Fréttir frá Íslandi - 01.01.1889, Blaðsíða 21
Menntun og menning.
23
að mikill porri menntamanna í höfuðstaðmim fór að gefa
þessum málutn meiri gaum en áður og var almennur málfund-
ur haldinn 23. nóv. til þess að ræða um þes-d mál, einkum
ræðu 6. P., er þá var prentuð; umræðurnar voru og prentaðar
skömmu síðar. — 13. apríl sagði Klemens Jónsson sögu «Jör-
undar hundadagakonungs.» — 13. júlí talaði Hafsteinn Pjet-
ursson langt erindi um danska skáldið Oehlenschláger. - - 21.
des. talaði W. 6. S. Paterson um efnasamsetning loptsins og
gerði áheyrendunum um leið málið ljóst með efnafræðislegum
tilraunum.
Pyrir ýmsum skemmtunum í Rvík gekkst sem fyrri
þorlákur 0. Johnson, kaupmaðurog hrókur alls fagnaðar tfyrir
fólkið■■ í höfuðborginni; þess skal og getið honum til lofs, að
hann gaf tvívegis fátæku fólki kost á að vera við myndasýn-
ingar sínar, söguupplestur o. s. frv., í fyrra skiptið nær 250
fullorðnum mönnum, og síðara skiptið nálægt 400 börnum. — 1
Reykjavik voru og leiknir í febr. og marz nokkrum sinnum 4
gamanleikir; «Kox og Box,» «Sá er ekki feiminn.» «Pá er jeg
næstur* (allir úr ensku), og «Sambýlisfólkið» (úr dönsku). A
Sauðárkrók var og um sama leyti leikinn «Skugga-Sveinn» og
nokkrir gamanleikar eptir útlenda höfunda.
Slysfarir.
Skipbrot og fjártjón. Manntjón af slysum. SjálfsmorS.
Skipbrot og fjártjón. Sökum þess, að tíð var venjulega
hagstæð þetta árið og sjaldan kom aftakaveður, urðu skipreik-
ar og fjemissur á sjó og landi með minnsta móti. Skal hjer
getið þeirra slysa, sem helzt eru kunn orðin.
í jan. týndist smáskúta ein, Scejari, frá Stykkishólmi, eign
H. A. Clausens, á leið frá Reykjavík með matvöru til Ólafs-
víkur, lagði út frá Rvík 21. jan. og hreppti hörð veður; rak
flak af skipinu skömmu síðar undir Jökli og skutinn í Bjarn-
eyjum; formaður var Guðjón Jónsson frá Hergilsey, en einn
hinna var Jón, elzti sonur Bjarna bónda þórðarsonar á Reyk-
hólum. Parþegi var á skipinu, er Lárus hjet, á heimleið úr
betruparbúsinu { Ryfk; 5 menn ljetust alls. í ofsaveðrinu