Fréttablaðið - 28.05.2001, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 28.05.2001, Blaðsíða 4
4 FRÉTTABLAÐIÐ 28. maí 2001 MÁNUDAGUR SVONA ERUM VIÐ BENSfNÚTGJÖLD HEIMILANNA. Bens- ín vegur 4,8% af heildarútgjöldum heimil- anna. Hlutfall bensínkostnaðar í útgjöldum heimilanna er mismunandi eftir árum og fer eftir verði bensíns miðað við aðrar vör- ur heimilisins. Því hefur þetta hlutfall haekkað undanfarið með hækkandi bens- ínverði. Til samanburðar vó bensínkostn- aður aðeins 3,8% af útgjöldum heimil- anna árið 1999. Allar upphæðir í þús. kr. 1997 1998 1999 2000 2001 EPLI ERU HOLL Rannsóknir sýna að mataræði hefur mikil áhrif á börn. Mataxæði: Hefur mikil áhrif á börn panmörk Að sögn danskra næringa- fræðinga hefur neysla sælgætis, gosdrykkja og ýmis konar óholls fæðis svo mikil áhrif á börn að til neyslunnar má rekja ýmis hegðun- arvandamál þeirra. Að sögn Jonna Deibjerg, við- mælanda dagblaðsins Politiken, hefur verið horft framhjá þessu vandamáli, fæstir foreldrar séu meö á hreinu hversu mikil áhrif mataræði hefur á börnin. Til marks um þetta er tilraun sem gerð var í skóla í Árósum þar sem börn sem hafa átt í erfiðleikum í skóla, m.a. með einbeitingu, fengu morgunmat og hádegismat í skólanum. í kjöl- farið hefur einbeiting barnanna batnað mjög auk þess sem þau verða ekki eins oft veik. Að sögn Deibjerg er óhollt fæði stór hluti mataræðis margra dan- skra barna með tilheyrandi vanda- málum. Talið er að ráðgjöf um mataræði í skólum geti að ein- hverju leyti komið til móts við þennan vanda. ■ Verslunarmannafélag Reykjavíkur: STUTTAR 1' Einelti hrjáir 6% félagsfólks verslunarfólk Á sl. sex mánuðum hafa yfir 20 félagsmenn Verslunarmanna- félags Reykjavíkur fengið aðstoð hjá félaginu vegna einelti á vinnustað, eða nær einn í viku hverri. Gunnar Páll Pálsson forstöðumaður hagdeildar VR segir að þetta sé svipað hlutfall og hjá félögum verslunarmanna á öðrum Norðurlöndum.Það þýðir að um það bil 6% félagsmanna sem leita til fé- lagsins gera það vegna einelti á vinnu- stað. Svo virðist sem einelti á vinnustað sé vaxandi vandamál á vinnumark- aðnum. Það er ekki aðeins að félags- menn VR verði fyrir því heldur einnig aðrar stéttir. í því sambandi má minna á að bankamenn telja þetta vera eitt alvarlegasta vandamálið sem íslenskt atvinnulíf á við að etja. Til að bregðast við þessu vandamáli hefur VR hvatt þá félagsmenn sem verða fyrir einelti ó vinnustað til að skrásetja dag og tíma einelti og ræði það við sína sam- starfsmenn og yfirmenn. Ef einelti er af völdum yfirmanns er haft samband við æðri stjórnendur eins og t.d. stjórnarformenn viðkomandi fyrir- tækja. Þá er innan VR starfandi þrig- gja manna eineltisnefnd sem metur þau mál sem til hennar koma. ■ GUNNAR PÁLL PÁLSSON HAGFRÆÐINGUR VR: Þetta er svipað hlutfall og er hjá verslunarfólki á öðrum Norðurlöndum Fiskibátur fuilur af ólöglegum inn- flytjendum kom að suðurströnd Ítalíu í gær að sögn ítölsku lögregl- unnar. 120 manns voru um borð, langflestir karlmenn. Þeir eru allir kúrdar, búsettir í Tyrklandi, íran og írak. Ef innflytjendurnir geta ekki sýnt fram á að þeir eigi pólitískt hæli skilið eða fjölskylda eða vinna bíði þeirra á Ítalíu verða þeir sendir úr landi á ný. —♦— Fimm manna áhöfn Gæsluþyrl- unnar TF-SIF sakaði ekki þegar nauðlenda þurfti vélinni á Snæfells- nesi, skammt frá Vegamótum um klukkan 21 á föstudagskvöld. Þyrlan lenti í ókyrrð og þyrluspaðarnir slógust í stél hennar. Ekki er vitað til að sams konar óhapp hafi orðið áður á þyrlum af þessari gerð. Stefnir í átök í kj öri til miðstj órnar ASÍ Kosið um rúmlega helming miðstjórnar. RSI ætlar að bjóða fram. VR telur sig eiga rétt á tveimur