Fréttablaðið - 28.05.2001, Qupperneq 7
MÁNUDAGUR 28. maí
FRÉTTABLAÐIÐ
7
Rannsókn á Sotheby’s og Ghristie’s:
Ólöglegt samráð
sawkeppni. Handskrifuð minnsblöð
frá uppboðsfyrirtækinu Christie’s
benda til þess að um viðameira sam-
ráð hafi verið að ræða milli þess og
Sotheby’s heldur en áður var ætlað.
New York Times greinir frá því að
auk þess að ákveða þóknun seljenda
sameiginlega, sem þau hafa þegar
játað, þá sýni minnisblöð að þessi tvö
stærstu uppboðsfyrirtæki i heimi
hafi unnið kerfisbundið saman að því
að auka hagnað sinn af listaverka-
sölu. Þá hafi verið í gildi samkomulag
um að tala ekki illa um „samkeppnis-
aðilann” og að bera ekki víurnar í
starfsfólk hvors annars. Minnisblöð-
in sýna ennfremur að starfsmenn
Christie’s höfðu áhyggjur af lögmæti
samráðsins og ræddu um það sín á
milli; einnig hafi yfirmenn fyrirtæk-
isins verið vel meðvitaðir um alþjóð-
leg samkeppnislög, en hafi talið að
þeir gætu komist undan því að fara
eftir þeim. „Hundruð fyrirtækja,
bankar og svo framvegis, gera þetta
án þess að tala um það ... [samráðið]
er auðveldara fyrir okkur heldur en
fyrir fyrirtæki sem selja vörur sem
hægt er að verðleggja á nákvæmari
hátt ... Það ættu ekki að koma upp
nein lagaleg vandamál,” stendur í
nafnlausu minnibiaði sem talið er rit-
IVIYND AF DICKENS BOÐIN
UPP HJÁ CHRISTIE'S
Sotheby's og Christie's höfðu meðal
annars leynilegt samráð um að tala ekki
illa um hvort annað.
að af Sir Anthony Tennant, fyrrum
forstjóra Christies. ■
ÓFRIÐUR I' FÆREYJUM
Það er ekki friðsælt í Færeyjum um þessar mundir. Venjulega beinist athygli umheimsins helst að eyjunum I tengslum við grindhvaladráp
en nú hefur mikil harka í kjarabaráttu þar vakið athygli.
Sendu lögguna á okkur
og hóta lagasetningu
Mikil harka hefur verid í nær þriggja vikna löngu verkfalli ófaglærðs verkafólks í
Færeyjum. Verkalýðshreyfingin óttast að landsstjórnin feti í fótspor íslenskra
stjórnvalda og bindi enda á verkfallið með lögum.
færeyjar Óvenjumikil harka hefur ver-
ið í verkfalli ófaglærðs launafólks í
Færeyjum sem staðið hefur síðan 9.
maí síðast liðinn eins og sást best í síð-
ustu viku þegar lögreglumenn með
hunda brutu verkfallsvörslu verka-
fólks á bak aftur. Alls eru 8.000 félag-
ar í Föroya arbeiðarafélagi í verkfalli
en það er nær fimmtungur lands-
manna.
Ingeborg Vinther, formaður
Föroya arbeiðarafélags, sem er nokk-
urs konar Alþýðusamband Færeyja,
segist aldrei hafa upplifað annað eins
og aðgerðir lögreglu í síðustu viku.
„Lögreglan kom að fólki sem var á
verkfallsvakt og skipaði öllum að vera
á brott innan fimmtán mínútna. Þegar
fólk kom út varð það þess vart að lög-
reglan hafði hunda í för með sér og
skammt þar frá voru sjúkrabílar sem
höfðu verið kallaðir til. Þeir voru því
við öllu búnir.“ Ingeborg segist ekki
skilja hvemig mönnum hafi dottið í
hug að senda lögreglu með hunda til að
stöðva verkfallsvörslu Arbeiðarafé-
lagsins. „ Fólk hefur verið friðsamt við
verkfallsvörslu sína og ekki verið í því
að skapa ófrið. Við héldum því á brott
þegar lögreglan kom til að stugga við
okkur en hófum verkfallsvörslu okkar
aftur þegar lögreglan var farin.“
Að sögn Ingeborgar voru það ekki
einu afskipti lögreglunnar af þeim
sem voru í verkfalli. „Lögreglan var
einnig að fylgjast með okkur í bílum.
Eitt kvöldið fylgdu tveir lögreglubílar
mér eftir og ýmsum svona aðgerðum
hafa þeir beitt í heila viku.
„Nú er Fólkaflokkurinn í stjóm og
hann er flokkur atvinnurekenda", seg-
ir Ingeborg sem telur flokkinn ekki
líklegan til að hafa hag launafólks að
leiðarljósi. „Þeir hótuðu okkur í bréfi
að ef við hættum ekki verkfallsvörslu
og hleypum laxvinnslu í gang muni
þeir kalla Lögþingið saman og setja
lög á okkur til að koma vinnslunni í
gang, rétt eins og íslensk stjómvöld
gerðu til að bjarga loðnuvertíðinni."
bínni@frettabladid.is
Háskóli íslands:
Gjafir til styrktar vísindastarfi
VERÐLAUNflSJÓÐIR Bent
Scheving Thorsteinsson af-
henti Háskóla íslands 13,4
milljónir króna að gjöf á
föstudag til styrktar vís-
indarannsóknum á sviði
lyfjafræði og barnalækn-
inga. Þetta er í annað skipti
sem Bent styrkir Háskóla
íslands með þessum hætti
en á síðasta ári gaf hann
skólanum 7,2 milljónir til
styi'ktar rannsóknum á
sviði barnalækninga.
