Fréttir frá Íslandi - 01.01.1871, Page 15

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1871, Page 15
I.ANDSTJÓRN. 15 í þessu málefni, að efasamt væri, hvort haldandi væri lengra út í málið, en þó skaut hún því til ákvörðunar þingsins; nefndiu skýrði enn fremur frá, að gjaílr þær, er greiddar væru og heitn- ar, næmu til samans eigi fullum 1600 rd., og þó að safnakynni mega nokkrum hundruðum ríkisdala í viðbót, þá mundi fjeð alls eigi hrökkva til þess, að fullnœgja ákvörðun þingsins 1867, að byggja alþingishús úr steini. Forseti lagði skýrslu þessa fyrir þingið, er kaus nefnd til að íhuga málið. Þingnefndin lagði það til, að skora á þá menn, er staðið höfðu fyrir samskotunum, að halda áfram starfa sínum og geyma það næsta alþingi (1873), að ákvarða, hvernig fje því skuli verja, er innheimtist. tingið fjellst á tillögur nefndarinnar, og varð það niðurstaða þessa máls að því sinni. Þess má geta, að af tillögum þeim, er komu fram um það, hvernig fjenu skyldi verja, Imeigðust þingmenn helzt að þeirri tillögu, er fór fram á, að verja fjenu til að semja sögu íslands. j>egar litið er yflr þau mál er þingið hafði til meðferðar að þessu sinni, þá getur það eigi dulizt, að flest þeirra eru harðla þýðingarmikil; sum þeirra lúta að því að bœta skipun á stjórn landsins, bæði í heild sinni og 1 sjerstökum greinum, sum að því að auka og tryggja tekjur landsins, sum að því að efla at- vinnuvegina og sum að almennri þjóðmenningu og öðru því, er landi og lýð má verða til þrifa og framfara. Öllum þessum málum gat þingið eigi lokiðáhinum lögákveðna tíma, og lengdi konungsfulltrúi því þingið um 3 vikur. finginu var slitið 22. ágúst, og hafði það þá staðið rúmar 7 vikur. Allur kostnaður- inn við þingið var hjer um bil 11200 rd. liOg og 1 a g a b o ð handa íslandi komu mjög fá út næst- liðið ár, og eru þau fljótt talin: 1, Lög um hina sljómlegu stöðu íslands í ríkinu, dagsett 2. janúar. Gildi laga þessara fyrir ísland eins og þau nú liggja fyrir hefur alþingi neitað fyrir hönd þjóðarinnar, svo sem fyr er sagt. 2, Tilskipun um byggingu hegningarhúss og fangelsa á íslandi m. fl., dagsett 4. dag marzmánaðar. í tilskipun þessari er boðið að byggja hegningarhús í Reykjavik, til þess að úttaka vinnuhegningar, og 7 fangelsi 1 landinu, til þess að framkvæma fangelsishegningar, samkvæmt hegningarlögunum 25. júní

x

Fréttir frá Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.