Fréttir frá Íslandi - 01.01.1889, Qupperneq 14
16 Atvinnuveglr.
sírópi 5 a., af alls konar tóbaki 35 a. af hverju pundi, nema
vindlum 1 kr. af hundraði hverju.
Fyrir bindindismálum landsins gengust Góðtemplarar enn
sem áður og mun hafa orðið heldur minna ágengt en að und-
anförnu, nema á stöku stöðum, Reykjavík og Seyðisfirði, par
sem fjelagatalan jókst að mun. pótti drykkjuskapur heldur
fara í vöxt, einkum í kaupstöðum. Framkvæmdarnefnd stór-
stúku íslands sendi út í ársbyrjun áskorun til landsmanna um
að skora á alpingi að banna tilbúning, aðflutning og verzlun
með áfengisdrykki hjer á landi og nema úr gildi lög um toll
á áfengisdrykkjum. Var pví máli lítið sinnt yfir höfuð; pó
fjekk ein stúkan, «ísafold» á Akureyri, safnað 9 hundruð und-
irskriptum, en málið var pó aldrei borið upp á pingi. Fjelags-
menn voru 1. febr. 1402, en stúkur samtals 15 á landinu.
Samgöngur.
Brúargerðinni á ölvusá pokaði pað áfram petta árið, að
lög pau, er pingið hafði samið, og ætlazt svo til að landssjóð-
ur legði af mörkum 40,000 kr. með pví skilyrði, að sýslufje-
lög Arness- og Rangárvalla-sýslu og jafnaðarsjóður suðuramts-
ins legði til fyrirtækisins allt að 20,000 kr. í viðbót, voru
staðfest af konungi 3. maí. Hafði Tryggvi Gunnarsson tekið
að sjer brúarsmíðið og ljet pegar um haustið fara að afla grjóts
til stöplanna, sem hlaðnir verða að sumri, en brúin skal verða
fullgjör 1891. — Til vegagerða bæði á póstleiðum og öðrum
vegum var úr landssjóði varið rúmum 20,000 kr.; var lokið
við Svínahraunsveginn niður til Reykjavíkur, haldið áfram að
leggja veginn yfir Mosfellsheiði og aðrir vegir bættir víðsvegar
um land. Að öðru leyti munu Skagfirðingar hafa unnið mest
landsmanna að brúargerðum í sínu hjeraði á pessu ári. —
Póstafgreiðslan á Breiðabólstað i Pljótshlíð var eptir skipun
landshöfðingja, 19. jan., flutt að Oddaá Rangárvöllum. — Yið
hið sameinaða gufuskipafjelag gerði ráðgjafi íslands nýjan samn-
ing 2. nóv. og skyldu nú farnar 11 ferðir fram og aptur milli
Reykjavíkur og Kaupmannahafnar, en 10 ferðir alls umhverfis
landið, enda jók alpingi tillagið úr landssjóði til strandferða