Fréttir frá Íslandi - 01.01.1889, Síða 23
Slysfarir. 25
nm og Brekku (60 fjár), í þistilfirði á Flutningsfelli (40 fjár)
og Ytra-Ábandi (25 fjár). — 27. s. m. braut skonnortuna
«Holger*, eign H. A. Clausens í Khm., í spón við Gullskriðu-
bala á Stigahlíð við ísafjarðardjúp; mestur hluti farmsins, 650
skpd. af saltfiski, ónýttist. Skipstjóri H. P. N. Ibsen og ung-
lingur fórust við skipið, en 5 skipverjar komust á land og dóu
2 þeirra síðar. — 8. des. sleit upp á Reykjavíkurhöfn kaup-
skipið <Maríu» frá Flatey, eign verzlunar Jóns sál. Guðmunds-
sonar, og braut við Eiðsgranda á Seltjarnarnesi; beið hjer byrj-
ar til Noregs; skipstjóri var Bjarni Vigfús Thorarensen og skip-
verjar allir íslenzkir; manntjón varð ekki. 17. s. m. um morg-
uninn, er bjart var orðið, braut meir eða minna að minnsta
kosti 9 hús á Búðareyri og Fjarðaröldu á Seyðisfirði, öll norsk;
2 húsin sópuðust í sjó fram með öllu, sem í var. Engin pess-
ara húsa voru íbúðarhús. — Á Porláksinessu 23. s. m. um
miðjan dag brann allur bærinn á Hjaltabakka í Húnavatns-
sýslu til kaldra kola á tæpum 2 klukkustundum; eldurinn hafði
kviknað í ofnpípu og læst sig í pak yfir bæjardyrum, svo að
eigi varð við ráðið. Rúmfatnaði, klæðum og reiðskap mestöll-
um varð bjargað.
Manntjón. 23. jan. varð bráðkvaddur í rúmi sínu Eggert
verzlunarmaður Snorrason, lieitins verzlunarstjóra á Siglufirði,
Pálssonar, rúmlega tvítugur. 24. s. m. drukknuðu 3 menn á
Kólkuósi í Skagafirði, Magnús Gíslason, bóndi, og j>orleifur
húsmaður, frá Grafargerði, og Guðmundur nokkur frá
Grafarósi. Náðist 1 peirra með lífsmarki á kili, en dó síðan.
S. d. varð úti í hríðarbyl kvennmaður, Ólöf Jónsdóttir, í
Berserkjahrauni milli Bjarnarhafnar og Kóngsbakka; fór ölvuð,
að sögn, af stað frá Kóngsbakka, og hafði með sjer brennivíns-
flösku. — 23. febr. hrapaði Finnur nokkur Jónsson frá Ham-
arsseli í Hamarsdal í Álptafirði og beið bana af; fannst síðar.
Síðast í s. m. drukknaði kona í læk í Landeyjum. — 28. marz
drukknuðu 2 menn í Haukadalsvatni í Dölum, Jón bóndi Bene-
diktsson frá Vörðufelli og Jónas Jónasson bóndi frá Ketilsstöðum
í Hörðudal. — 17. apríl drukknaði í Ögurhreppi j>órður nokk-
ur Örnólfsson, vinnumaður frá Garðsstöðum; var við kúfisks-
töku með öðrum manni; hinum varð bjargað. 30. s. m. varð
Finnbogi nokkur Finnbogason (ættaður úr Húnavatnssýslu) úti