fulltrúum. verkalýðsmál Viðbúið er að einhver átök geti orðið um kjör fulltrúa til miðstjórnar á ársþingi ASÍ sem hefst í dag, mánudag á Hótel Loftleiðum. Á ársfundinum verður kosið um rúm- lega heiming af miðstjórnarfulltrú- um, en alls eru 15 í miðstjórninni. Meðal annars ætlar Rafiðnaðarsam- band íslands ætlar að bjóða fram fulltrúa sinn til miðstjórnar. Guð- mundur Gunnarsson formaður RSÍ segir að þeir verði með að þessu sinni svo framarlega sem ekki verði ein- hver „flokkspólitískur leðjuslagur“ eins og á þingi ASÍ sl. vetur. Það varð til þess að RSÍ bauð ekki fram full- trúa til miðstjórnar og hefur því ekki átt fulltrúa þar síðan í fyrra. Þá er óvíst hverjir verða í kjöri frá VR en félagið hefur átt tvo fulltrúa í miðstjórn. Kjörtímabili Gunnars Páls Pálssonar hagfræðings VR er að ljúka og nýr fulltrúi kemur í stað Péturs A. Maacks fyrrverandi varaformanns VR. Þótt VR telji sig eiga rétt á tveim- ur miðstjórnarfulltrúum er ekki víst að fulltrúar annarra félaga séu því sammála. Hins vegar virðast nokkur einhugur um að Halldór Björnsson verði endurkjörinn varaforseti, þótt einhverjar innbyrðis væringjar geti átt sér stað innan Starfsgreinasam- bandsins um fulltrúa til miðstjórnar. Helstu mál þessa fyrsta ársþings ASÍ verða að öðru leyti framtíð vel- ferðarkerfisins. Það er jafnréttis- og fjölskyldumál, efnahags- og kjaramál og framtíð húsnæðiskerfisins. Þá verður einnig fjallað um starfshætti ASÍ og áherslur sem miða að því að efla starfsemi skrifstofu sambands- ins. Ennfremur er viðbúið að skipu- lagsmál sambandsins verði til um- ræðu og þá einkum þau er lúta að að- ild félaga að landssamböndum sem eiga beina aðild að ASÍ. Um 280 full- trúar eiga seturétt á þinginu frá 103 aðildarfélögum. Það er hátt í helm- ingi færri fulltrúar en voru á hinum hefðbundnu þingum ASÍ. grh@frettabladid.is FORYSTUMENN Á ÞINGI ASf Mikil átök eiga sér stað oft á tíðum á þingum ASI þar sem menn plotta hver í sínu horni. Bandarísk rannsókn: Spila- og eitur- lyfj afíkn náskyld heilsa. Heilaviðbrögðunum sem fylg- ja góðum vinningi í fjárhættuspili svipar mjög til þeirra sem fylgja skammti af sælugefandi eiturlyfjum, samkvæmt nýrri rannsókn banda- rískra taugafræðinga. Þannig eykst blóðflæði til sama svæðis í hægra heilahvelinu við rúllettuvinning og inntöku kókaínskammts. Við tap í rúl- lettu og inntöku morfíns eykst hins- vegar blóðflæði til ákveðins staðar í vinstra heilahvelinu. „Að finna þessi svæði í heilanum og kortleggja SPILAVÍTI Heilinn notar sömu boðleiðir til að veita „ýmsar tegundir verðlauna," segja vísindamenn. taugaboðleiðirnar sem flytja verð- laun eiturlyfjaneyslunnar gæti fært þróun meðferðarúrræða vegna ým- issa fíknisvandamála á annað stig,“ segir Dr. Alan I. Leshner, yfirmaður bandarískrar stofnunar um fíkni- efnavandann. Jafnvel verði mögulegt að loka fyrir boðleióirnar og geya þannig inntöku fíkiefna áhrifalausa, segir Leshner. ■ Ferðaskrifstofur: Óánægja með launakjör verslunarfólk í fyrirtækjakönnun VR kemur fram að mikil ónægja er með launakjörin hjá þeim félagsmönnum sem vinna hjá þeim ferðaskrifstofum sem þátt tóku í könnuninni. Hjá Heimsferðum sem var þó hæst á listan- um var raðeinkunn fyrir launakjör heil- um 47 stigum lægri en næsta þáttar fyr- ir ofan. VR telur að þarna sé vísbending um gott sóknarfæri. Þá voru flugfélögin frekar neðarlega á listanum eins og í fyrra. íslandsflug var þó yfir meðal- tali, eða í 78. sæti en Atlanta í 111- sæti. Flugleiðir og Flugfélag íslands komu enn verr út og lentu í 189. og 190. sæti heildarl.istans. ■ MAGNUS L. SVEINSSON VR sér sóknarfærí í fyrirtækja- könnun.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.