Kristileg smárit handa Íslendingum - 04.01.1869, Blaðsíða 20

Kristileg smárit handa Íslendingum - 04.01.1869, Blaðsíða 20
20 þreyttir og eptir sig, en 23. dag desembermánaðar fóru þeir í kirkju og lýsti presturinn þá hátíðlega blessun drottins yfir þeim og Böhmig, er þeir næst guði áttu að þakka líf sitt. Eptir miðjan dag var Traugott aptur viðstaddur bænagjörð prests; síðan fóru þeir kátir heim til sín. 24. dag desembermánaðar báru þeir sjálfir rúm þau, er þeir höfðu legið í út úr húsi prestsins: »Stattu upp, tak sæng þína og gakk!« tegar prestur um árs- lokin lauk við skýrslu sína um viðburði þessa, voru bræðurnir heilbrigðir og ósjúkir, en voru þó ekki búnir að fá nógan þrótt til stritvinnu. En hvernig gat allt þetta skeð? Hvernig leið bræðr- unum niðri í djúpi jarðarinnar? Hvernig gátu þeir lif- að þar í 11 daga? Hvaða kraptaverk frelsaði þá frá dauðanum? tannig hlýtur hver sá að spyrja, sem les þetta, og því skal nú segja nákvæmlega frá því, er bræðurnir sögðu frá um þetta. Þessir 2 bræður voru þá 8. dag desembermánaðar að múra upp brunninn að neðan, þá varð brestur mik- ill, veggir brunnsins steyptust yfir þá og jörðuðu þá neðst niðri í brunninum. «Hættið!» æptu þeir, og því næst: "Hjálpið! ITjálpið! •* Fyrra ópið hafði heyrzt upp, en ekki hið síðara. Bræðurnir féllust í fang, en voru með rænu; þeir fundu að þeir stóðu í sandi upp í hné, en að öðru leyti voru þeir heilir á hófi. Sök- um hávaðans, er þeir heyrðu yfir sér, ætluðu þeir, að brunnurinn mundi allur frá efsta barmi hafa hrunið yfir sig, og urðu þeir þá æði skelkaðir. Þeir hjálpuðu hver öðrum upp úr sandinum og kveiktu svo á eldspítu, til þess að sjá hvar þeir væru. f>á sáu þeir, að hönd drottins hafði í einu vetfangi byggt þeim nokkurs kon- ar skála af þverbitunum og borðum þeim, cr höfðu

x

Kristileg smárit handa Íslendingum

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kristileg smárit handa Íslendingum
https://timarit.is/publication/89

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.