Af því fé sem Bent gef-
ur nú renna 10,3 milljónir
króna í nýstofnaðan Verð-
launasjóð Bergþóru og Þor-
REKTOR VEITIR GJÖFINNI MÓTTÖKU
Bent fetar í fótspor föður síns sem á sínum tíma gaf Háskólanum
mikið kortasafn.
steins Schevings Thor-
steinsson sem var stofn-
aður á föstudag til minn-
ingar urn þau hjón. Mark-
mið sjóðsins er að veita
verðlaun fyrir vísindaleg
afrek og styrkja rann-
sóknir og framhaldsnám í
lyfjafræði. Þá gaf Bent
3,1 milljón króna sem við-
bót við sjóð sem hann
stofnaði á síðasta ári til
minningar um fósturföð-
ur sinn Óskar Þórðarson
barnalækni en fyrsta út-
hlutun úr þeim sjóði fer
fram þann 14. júní n.k. á
afmælisdegi Óskars. ■
../ stoun
fYRIRTÆKJASALA
ISLANDS
SÍÐUMÚLA 15 SÍMI: 588 5160
Skjalagerð Lögmannstofa
Gissurs V. Kristjánssonar
FYRIRTÆKI TIL SÖLU
Sport-heild- og smásala m/ vinsælt
og þekkt merki, samningar við
íþróttafélög í gangi.
Barnafataverslun í Krinelunni Góð
staðsetning, góð velta , mjög hag-
stætt verð, þekkt merki.
Heildsala m/heimsþekkt merki í
dömufatnaði, fylgihlutum og förð-
unarvörum. Er með verslun á
Laugavegi.
Daesöluturn. Aðeins opið 9 -18.
Videoleiga. þekkt og vinsæl leiga
með mikið úrval. Auk þess sælgæti
og slíkt. Góð velta. Góð afkoma.
Heilsustudió góður nýl. búnaður.
Vel þekkt með ágæta nýtingu, auka
aðstaða td. fyrir snyrtifræðing.
GUNNARJÓN
YNGVASON
Heildsala. m/vinnufatnað, vandað-
ur fatnaður sem er að fá sterk við-
brögð á markaðinum.
Framleiðslufvrirtæki í áli og
plasti, eigin innflutningur. Þekkt,
skilar góðum hagnaði ár eftir ár.
Fjöldi annarra fyrirtækja á skrá
ATVINNUHÚSNÆÐI
Fjárfestar: Laugavegur glæsilegt
endurnýjað húsnæði. 10 ára leigus.
Árstekjur 5,4. Verð 49,8 milj
Listhúsið Laugardal tvö sjálfstæð
bil, í öðru er gallerý en í hinu versl-
un með listmuni. Laus strax eða
fljótt.
Dalvegur - t.d. fyrir heildsölu 280
fm, vinsæll vaxandi staður. Innk.
dyr, sýningarsalur, góð skrifst. að-
staða.
www.firmaskra.is
GARÐABÆR
www.gardabaer.is
Spennandi stjórnunarstörf
Garðabær auglýsir iaus til umsóknar störf
deildarstjóra við grunnskóla Garðabæjar:
Flataskóli
I Flataskóla eru nemendur 1.-6. bekkjar. Umsóknum
með upplýsingum um nám og fyrri störf skal skila til
Sigrúnar Gísladóttur, skólastjóra Flataskóla v/
Vífilsstaðaveg
210 Garðabæ, sem jafnframt veitir upplýsingar um störfin
í símum 565-8560, 565-8484, netfang:
sigrun@gardabaer.is
Hofsstaðaskóli
I Hofsstaðaskóla eru nemendur 1.-6. bekkjar. Umsóknum
með upplýsingum um nám og fyrri störf skal skila til
Hilmars Ingólfssonar, skólastjóra Hofsstaðaskóla v/
Skólabraut,
210 Garðabæ, sem jafnframt veitir upplýsingar um störfin
í símum 565-7033,565-6087,
netfang: hilmari@gardabaer.is. Sjá einnig vef
Hofsstaðskóla http ://www.hofsstadaskoli.is/
Garðaskóli
í Garðaskóla eru nemendur 7. - 10. bekkjar. Umsóknum
með upplýsingum um nám og fyrri störf skal skila til
Gunnlaugs Sigurðssonar, skólastjóra Garðaskóla v/
Vífilsstaðaveg sem jafnframt veitir upplýsingar um störfin
í símum 565-8666 og 565-7694,
netfang: gunnlaugur@gardabaer.is . Sjá einnig vef
Garðaskóla http://www.gardaskoli.is
I Grunnskólum Garðabæjar er lögð mikil áhersla á notkun
fartölva í starfi kennara. Arlega er varið miklu fjármagni
til endurmenntunar og umbóta á faglega sterku skólastaífi.
Góð starfsaðstaða og mikil samvinna.
Umsóknarfrestur er til 5. júní 2001.
Einnig eru upplýsingar um störfin á vefsvæði Garðabæjar
www.gardabaer.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar
sveitarfélaga og Kennarasambands Islands.
Grunnskólafulltrúi
Frœðslu- og menningarsvið
Fræðslti- og menningarsvið