Fréttir frá Íslandi - 01.01.1871, Síða 24

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1871, Síða 24
24 MANNFJÖLGUN. auðugur liöfðingi vestanlands, dó 3. júlí, 70 ára. Stúdent Guðmundur Jónsson í Reykjavík dó 30. ág., 19 ára að aldri; hann var ágætlega gáfaður og vel að sjer. Tveir skóla- piltar dóu: Óli Sigfússon Schulesen, 19 ára, 1. jan., og Magnús Þorláksson, 20 ára, 12. ág.; báðir voru þeir hin efnilegustu ungmenni. Meðal merkisbœnda má geta þeirra Einars Stefánssonar, klausturhaldara á Reynistað, er dó undirlok aprílmánaðar, 70 ára, Sigurðar Brynjólfssonar, fyrrum alþingismanns í Múla f Álptafirði, er dó 2. júnf, 79 ára, Sturlaugs Einarssonar í Rauðseyjum, er dó 24. júnf, 74 ára, Vilhjálms HákonarsonaríKirkjuvogi, er dó 20. sept., 59 ára, og JóhannesarKristjánssonar, fyrrum á Laxa- mýri, er dó 2. okt., 78 ára. Atvinnuvegir. Með því að atvinnuvegir íslendinga fara optlega svo mjög eptir því, hvernig viðrar, þá er nauðsynlegt að skýra frá veðuráttufarinu, áður en minnzt er á atvinnuvegina sjálfa. Þegar á allt er litið, var veðuráttufar á íslandi mjög gott næst- liðið ár. Framan af vetrinum 1870—71 var víðast hlýtt veður og fannkoma lítil; hjelzt það harlnær fram að jólum; þá tók drjúgum að snjóa, og voru fannalög komin um allt land í árs- lok. Þegar eptir nýár tók upp snjó allan á suðurlandi, vestur- landi og um vesturhluta norðurlands, en um austurhluta norð- urlands voru frost og fannkomur fram undir lok janúarmánaðar; þó hlánaði stundum dag og dag, og gjörði blota og kaföld; hlupu þá snjóflóð sumstaðar fram á norðurlandi og gjörðu tjón nokkurt á fjenaði manna og heyjum. Fyrri hluta febrúarmán- aðar voru góðviðri um allt land; en er líða tók á mánuðinn, fór veðurátta mjög að spillast og gjörði nú um hríð hið óslöðugasta veður, en þó jafnan hart. |>á er kom fram í marzmánuð, harðn- aði enn meir og kynngdi niður snjó miklum um allt land, en þó einkum norðanlands; þó tók yfir, er kom fram í miðjan mán-

x

Fréttir frá Íslandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.