Kristileg smárit handa Íslendingum - 01.01.1869, Page 3
3 til, að við komumst betur af en aðrir hérna í grennd? Það er af engu öðru en því, að við vinnum bæði, og maðurinn minn sóar því ekki, sem hann vinnur sér inn, í veitingahúsinu, eins og svo margir gjöra. Ferðamaðurinn: Þið eigið þá, býst jeg við, mik- inn fjölda barna, og verðið að hugsa um þau, og spara allt, sem þið getið, handa þeim? Konan: Nei, við eigum engin börn; þau þrjú, er við höfum eignazt, liggja í kirkjugarðinum, — hið elzta þeirra varð að eins fjögra mánaða gamalt. En okkur langar til að kaupa okkur dálítið stærra jarðnæði. Ferðamaðurinn: Og er þið liafið fengið þetta, er þið óskið, ætlið þið þá að halda áfram sama stritinu? Konan: Það held eg vafalaust; því þá mun okk- ur langa til að eignast enn meira í fasteign. Ferðamaðurinn: En er þið hafið eignazt svo mikið í fasteign, sem þið æskið, — hvað ætlið þið þá að gjöra? Konan: Þá söfnum við okkur peningum, til þess við þurfum ekki að vinna, þegar við erum orðin gömul, lieldur gætum lifað rólega og áhyggjulaust í ellinni. Ferðamaðurinn: Og hvað lengi haldið þér, að þið getið notið þessara rólegu og áhyggjulausu daga, er þið þrælkið nú fyrir? Konan: Þetta, herra minn, er spurning, sem er sannarlöga torvelt aðsvara; en í þessu bygðarlagi verða menn almennt mjög gamlir. í vetur, sem leið, var hér jarðaður maður, er hafði sex um áltrætt. Ferðamaðurinn: Gjörum nú ráð fyrir, að þið kom- izt, eins og hann, á níræðisaldur, — hvað eigið þið þá í vændum?

x

Kristileg smárit handa Íslendingum

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kristileg smárit handa Íslendingum
https://timarit.is/publication/89

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.