Fréttir frá Íslandi - 01.01.1871, Side 7
LANDSTJÓRN.
7
arnir og ástœðurnar voru því nær hinar sömu, er nefndin hafði
bent á, er eigi þörf á að geta þeirra hjer sjerstahlega; en það sem
þingið einkum tók fram var það,að ógjörandi væri, að œðsta stjórn
landsins væri í fjarska frá landinu og hefði ábyrgð fyrir dönsku
þingi; úr þessu kvað það mega boeta á tvennan hátt, annaðhvort
meðþví, að landstjóri sje skipaður á íslandi, er sje þar búsett-
ur og hafl ábyrgð fyrir alþingi, og erindsreki sje jafnframt skip-
aður í Iíaupmannahöfn, sem i umboði landsstjórans og á hans
ábyrgð beri þau mál upp fyrir konungi, er undir hans úrskurð
þurfi að koma, eða hins vegar með því, að skipaður sje yflr
landið konunglegur umboðsmaður eða jarl, er hafl undir sjer
einn eða fleiri ráðherra, sem hafl ábyrgð fyrir alþingi. í*ó að
þinginu þœtti þetta síðarnefnda fyrirkomulag ceskilegast, vildi það
eigi gjöra það að aðaltillögu sinni, en kaus heldur hitt, og breytti
frumvarpinu samkvæmt þvf.
Samkvæmt því, sem hjer hefur sagt verið, beiddi þingið
(meiri hlutinn) konung þess:
að staðfesta hið breytta frumvarp þingsins (samþykkt með 17
atkvæðum gegn 8),
og til vara:
að, ef hann eigi geti samþykkt þetta frumvarp þingsins, þá
að skipa þann mann yfir ísland, er haft œðstu stjórn lands-
ins á hendi, og stjórnarherra með lagaábyrgð fyrir alþingi,
og setja ákvarðanir um það inn í stjórnarskrána (samþykkt
með 16 atkvæðum gegn 9).
Jafnframt ljet þingið (meiri hlutinn) í ljós óánœgju þings og
þjóðar með lðgin 2. jan. 1871, með þeim ástœðum, er fyr eru
greindar, og lýsti því yfir:
1, að það gæti eigi viðurkennt, að lög 2. jan. 1871 sjeu bind-
andi fyrir ísland eins og þau nú liggja fyrir (samþ. með
14 atkv. gegn 10).
2, a ð það taki fyrir íslands hönd á móti þeim 30000 -+- 20000
rd., sem eptir lögum 2. jan. 1871 eiga að greiðast úr rík-
issjóði Danmerkur í hinn íslenzka landssjóð, en geti þar á
mót eigi viðurkennt, að öll skuldaskipti milli rfkissjóðsins
og íslands sjeu þar með á enda kljáð (saraþ. með 15 atkv.
gegn 9).
3, að jafnframt og þingið geymi þannig íslandi rjett þess ó-