Fréttablaðið - 28.05.2001, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 28.05.2001, Blaðsíða 8
FRÉTTABLAÐIÐ Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjóri: Einar Karl Haraldsson Fréttastjóri: Pétur Gunnarsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavlk Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf. Plötugerð: ÍP-prentþjónustan ehf. Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf. Dreifing: Póstflutningar ehf. - slmi 595 6500 Fréttaþjónusta á Netinu: Vísir.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á hðf- uðborgaisvæðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins 1 stafrænu formi og I gagnabönkum án endurgjalds. 8 FRÉTTABLAÐIÐ 28. maí 2001 MÁNUDACUR Listin laðar ferðamenn í kirkju Vöfflur í hæstu hæðum. Kaffi Guð- ríður í klukknaportinu efst í Hall- grímskirkjuturni. Antíkhúsgögn og ekta stemning með útsýni yfir alla borg. Það er kirkjulistahátíð, sú átt- unda í röðinni á nær 20 ára starfs- ferli Listvinafélags Hallgríms- kirkju. Það félag var stofnað sköm- mu eftir að Hörður Áskelsson réðist A til kirkjunnar eftir orgelnám í Þýska- landi og af þeim meiði hafa sprottið m.a. Mótettukór, Schola Cantorum, Kammersveit, Listasafn, Kirkju- listahátíð og Sum- arkvöld við orgelið. Þegar saman fara Það er með ólíkindum hvað fólk leggur á sig í listsköpun á Islandi, okkur öllum til ánægju og Guði til dýrðar. —♦— listrænir forystuhæfileikar og frjór jarðvegur gerast góðir hlutir, og sú hefur orðið raunin í starfi Harðar sem laðað hefur að sér marga frá- bæra krafta. Það er með ólíkindum hvað fólk leggur á sig í listsköpun á íslandi, okkur öllum til ánægju og Guði til dýrðar. Kristján Valur Ingólfsson formaður Listvinafélagsins sagði frá því við setningu Kirkjulistahátíðar að sérstaklega hefði verið nefnt í öðru samhengi að 9 milljónir króna væru ekki miklir peningar. Það væri á hinn bóginn stór fjárhæð fyrir að- standendur hátíðar að þessu tagi en fjárhagsáætlun hennar hljóðar ein- mitt upp á þetta. Enda þótt fjárráðin séu takmörkuð er hvergi slegið af listrænum kröfum og ekki væri JVLáLmanna EINAR KARL HARALDSSON lítur við í klukknaportinu. hægt að halda úti slíkri gæðadag- skrá nema vegna þess að fjöldi fólks leggur til ómælda vinnu af hugsjón og eldlegum áhuga. Nýlega hefur komið fram að framlag menningar til landsframleiðslu er mun veiga- meira en menn héldu áður og að líta beri á menningarstarfsemi sem hverja aðra atvinnugrein. Þegar org- eltónleikaröðin Sumarkvöld við org- elið hófst árið 1993 var algengt að 20-30 manns væru á orgelkonsert- um. Það þurfti enda að greiða með tónleikunum fyrstu árin, en nú er svo komið að 200-300 manns sækja hverja orgeltónleika á sumrin, og eru erlendir ferðamenn þar í mikl- um meirihluta. Sumarkvöldin við orgelið standa því vel undir sér og sanna það að með úthaldi og ítrustu gæðakröfum er hægt að mynda eft- irsótta hefð. ■ BRÉF TIL BLAÐSINS „Loks þegar ég ítrekaði um- sóknina þá týndu þeir pappírunum" ..