Kristileg smárit handa Íslendingum - 01.01.1869, Síða 18
18
fari. Sé hjarta þitt gagntekið af kristilegu frómlyndi,
hógværð og alvörugefni, þá mun daglegt tal þitt verða
kristilegt um hvað sem þú talar. Láttu Jesú elsku
þrýsta þér til að vilja öllum vel; þá mun þitt hvers-
dagslega líf verða andlegt og þitt andlega líf meir og
meir «brennandi». Við það munu ekki einungis bænir
þínar verða heitari, heldur mun þá líka allt líferni þitt
stefna til himins og verða stöðug bæn, þóttvarir þínar
bærist ekki. Þá muntu reyna, að þessi áminning post-
ulans: «verið í iðninni ólatir, í andanum brennandi,
drottni þjónandi», er bæði auðveld og eðlileg.
Til þess að lifa kristilega verða því allar athafnir
vorar að spretta af kristilegum hvötum; en með því er
þó ekki sagt, að vér mitt í vinnu vorri getum ælíð
beinlínis hugsað um guð og guðsorð. Margri vinnu er
svo varið, að það verður að hafa allan hugann á henni,
og á meðan er ekki hægt að hafa guðrækilegar hug-
leiðingar. En samt sem áður getur kristileg trú haft
áhrif á það, sem vér tölum og gjörnm án þess vértök-
um eptir því, á sama hátt og vér heyrum, sjáum, göng-
um og drögum andann án þess að hugsa um það nátt-
úrulögmál, sem þetta á rót sína í. Eins og logn og
kyrð getur búið í sjávardjúpinu, þó sjávarflöturinn sé
æstur af stormi, eins getur og friður búið í djúpi hjart-
ans, þó vort ytra líf óspekist af veraldlegum störfuin.
Þær liugsanir, sem búa í djúpi hjartans stjórna vorum
daglegu sýslunum. Hugur verkamannsins hvarflar ein-
att heim til konu og barna, og þessi hugsun truflar
hann ekki, heldur lífgar hann og gleður; hví skyldum
vér þá ekki mitt í vinnu vorri geta rennt huganum upp
til vors himneska lieimkynnis og ástvinar vors áhimn-
um? Já, hvernig sem á stendur fyrir oss, er von sann-