Kristileg smárit handa Íslendingum - 04.01.1869, Blaðsíða 33

Kristileg smárit handa Íslendingum - 04.01.1869, Blaðsíða 33
33 unni, svo enginn skyldi yrða á sig, og gekk þangað, sem foreldrar hans höfðu verið jarðsettir. Faðir hans hafði látið setja krossmark áleiði móður hans, og stóðu neðst á því þessi orð: «Hún kemur ekki til vor, held- ur komum vér til hennar». t’essi orð las hann aptur og aptur; nú kom honum eigi til hugar, að efast um, að annað líf væri til eptir þetta. Hann fann til þess með ógn og skelfmgu, að fyrir sér lægi annað líf. «Hvernig getegkomið til móður minnar? Mun eg eiga fyrir höndum sömu vistarveru sem hún? Eg, sem lifi eins og enginn guð sé til». í’annig spurði hann sjálfan sig, og datt lionum þá í hug saga ein, sem móðir hans hafði einu sinni sagt honum, og var hún á þessa leið: «Einu sinni var móðir nokkur guðhrædd, er átti vond börn; þau hlýddu henni eigi, heldur fóru sínu fram og Iítilsvirtu guð og hans orð. Hana dreymdi einu sinni, að efsti dagur væri kominn, og allar sálir söfnuðust saman, til að heyra dóm sinn; englarnir komu og skipuðu, eins og ritningin kemstað orði, sauð- unum til hinnar hægri handar, en höfrunum til hinnar vinstri. I'á þótli henni einn engill kalla á sig og segja, að hún væri meðal hinna útvöldu. «En börnin mín»? spurði hún. "Þau hafa hafnað guðs náð» mælti eng- illinn, «og eru ekki meðal þeirra, sem hólpnir eru orðn- ir». Henni þólti þá börnin þyrpast utan um sig og biðja að taka sig með. «Já, ef mér væri það mögu- legt» sagði hún. Engillinn snart hana þá, og þótti henni þá, sem tilfinningar hennar allar kæmust við, ástin kólnaði á börnunum, sem vald hins vonda ríkti í, og hún yrði ánægð með dóm drottins yfir þeim; hún snéri sér þá að börnunum ogsagði: «Egætlaðiað leiða yður til droltins, en þér vilduð það eigi; nú verð eg

x

Kristileg smárit handa Íslendingum

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kristileg smárit handa Íslendingum
https://timarit.is/publication/89

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.