Fréttir frá Íslandi - 01.01.1871, Qupperneq 31

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1871, Qupperneq 31
ATVINNCVEGIB. 31 voru hinir stœrstu hvalirnir 40 álna að lengd. Trjárekar urðu og einnig nokkrir, einkum á Hornströndum vestra og ( Skaptafellssyslu og Grindavík sj'ðra. Strandrekar mega einnig teljast með höppum ísiendinga, þó að þá leiði af ó- höppum annara; næstiiðið ár höfðu Islendingar þó mjög lítil höpp af óhöppum þessum. Erlendir aflamenn lágu einnig við strendur íslands næstliðið ár sem undanfarin ár. Hið frakkneska fiski- veiðafjelag sendi miklu færri skip til íslands um vorið en vant er að vera; kom það af ófriðnum, er Frakkar höfðu þáátt; sumir skipaeigendurnir höfðu orðið að láta skip sín í herskatt, eða voru svo nauðulega staddir, aðþeirgátu eigi búið þau að mönn- um eða vistum. fau skip, er komu, öfiuðu vel, og barst eigi mjög á. Hið danska fiskiveiðafjelag, er undanfarin ár hefur haft skip til veiða við strendur íslands, hafði beðið slíkt tjón á útveg sínum, að því þótti nú mál að hætta; á fundi, er fjelagsmenn hjeldu í febrúar í Kaupmannahöfn, taldist svo til, að tjónið næmi 240000 rd.; var þá fjelagið rofið og skip þess og veiðarfoeri seld. Norskir síldarveiðamenn lágu fyrir Austíjörðum um sumarið, en öfluðu lítið. Hollenzkurhval- veiðamaður lá einnig fyrir landi á Austfjörðum ; aflaði hann vel, og var í september búinn að fá 12 hvali; seldi hann lands- mönnum rengið við góðu verði, en gaf þvestið, og varð það mörgum að björg. Að þvi er snertir námnr á íslandi, má geta þess, að næstliðið sumar kom til íslands prófessor einn danskur, John- strup að nafni, til að skoða brennisteinsnámurnar í Þingej'jarsýslu; var hann sendur að ráði lögstjórnarinnar og átti að rannsaka, hve mikill brennisteinn væri í námunum, og láta í Ijósi álit sitt um það, hvernig raætti gjöra hann arðsamastan fyrir landið. Johnstrup rannsakaði námurnar vandlega og komst að þeirri niðurstöðu, að Hlíðarnámurnar væru auðugar að góð- um brennisteini og gætu orðið mjög arðberandi; Fremri námur (og sömuleiðis Þeystareykjanámur) áleit hann miður arðberandi, en þó vel til vinnandi að yrkja þær; Iíröflunámur ætlaði hann að eigi mundi svara kostnaði að yrkja. Jobnstrup þótti ráðlegast að selja brennisteinstekjuna á leigu gegn árlegu eptirgjaldi, en þó með þeim skilyrðum, að leigumaður eigi spillti námunum.

x

Fréttir frá Íslandi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.