Kristileg smárit handa Íslendingum - 04.01.1869, Blaðsíða 36
36
hefur eigi að eins mýkt þjáningar líkamans, heldur og
einnig veitt mörgum manni geðró og andlega hugssvöl-
un; og opt hafa orð hans orðið deyjandi mönnum leið-*
togi gegnum dauðann til lifsins; í hverjum bágindum
hefur hans verið leitað, því jafnan hefur hann verið fús
að hjálpa, og hvorki sparað fyrirhöfn ne fé, til að bæta
úr þeim. Hver maður, sem þekkir hann, biður honum
einnig blessunar, og heyrir ekki svo nafn hans nefnt,
að hann komizt eigi við.
Enn þá stendur á leiði móður hans krossmarkið
með orðunum: »hún kemur ekki til vor, heldur komum
vér til hennar«. Opt gengor læknirinn þangað og les
þau. Hann gleður sig nú í þeirri von, að þau innan-
skamms muni rætast og hann fá i eilífu lííi að hitta
aptur foreldra sína. Og vissulega mun þess nú eigi
langt að biða, að hann komi til þeirra og heyri þá segja
amen til þessara orða drottins: »þú góði og trúi þjón,
gakk inn í fögnuð herra þins«.
Kosta 8 slí.
í prentamiðju íalanda 1869. E. Þórðaraon.