Fréttir frá Íslandi - 01.01.1889, Page 31
Mannalát.
33
Af lögfræðingum andaðist á þessu ári:
Jolin HUmar Stephensen, sonur Ólafs Stephensens, yfir-
auditörs og síðast bæjarfógetaí Varde á Jótlandi, Stefánssonar
amtmanns á Hvítárvöllum, 11. maímán. í Kaupmannahöfn
ókvæntur. Hann var fæddur 1846, tók embættispróf 1 lögum
1870, varð síðan yfirrjettarmálfærslumaður, 1880 varð hann
skrifstofustjóri og 1885 forstjóri hinnar íslenzku stjórnardeildar
eptir dauða Oddgeirs Stephensens. Hann var greindur vel,
gegn og góður; var mjög heilsulítill mörg hin síðustu ár æfi
sinnar.
Af öðrum lærðum mönnum, er önduðust á þessu ári, má
nefna Jón stúdent Jónsson, prófasts Jónssonar frá Steinnesi;
hann andaðist á Ingunnarstöðum í Geiradal 22. des., nær fimmt-
ugur.
Af merkisbændum skal getið pessara:
Pjetur Gestsson, Einarssonar hius auðga í Rauðseyjum,
andaðist á Hríshóli í Eeykhólasveit 1. janúarm., hálfsjötugur.
Hann bjó allan sinn húskap eða 33 ár á Hríshóli og var hrepp-
stjóri 15 ár, sáttasemjari og sýslunefndarmaður, pótti vandað-
ur maður og nokkuð forn í skapi, stjórnsamur á sínu heimili.
Fyrri kona hans var Ástríður Magnúsdóttir frá Skáleyjum Ein-
arssonar, en síðari Guðlaug Jónsdóttir frá Höllustöðum.
Eyjólfur Jónsson, Andrjessonar og Kristínar Jónsdóttur, á
Vöðlum í íteyðarfirði, andaðist 13. febrúarm. Hann var fædd-
ur 14. sept. 1820 á Vöðlum og var par alla æfi, kvæntist 15.
okt. 1848 Mekkínu Eyjólfsdóttur, Pjeturssonar í Karlsskála, og
Margrjetar Ásbjartsdóttur. Hann var «siðpríðis-, sóma- og
dugnaðarmaður.v
Jpórður þorsteinsson á Leirá í Borgarfirði, fúðrikssonar,
og Steinunnar Ásmundsdóttur, andaðist 2. marz. Hann var
fæddur á Brennistöðum 1830, kvæntist 1854 Rannveigu Kol-
beinsdóttur á Hofstöðum, fluttist 1868 að Leirá og bjó par við
mikla rausn til dauðadags. Hann var hinn mesti dugnaðarmaður,
gerði stórkostlegar jarðabætur, einkum á Leirá, reisti bæinn par
allan af nýju úr tiinbri og kirkju vandaða, ljet grafa 1400
faðma langa skurði til vatnsveitinga, hlaða túngarð 200 faðma
langan og brýr út frá bænum 200 faðma langar, stofnaði bún-
Frjettir l'rá íblandi 1883 3