Fréttir frá Íslandi - 01.01.1871, Blaðsíða 6

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1871, Blaðsíða 6
6 LANDSTJÓRN. búseltur á íslandi og hafi umboð til að úrskurða og staðfesta ðll þau mál, er þyrftu úrskurðar eða staðfestingar konungs. Að því er snerti stjórnarstöðulögin, þá skoraði meiri hluti nefnd- arinnar einnig á þingið, að mótmæla gildi þeirra eins og þau lægju fyrir, og að áskilja, að málið yrði lagt fyrir sjerstakt þing á íslandi með fullu samþykktaratkvæði.— Minni hluti nefnd- arinnnar komst að allt annari niðurstöðu; að því er snerti frumvarpið, þá þótti honum fátt athugavert við það, og rjeð því þinginu að fallast á það með nokkrum smábreytingum, er hann hafði gjört við það; að því er snerti stjóraarstöðulögin, þótti honum þau rjett að formi og haganlegri að efni en það sem er, og fann enga ástœðu til að mótmæla þeim. Jafnskjótt sem nefndin hafði lagt fram álit sitt, var undið að því að rœða málið áþinginu; fór nú semjafnan fyrrum, er mát þetta hefur verið rœtt á þingi, að mjög ólíkar skoðanir komu fram í mörgum atriðum, og skiptist þingheimur í tvo flokka. Annars vegar voru ílestir þjóðkjörnir þingmenn í meiri hluta, og töluðu máli íslendinga, en hins vegar voru hinir konungkjörnu þing- menn í minni hluta, og studdu frumvarp konungs; enn voru og nokkrir þjóðkjörnir þingmenn, er vildu miðla málum og koma sætt- um á, en hölluðust þó fremur að minni hlutanum, er þeir hugðu, að slíkt mundi fremur draga til samkomulags; en hjer var þess eigikostur; ágreiningsatriðin voru of mörg og of mikil til þess að slíks væri von, og það því fremur sem hvorirtveggja litu á málið frá gagnstœðu sjónarmiði og leiddu ágreiningsatriði sín af gagn- stceðum rökum. Ágreiningsatriðin á þinginu voru því nær hin sömu, sem komið höfðu fram í nefndinni, og ástœður þær, er báðir hlutarnir báru fram fyrir máli sínu, einnig mjög líkar, en hvorttveggja kom nú ef til vill enn skýrara fram í rœðum þing- manna. Hjer er eigi kostur að greina frá umrœðunum sjálfum, en verður að eins að geta ú r s 1 i t a þeirra, er mál þetta fjekk að lyktum á þinginu að þessu sinni. þá er þingið hafði rœtt málið á lögboðinn hátt, samdi það álitsskjal sitt um málið til konungs; tók það hjer fram, að hið konunglega frum- varp væri í ýmsum greinum þannig lagað, að þingið gæti eigi gengið að þvi fyrir hönd þjóðarinnar; benti það jafnframt á hina helztu annmarka, er á því væru, og greindi ástceður sínar fyrir því, að það væru verulegir annmarkar; en með því að annmark-

x

Fréttir frá Íslandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.