Fréttir frá Íslandi - 01.01.1889, Side 14

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1889, Side 14
16 Atvinnuveglr. sírópi 5 a., af alls konar tóbaki 35 a. af hverju pundi, nema vindlum 1 kr. af hundraði hverju. Fyrir bindindismálum landsins gengust Góðtemplarar enn sem áður og mun hafa orðið heldur minna ágengt en að und- anförnu, nema á stöku stöðum, Reykjavík og Seyðisfirði, par sem fjelagatalan jókst að mun. pótti drykkjuskapur heldur fara í vöxt, einkum í kaupstöðum. Framkvæmdarnefnd stór- stúku íslands sendi út í ársbyrjun áskorun til landsmanna um að skora á alpingi að banna tilbúning, aðflutning og verzlun með áfengisdrykki hjer á landi og nema úr gildi lög um toll á áfengisdrykkjum. Var pví máli lítið sinnt yfir höfuð; pó fjekk ein stúkan, «ísafold» á Akureyri, safnað 9 hundruð und- irskriptum, en málið var pó aldrei borið upp á pingi. Fjelags- menn voru 1. febr. 1402, en stúkur samtals 15 á landinu. Samgöngur. Brúargerðinni á ölvusá pokaði pað áfram petta árið, að lög pau, er pingið hafði samið, og ætlazt svo til að landssjóð- ur legði af mörkum 40,000 kr. með pví skilyrði, að sýslufje- lög Arness- og Rangárvalla-sýslu og jafnaðarsjóður suðuramts- ins legði til fyrirtækisins allt að 20,000 kr. í viðbót, voru staðfest af konungi 3. maí. Hafði Tryggvi Gunnarsson tekið að sjer brúarsmíðið og ljet pegar um haustið fara að afla grjóts til stöplanna, sem hlaðnir verða að sumri, en brúin skal verða fullgjör 1891. — Til vegagerða bæði á póstleiðum og öðrum vegum var úr landssjóði varið rúmum 20,000 kr.; var lokið við Svínahraunsveginn niður til Reykjavíkur, haldið áfram að leggja veginn yfir Mosfellsheiði og aðrir vegir bættir víðsvegar um land. Að öðru leyti munu Skagfirðingar hafa unnið mest landsmanna að brúargerðum í sínu hjeraði á pessu ári. — Póstafgreiðslan á Breiðabólstað i Pljótshlíð var eptir skipun landshöfðingja, 19. jan., flutt að Oddaá Rangárvöllum. — Yið hið sameinaða gufuskipafjelag gerði ráðgjafi íslands nýjan samn- ing 2. nóv. og skyldu nú farnar 11 ferðir fram og aptur milli Reykjavíkur og Kaupmannahafnar, en 10 ferðir alls umhverfis landið, enda jók alpingi tillagið úr landssjóði til strandferða

x

Fréttir frá Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.