Fréttir frá Íslandi - 01.01.1889, Page 25

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1889, Page 25
Slysfarir. 27 á Melrakkasléttu 2, Ludvig Lund, sonur C. G. P. Lunds bónda á Kaufarköfn, uin tvítugt ókvæntur, og Stefán nokkur Hall- dórsson, ungur maður ókvæntur. A Hóli á Langanesi varð úti Eiríkur nokkur Stefánsson, stóð yfir fje. Á Skriðuhálsi varð úti Sigurpáll bóndi Árnason frá Snögum í Reykjahverfi í Suð- ur-J>ingeyjars/slu. Á leið af Hólsfjöllum til Axarfjarðar varð úti maður frá Hafursstöðum í Axarfirði. þá varð og úti í Jökulsárhlíð í Norður-Múlasýslu, skammt frá Sleðbrjót, máður, sem Helgi hjet Stefánsson frá Hallgeirsstöðum á leið frá Yopna- firði um Lambadal; samferðamenn hans 2 komust til bæja. í s. m. snemma hrapaði maður í fjallinu upp af Nesi í Norð- firði, Eyjólfur Eyjólfsson, vinnumaður frá Hleiðargarði í Eiða- pinghá; lifði við verstu harmkvæli 11 daga á eptir; en í lok mánaðarins drukknaði af skautum niður um ís á Lagarfljóti unglingur frá Stórasteinsvaði í sömu sveit, er Jakob Hjörleifs- son hjet. — 3. eða 4. des. fórst bátur í lendingu í Dölum í Mjóafirði og 2 menn með, en hinum 3. varð bjargað. 12. s. m. dó Gísli nokkur Magnússon í Yestmanneyjum af voðaskoti. S. d. varð úti maður, Bjarni Hinriksson, á heimleið frá Hafn- arfirði suður að Vatnsleysu; hafði verið ölvaður. 23. s. m. varð úti á Skorarheiði, milli Furufjarðar og Hrafnsfjarðar, vinnumað- ur frá Furufirði, er Haraldur hjet Guðmundsson. Sjálfsmorð. Hjer skulu taldir nokkrir peir menn, er vit- anlega hafa ráðið sjer bana sjálfir eða dáið síðar af peim meiðsl- um, er peir við slík banaráð hafa fengið. Hjer að ofan er pegar talað um dauða 2 manna að minnsta kosti, er eigi pótti með öllu einleikið um; varð eigi með sannindum vitað, hvort peir hefðu stytt sjer aldur eður eigi. — Síðla í maí drekkti sjer maður nokkur, er orðinn var geðveikur, Brandur Sígurðsson á Mýrum í Skaptafellssýslu. — 20. júlí hvarf um nótt maður, er Árni hjet, á Vestmannaeyjum, um sjötugt; fannst drukkn- aður daginn eptir nærri landi. — 4. ágitst ætlaði vinnukona á Ægissíðu í Rangárvallasýslu, er Guðrún hjet, að hengja sig, en varð ekki af; dó pó af tilræði pessu 7. s. m. — 1. nóv. rjeð Kristján Pálsson, beykir við verzlun Magnúsar Jochumssonar á ísafirði, sjer bana með byssuskoti, rúmlega hálfprítngur. — Síðast í nóv. skaut sig á Gufuskálum í Leiru maður nokkur norðlenzk- pr, er Halldór hjet; hafði verir geðveikur.

x

Fréttir frá Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.