-♦— Ekki alltfull- komið á Islandi Eric dosSantos skrifar: Ég kom hingað í janúar árið 2000. ísland er yndislegt land og þjóðin er víðsýn og ágæt. Ég ætla að halda áfram að búa hér. ^ En það er ekki allt fullkomið hér. Sérstaklega ekki Hagstofa Islands og Útlendingaeftirlitið. Fyrst fór ég á Hag- stofuna til þess að fá mér kennitölu og ekki vildi betur til en að konan stafaði nafnið mitt rangt inn á tölvuna. Það leiddi til þess að alls stað- ar þar sem nafn mitt var skráð, á bankareikninginn, ökuskírteinið, kreditkortið, símareikninginn o.fl. var nafnið vitlaust stafað. Ég reyndi að leiðrétta þetta á Hagstofunni með því að fylla út sérstakt umsóknareyðublað um breytingu á nafni, en aftur kom nafnið út vitlaust skrifað. Ég fór að halda að nafnið væri eitthvað sérstak- lega erfitt svo að ég lét sjö ára gamla dóttur mína skrifa það niður á blað, og það tókst henni í fyrstu tilraun. Viðskipti mín við Útlendingaeftir- litið hafa ekki verið betri. Þar er eins og vinni bara einstaklingar sem hafa ekkert samband sín í milli og hver og einn er eins og sjálfstæð deild. Fyrst fékk ég ekki þær upplýsingar sem þurfti til þess að geta fyllt umsókn um atvinnuleyfi rétt út, og síðan þegar ég hafði fundið út úr því sjálfur með mik- illi fyrirhöfn hvað þyrfti, þá sögðust þeir fyrst ekki hafa fengið umsókn frá mér, sem ég þó afhenti eins og stéttar- félagið setti mér fyrir að gera, og loks þegar ég ítrekaði umsóknina þá týndu þeir pappírunum mínum. Að hringja til Útlendingaeftirlitsins er næsta vonlít- ið verk því þar vísar hver á annan. Ég er þolinmóður maður og fæ góða hjálp frá minni íslenku konu. En Guð hjálpi þeim sem þarf einn og óstuddur að kljást við þessi embætti. Mér finnst ekki að fólk sem vinnur á þessum stofnunum eigi að haga sér eins og það sé að steikja franskar kart- öflur á MacDonalds. Starfsmennirnir eru fulltrúar þjóðarinnar gagnvart þeim sem koma hingað til skemmri eða lengri dvalar. Þeir eiga að hjálpa inn- flytjendum eins og mér til þess að kynnast lögum og reglum á vinnumark- aði. Mér finnst ekki að þeir séu að vinna vinnuna sína eins og til stendur. ■ LÍTIL SKERÐINC Skyggði flöturinn á myndinni sýnir hvar Norðlingaöldulón fer inn á Þjórsán/er. Rannsóknir benda til þess að umhverfisáhrif lóns með 575 m vatnshæð séu einkum þau að áreyrar færu undir vatn innan friðlandsins en einungis 1,4 ferkílómetrar að 93 ferkílómetrum gró- ins lands. Landsvirkjun telur að líkur á foki, jarðvegseyðingu og breytingum á grunnvatns- stöðu séu ekki til að hafa áhyggjur af og hægt sé að bregðast við þessum þáttum með góðum árangri. Norðlingaöldulón er eina leiðin Hugmyndir um gufuaflsvirkjanir slegnar út af borðinu. Ekki áhugi hjá veitunum að framleiða raf- magn fyrir álver. Of mikil hætta á nýju Kröflu- ævintýri. Er ný „Laxárdeila“ í uppsiglingu. virkjun Nú er orðið ljóst að eina leið- in til þess að tryggja Norðuráli raf- magn til stækkunar álverksmiðjunn- ar á Grundartanga árið 2004, á við- ráðanlegu verði, er gerð Búðarháls- virkjunar og Norðlingaöldulóns. Hugmyndir sem settar voru fram fyrir 2-3 mánuðum um gufuaflsvirkj- anir á vegum Hitaveitu Suðurnesja og Orkuveitu Reykjavíkur í stað Norðlingaöldulóns virðast hafa verið teknar útaf borðinu aftur. Iðnaðar- ráðuneytið var áhugasamt um þessa lausn, m.a. vegna andstöðu við Norð- lingaöldulón og skerðingu