Kristileg smárit handa Íslendingum - 01.01.1869, Síða 17

Kristileg smárit handa Íslendingum - 01.01.1869, Síða 17
17 uð hugsa um, hvernig hann ætti að stýra skipi sinu. f>að er nú víst, að kristindómurinn lieimtar af oss, að vér biðjum guð og hagnýtum oss hans náðarmeðöl, og án þessa getur enginn orðið sannkristinn; en kristilegt líferni er þó einkum innifalið í því, að vegsama guð meðan vér erum að gegna vorum jarðnesku skyldum, að standa stöðugur í freistingunum, og sýna það í allri vorri hegðun, að vér séum Jesú Krists sannir læri- sveinar. Látum oss enn koma með eina sönnun fyrir því, að kristindómurinn getur samþýðst vorum daglegu störf- um, og hún er sú; að kristindómurinn er eigi svo mjög fólginn í því, að vinna andleg og helg verk, heldur öllu fremur í því, að vor veraldlegu störf spretti af andleg- um og helgum rótum. t’egar vér dæmum um verkin, erum vér vanir að líta meir á hið ytra yfirborð þeirra, en á tilganginn og þær hvatir, sem þau spretta af; en þannig er ekki guðs dómi varið, hann lítur ekki á verkið sjálft, lieldur á tilgang þess og hugarfarið. Þannig er t. a. m. guðsþjónustugjörðin heilagt verk og eitt- hvert hið bezta helgunarmeðal; en þó gelur hún orðið viðurstyggð í guðs augum, ef menn hafa guðsorð um hönd, eða sækja kirkju einungis fyrir siðasakir. Hug- arfarið getur gjört kristilega hluti veraldlega og verald- lega hluti kristilega. Hafir þú Iírists anda og látir hann stjórna þér, þá verður allt kristilegt, sem hefir upptök sín frá honum. Ef þú ert sannkristinn, þá mun kristi- legt hugarfar þitt stjórna öllum orðum þínum og verk- urn. I’að er ekki svo að skilja, að þú þurfir allt af að tala um guðlega hluti, því að það er miklu hægra að fylla tal sitt með guðrækilegum orðum, en að láta tal sitt um veraldlega hluti spretta af guðrækilegu hugar-

x

Kristileg smárit handa Íslendingum

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristileg smárit handa Íslendingum
https://timarit.is/publication/89

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.