Kristileg smárit handa Íslendingum - 04.01.1869, Blaðsíða 1
KRISTILEG SMÁRIT
HANDA ÍSLENDINGOM.
M 4.-5.
ENN I*Á GJÖRIR GUÐ KRAPTAVERK.
Poniká heitirþorp eitt hjá Grossenhain í konungs-
ríkinu Sachsen; þar gjörðist árið 1866 hinn minnilegi
atburður, er hér segir frá. Sóknarpresturinn þar á
staðnum heitir Auerswald. Frásöguna um þenna atburð,
er fékk honum svo mikils harms og svo mikils fagnað-
ar, hefir hann ritað og látið prentaguði hinum miskun-
sama til vegsemdar, og mönnum til stirkingar í þeirri
trú, að »þessi guð er oss frelsis guð, og drottinn, vor
herra, er frelsun frá dauðanum« (Sálm. 68, 20). Eptir
riti Auerswalds er þetta tekið.
í Poniká var vatnsskortur mikill. Neyzluvatn fékkst
hvergi í sókninni nema í einum brunni, og rann einnig
vatn í hann úr pollum, er rigningarvatni var safnað í
handa nautpeningi. En fyrir löngu var hætt að renna
í brunninn úr pollum þessum, og þurkaárin 1865 og
1866 þornuðu þeir alveg upp, svo að menn urðu að
fara langar leiðir til þess, að ná í vatn handa nautpen-
ingnum. En vatnið í sóknarbrunninum minnkaði líka,
svo að menn komust í mestu vandræði í þorpinu sök-
um vatnsleysis, og skortur þessi hefði orðið óþolandi,
ef nokkrir sóknarmenn hefðu eigi tekið sig saman um
að grafa sér í sameiningu brunn; en hvað var það handa
3. ár.