Þjórsár- vera, en áhuginn hjá veitumönnum var ekki mikill þegar á reyndi. Á þeim bæjum er ekki talið sérstaklega ábatasamt að virkja fyrir orkusölu til álvers. Það er einnig talið vera andstætt hugmyndum um gufuaflsvirkjanir í Svartsengi og á Hengilsvæðinu að um stórar virkjanir yrði að ræða, og hætt við að menn gætu endurtekið Kröfluævintýrið. Við Kröflu var virkjað á svæði sem ekki var full- kannað og reyndist óstöðugt, þannig að afl virkjunarinnar varð aldrei eins og að var stefnt. Talið er ráðlegt að nýta jarðhitasvæði í litlum skrefum, 20-30 megawött í einu, eftir að til- raunaholur hafa verið í gangi um nokkurra ára skeið. Á Hengilsvæðinu hafa tilraunaboranir og rannsóknir staðið í sjö ár og þar ætti ekkert að vera virkjun að vanbúnaði. En til þess að gufuaflsvirkjanir teljist fýsi- legur kostur þarf orkuverð að vera hærra en talið er að gangi upp í samningum við Norðurál. Búðarháls- virkjun er talinn dýr kostur en Norð- lingaöldulán ákaflega ódýr og hag- kvæmur kostur. Saman eru þessar tvær framkvæmdir taldar geta út- vegað Norðuráli rafmagn á viðráðan- legu verði. Það getur hins vegar sett strik í reikninginn að í Gnúpverjahreppi virðist vera eindregin andstaða við öll áform um að hrófla við Þjórsár- verum, sem eru á afrétti Gnúpverja. Enda þótt ríkið hafi öll tök á að ná fram vilja sínum varðandi Norð- lingaöldulón gerir andstaða heima- manna málið snúið og ekki að ósekju að Laxárdeilan skuli vera rifjuð upp í því sambandi, en þá sprengdu bændur stíflu í Laxá eins og í minn- um er haft. ■ Staða Lands- virkjunar sterk Unnið er að matsskýrslu vegna lögformlegs mats á umhverfisáhrifum Norðlingaöldulóns, segir Þorsteinn Hilmarsson. virkjun „Staða Landsvirkjunar er sterk í þessu máli, bæði málefnalega og faglega", segir Þorsteinn Hilmarsson upplýs- ingafulltrúi. „Við fögnum allri umræðu um Norðlingaöldulón og munum halda áfram að kynna framkvæmdina eins og kostur er og vinna að nauðsyn- legum rannsóknum. Við leggj- um áherslu á opna umfjöllun um þetta málefni svo allir geti kynnt sér málið. Þjórsárvera- nefnd lýkur senn úttekt sinni á áhrifum Norðlingaöldulóns í 575 m. hæð, en við teljum að framkvæmdin sé matsskyld s samkvæmt nýlegum lögum um mat á umhverfisáhrifum. Því er einnig unn- ið að gerð matsskýrslu til að tryggja að öll málsmeðferð verði eins fagleg og unnt er, uppfylli alþjóðlegar sam- þykktir og sé í samræmi við umhverf- isstefnu Landsvirkjunar." Á undanförnum árum hefur Landsvirkjun undirbúið að nýta UMRÆÐU FAGNAÐ Við leggjum áher- slu á opna um- fjöllun svo að allir geti kynnt sér málið, segir Þor- steinn Hilmars- vatn í Efri-Þjórsá með því að gera stíflu við Norðlinga- öldu neðan Þjórsárvera og mynda þar lón. Vetni yrði veitt þaðan um jarðgöng í Þórisvatn. Þar með yrði hægt að framleiða með því rafmagn í öllum núverandi virkjunum í Tungnaá og Þjórsá og er það afar hag- kvæmt. Þjórsárver eru frið- lýst og skilgreint sem svo- nefnt RAMSAR-svæði sam- kvæmt alþjóðlegum sam- þykktum. Frá fyrstu tíð frið- lýsingar hefur þó verið gert ráð fyrir að Landsvirkjun sé heimilt að mynda lón með stíflu við Norðlingaöldu í allt að 581 m. hæð yfir sjávarmáli að uppfylltu því skilyrði „að rannsóknir sýni að slík lónsmyndun sé framkvæmanleg án þess að náttúruverndargildi Þjórs- árvera rýrni óhæfilega að mati Náttúruverndarráðs (nú Náttúru- verndar ríkisins).