Fréttir frá Íslandi - 01.01.1889, Síða 27

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1889, Síða 27
Mannalát. 29 fúsdóttir, tók hann að sjer í æsku og var hann lengstum á fóstri hjá Jóni bónda Þorleifssyni á Kleifum; nam undir skóla hjá syni hans, Halldóri, er síðar var prestur í Tröllatungu, og síðan hjá frænda sínum, Jorkeli Eyjólfssyni, er síðast var prestur á Staðarstað; árið 1844 fór hann i Bessastaðaskóla og útskrifaðist úr Reykjavíkurskóla 1849 með bezta vitnisburði, fór pví næst til báskólans, tók par 2 hin fyrstu iærdómspróf bæði með bezta vitnisburði; fór hann nú að leggja stund á málfræði, einkum íslenzkar bókmenntir og sögu, en engin önn- ur próf tók hann en nú voru talin. Hin fyrsta ritgjörð hans er um tímatal í íslendingasögum (Safn til sögu íslands I.), hið fróðlegasta rit, er kora út 1855; ýmislegar ritgjörðir í Nýjum fjelagsritum; hann gaf út megnið af 1. bindi og 1. hepti af 2. bindi Biskupasagnanna, Bárðarsögu, Víglundarsögu o. fl. (Kmh. 1860), Eornsögur (Vatnsdælu, Hallfreðarsögu, Flóa- mannnasögu; Leipz. 1860) og Eyrbyggju ineð Th. Möbius (Leipz. 1864), starfaði með öðrum að útgáfu skáldamálsorða- bókar Sveinbjarnar Egilsonar. Arið 1854 ferðaðist hann um Noreg og ritaði ferðasögu sína í Ný fjelagsrit. Hér á landi dvaldist hann 1858 og árið eptir ferðaðist hann um þýzka- land og dvaldi um hríð hjá Maurer í Miinchen; voru pá ís- lenzkar pjóðsögur Jóns Árnasonar í undirbúningi, og ritaði hann formála fyrir peim. Arið 1864 fjekk Dasent hann til að ljúka við og búa undir prentun safn pað til íslenzkrar orða- hókar, sem Cleasby hafði byrjað á og ýrnsir Islendingar höfðu unnið að áður; fluttist hann pá til Lundúna og var par 2 ár; síðan settist hann að í öxnaíurðu og lauk við orðabókina eptir 10 ár, 1874. Sturlungu gaf hann út 1878, íslenzka lestrarbók (Icelandic reader) 1879, norrænt kvæðasafns (Corpus poéticum boreale) 1883, Orkneyingasögur (Icelandic sagas etc.) 1887, og var að starfa að útgáfu allra fsl. fornsagna, er hann lézt. Sumt af pessu gaf hann út í fjelagi við vin sinn F. York Powell. Hann var manna lærðastur í íslenzkum fræðum, enda var hann »flugnæmur og stálminnugur« og iðjumaður hinn mesti, og sjón hans og glöggskyggni hefir opt verið viðbrugðið. Hann var gerður að heiðursdoktor á háskólahátíðinni í Uppsölum 1877 (sbr. æfiminning hans eptir Jón porkelsson í Arkiv för nord. filologi VI. og ísafold 1889, nr. 25).

x

Fréttir frá Íslandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.