Fréttablaðið - 28.05.2001, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 28.05.2001, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 28. maí 2001 FRÉTTABLAÐIÐ 15 Þórey Edda keppir á háskólameistaramóti: Fær loksins nóga keppni frjálsar íþróttir Hafnfirðingurinn og stangastökkvarinn Þórey Edda Elís- dóttir keppir á háskólameistaramóti Bandaríkjanna í Oregon í næstu viku. Hún hefur átt við meiðsl á hásin að stríða upp á síðkastið en segist hafa náð sér. „Þetta er langsterkasta mótið hérna út, toppurinn á tímabilinu. Allir íþróttamenn stefna að því allan vetur- inn að standa sig vel þar,“ segir Þórey Edda. Meiðslin á hásininni eru ekki ný af nálinni. „Þetta eru gömul meiðsl sem hrjáðu mig einnig í fyrra. Ég hef ekki getað stokkið í mánuð. Sem bet- ur fer tók ég þá ákvörðun að taka líf- inu með ró í stað þess að hamast á löp- inni. Þannig er ég búin að ná mér núna.“ Þórey Edda er í námi í Universtity of Georgia og keppir jafnan við íþróttafólk í austurriðli. „Þær mættu vera betri hérna í austurriðlinum. Ég hef tekið þátt í tíu mótum og er búin að vinna þau öll. Á háskólameistara- mótinu í næstu viku keppa hinsvegar stelpurnar af Vesturströndinni líka. Þær eru miklu betri. Þess vegna verð- ur keppnin loksins hörð.“ Hún býr í háskólabænum Athens, sem er spölkorn frá Atlanta. „Ég kann mjög vel við mig hérna og er ánægð með það að hafa farið til Bandaríkj- anna. Nokkrir íslenskir íþróttamenn sem hún hittir reglulega eru í skólan- um. Þá eru þær Vala Flosadóttir stöðugt í síma- og skriflegu sam- bandi. Dagskráin hjá Þórey næstu mán- uði er þétt skipuð. í sumar tekur hún þátt í nokkrum mótum í Evrópu. „Ég hlakka til þeirra þar sem ég hef misst síðastliðin sumur út. Síðan keppi ég á heimsmeistaramótinu í Edmonton í Kanada í haust," segir Þórey. Áður en meiðslin á hásininni tóku sig upp gekk henni vel. í mars stökk hún sitt hæsta stökk á ferlinum. Það var á inn- Á UPPLEIÐ Þórey Edda stökk 4.51 metra á innanhús- móti í mars. Stuttu seinna bætti hún sig um einn cm utanhúss, stökk 4.36. anhúslandsmóti í Bandaríkjunum. Þá fór hún yfir 4.51 metra. Fáum vikum seinna bætti hún sig um einn cm utan- húss, fór yfir 4.36 metra. ■ Figo lagði upp 3 mörk: Real Madrid meistari knattspyrna Real Madrid tryggði sér spænska meistaratitilinn í 28. skiptið um helgina þegar liðið gjörsigraði Alaves 5-0 í Madrid. Hinn rándýri Figo sýndi snilli sína í leiknum og lagði upp þrjú af fimm mörkum liðs- ins. Raul skoraði tvö mörk, en Guti, Hierro og Helguera skoruðu eitt mark hver. „Það er ótrúleg tilfinning að vinna titilinn með Real Madrid," sagði Figo eftir leikinn. „Þetta hefur verið erfitt tímabil fyrir mig en titillinn gerir þetta allt miklu auðveldara." Víst er að leikmenn Real Madrid eru enn í sárum eftir að hafa verið slegnir út í undanúrslitum Meistara- deildarinnar, en spænski titillinn ætti þó að vera þeim einhver sárabót. Figo, sem var keyptur til liðsins fyrir 4 milljarða króna, hefur átt mjög gott tímabil með liðinu. Hann hefur skorað GÓÐIR SAMAN Félagarnir Raul og Figo hafa átt stóran þátt í velgegni Real Madríd. 9 mörk í deildinni og lagt upp 17, meira en nokkur annar leikmaður. Figo sem kom til Spánar árið 1995, hefur nú unnið þrjá meistaratitla, tvo með Barcelona og einn með Madrid. ■ Mónakó: Yfirburðarsigur Ferrari formúla i Kappaksturinn í Mónakó var dramatískur í byrjun en þegar líða tók á keppnina var ljóst hvert stefndi, yfirburðarsigur hjá Ferrari var óumflýjanlegur. Þeir Michael Schumacher og Rubens Barrichello, hjá Ferrari, lentu í fyrsta og öðru sæti og Eddie Irvine, hjá Jagúar, lenti í þriðja sæti og krækti þar með í sín fyrstu stig með Jagúar. Aðeins 10 bílar af 22 luku keppni. McLaren ökumaður- inn David Coult- hard, þurfti að ræsa síðas- turáráspól vegna bilu- nar í ræsin- garbúnaði og félagi hans Mika Hakkinen þurfti að hætta eftir 16 hringi, en fram að því hafði hann veitt Schumacher verðuga keppni. Coult- hard náði samt að ljúka keppni í fimmta sæti, en J. Villeneuve, hjá BAR, varð í því fjórða og Jean Alesi, hjá Prost, í því sjötta. Schumacher hefur nú sigrað fimm sinnum í Mónakó, en aðeins einn ökumaður hefur sigrað oftar þar, en það var Ayrton Senna, sem sigraði alls sex sinnum. Þegar sjö keppnum af sautján er lokið hefur Schumacher 10 stiga forystu á Coult- hard, en næsta keppni verður haldin í Montreal í Kanada eftir tvær vikur. ■ MEISTARINN í MÓNAKÓ Michael Schumacher vann sinn 5. sigur í Mónakó í gær. www.syn.is eðaísíma 515 6100 ■ r aSyn inai-rSi.juHi mán Fram - ÍBV Símadeildin kl. 19:45 | mán Toyota-mótaröðin i golfi kl. 22:00 fim HM i ralli kl. 20:45 fos HM í ralli kl. 20:00 fös Kraftasport kl. 20:30 fös Úrslitakeppni NBA kl. 01:00 lau HM i ralli kl. 20:40 sun Argentína - Kólumbía Undankeppni HM kl. 17.45 sun HM í ralli kl. 20:00 S sun Úrslitakeppni NBA kl. 23:30 Bæjarlind Viðskiptavinir okkar hafa mismunandi óskir og vænt- ingar þegar kemur að því að velja símkerfi. Sölumenn okkar eru sérhæfðir í að meta þarfir fyrirtækja og heimila og símkerfi frá Svari eru „klæðskerasniðin" fyrir hvern viðskiptavin. Við bjóðum fjölbreytt úrval símkerfa og tækja. Viðskiptavinir geta treyst því að hjá okkur finni þeir símbúnaðinn sem hentar þeim núna og á næstu árum. Við sjáum einnig um að tengja og skrá breytingar á símatengingum. SIMINN Bæjarlind 14-16 _ 201 Kópavogur _ Sími 510 6000_ Fax 510 6001 Ráðhústorgi 5_ 600 Akureyri_ Sfmi 460 5950. Fax460 5959

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.