“ ■ GNUPVERJAR MOTMÆLA Almennur sveitarfundur sem haldinn var í Árnesi á uppstigningardag lýsti yfir eindreg- inni andstöðu við Norðlingaölduveitu og aðrar fyrirhugaðar virkjunarframkvæmdir I Þjórsárverum og efri hluta Þjórsár. Á fundinum var mikill samhugur en auk Gnúpverja mættu í Árnes m.a. Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra, alþingismennirnir Jón Bjarnason og Kolbrún Halldórsdóttir og rithöfundarnir Birgir Sigurðsson og Páll Ólafs- son. Eftirfarandi ályktun var samþykkt einróma: „Þjórsárver og efri hluta Þjórsár ber að vernda sem einstætt vistkerfi og landslagsheild og minnt skal á að framkvæmdir á þessu svæði verða ekki aftur teknar. Fundurinn bendir á margþættar rannsóknir fær- ustu vísindamanna sem sanna sérstöðu svæðisins í íslenskri náttúru, þar sem þeir vara við allri röskun af manna völdum, enda er svæðið þekkt víða um heim og stór hluti þess friðlýstur. Fundurinn vekur athygli á að nú þegar hefur orðin veruleg röskun á vatnafari Þjórsár með 1 .-5. áfanga Kvíslaveitu Fundurinn minnir á ályktun fundar í Árnesi 17. mars 1972 og ítrekar fyrri mótmæli þar." | ORÐRÉTT r r Er eitthvað bogið við verðmætamat LIU? „Það er algerlega óviðunandi byggða- stefna að framkalla samdrátt og aft- urkipp í atvinnulífi byggðarlaga sem standa veikt fyrir. Gildir þar einu þótt boðnar séu bætur sem breyta litlu um áhrifin. Það er bitur reynsla fyrir því að kvóti er seldur og aðrir en útgerð- armenn sem búa í byggðarlögunum eru ekki spurðir og sitja eftir með sárt ennið. Það er ekki brýn þörf á því að bæta við þann kvóta sem fáir hafa undir höndum og geta verslað með, en hins vegar er mikil nauðsyn fyrir fólk í sjávarbyggðum á að aðgangur sé að tryggum veiðiheimildum. Áhrifin af kvótasetningunni eru mönnum ljós. Því á ekki að hrinda henni í framkvæmd nema aðrar breytingar á fiskveiðilöggjöfinni skapi nýja möguleika til mótvægis og unnið verði að atvinnuuppbyggingu á SAMDRÁTTUR OG AFTURKIPPUR Það er mikil nauðsyn fyrir fólk í sjávar- byggðum a aðgangur sé að tryggum veiðiheimildum. öðrum sviðum. Þetta eru viðfangsefni þeirra sem vinna að endurskoðun fiskveiðilöggjafarinnar: að líta á mál- in í heild sinni með hagsmuni allra í huga, ekki hvað síst þess fólks sem ekki á kvóta. Það voru engin rök fyrir því að taka málefni smábáta út úr endur- skoðun laga um stjórn fiskveiða, veið- ar þeirra eru að vísu um 5000 tonnum af ýsu umfram það sem þeim er ætlað. Munurinn er sá að umframveiði smá- bátanna er landað og úr ýsunni unnin útflutningsvara að verðmæti a.m.k. 1 milljarður króna, en umframveiði aflamarksbátanna er hent og verður engum að gagni. Það er einkennilegt að LÍÚ- liðið unni sér ekki hvíldar vegna veiði smábátanna en lætur eins og brottkastið sé eðlilegur hluti veið- anna. Það skyldi þó ekki vera að eitt- hvað sé bogið við verðmætamat LÍÚ?“ Kristinn H. Gunnarsson formaður þingflokks Framsóknarflokksins í Morgunblaðinu 24. maí 2001

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.