Fréttablaðið - 28.05.2001, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 28. maí 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
11
Formaður Sjómannafélags ísafjarðar:
Þetta er kjaftshögg
Kristján A. Guðjónsson:
Segi upp
30 manns
smábátar „Ég á aðild að firam bátum
og það er alveg ljóst að ég verð að
segja upp 25 til 30
manns. Sennilega
verð ég einn eftir
með kannski einn
strák með mér,“
sagði Kristján
Andri Guðjónsson á
ísafirði.
Hann segist
aldrei geta sætt sig við að smábátarn-
ir verði kvótasettir eins og verður að
óbreyttu. Hann er þess fullviss að
mjög margir Vestfirðingar missi at-
vinnuna 1. september. ■
smAbátar „Þetta er kjaftshögg og
það er alltaf vont þegar fólk missir
vinnuna, en það munu margir gera.
Það verður samdráttur gangi þetta
eftir," sagði Sævar Gestsson for-
maður Sjómannafélags ísafjarðar.
„Menn hafa verið fiska umtals-
vert af ýsu og steinbít," sagði Sæv-
ar þar sem hann var að beita fyrir
Guðbjörgu ÍS 46, Gugguna. En
hvernig ætli afnám frjálsra veiða á
ýsu og steinbít muni koma við þann
bát. „Þú getur rétt ímyndað þér.
Engin veiðireynsla. Þetta kemur
illa við alla og ef verður settur
kvóti á þessar tegundir mun það
koma sérstaklega illa við bát sem
þennan, þar sem engin veiðireynsla
er.“
Sævar segir að afli hafi verið
góður og því talsverð vinna í kring-
um bátinn. „Við róum með 24 bala
og við erum fjórir að beita og tveir
eru á sjó. Það munu ekki allir hafa
peninga til að kaupa kvóta, sumir
gera það og aðrir munu leigja frá
sér til að borga niður skuldir,"
sagði Sævar. ■
SÆVAR GESTSSON
Hann segir að það verði
samdráttur í haust.
Guðni Einarsson á Suðureyri:
Tækifæri
munu skapast
smábátar Ekki voru allir á einu máli á
fjölmennum fundi á ísafirði um at-
vinnumál. Einn þeirra sem talaði var
við var þess fullviss að
óbreyttu muni ýmis
tækifæri skapast.
„Ég vil ekki annað
en reyna að sjá björtu
hliðarnar við þetta,“
sagði Guðni Einarsson
frá Suðureyri. Hann
segist sjá fyrir sér að verð á þorsk-
kvóta muni lækka. „Þá breytast
áherslur frá aukategundum yfir í
þorsk. Þetta verða engin endalok að
mínu mati eða samdrátt," sagði
Guðni Einarsson. ■
Ráðherrann lofar
lausn flj ótlega
Hundruðir Vestfirðinga á fundi um atvinnumál. Sjávarútvegs-
ráðherra boðar lausn í smábátamálinu
sjávarútvecur. „Ég er að vinna að
lausn og þarf tíma til að ljúka því
verki,“ sagði Árni M. Mathiesen í
samtali við Fréttablaðið að loknum
fjölmennum fundi á ísafirði þar sem
mest var rætt um kvótasetningu ýsu
og steinbíts hjá smábátum, en að
óbreyttu fara þessar tegundir undir
kvóta - en nú mega bátarnir fiska
þær utan kvóta. Árni sagðist ekki
geta sagt um til hvaða aðgerða hann
mun grípa - en aftekur að hann leggi
aftur fram þá hugmynd að bátarnir
fái 1.800 af ýsu og 1.500 tonn af
steinbít. Hann segist ljúka verkinu
nokkru fyrir 1. september.
í ræðu á fundinum sagði Árni
meðal annars að afli smábátanna
muni skerðast. Hann sagði ekki hægt
að fresta lengur að lögin gangi í
gildi. Varðandi vanda Vestfirðinga
sagði að frá landshlutanum sé fluttur
umtalsverður afli. „Það er vilji þess-
ar ríkisstjórnar að leysa þetta mál,“
sagði ráðherrann. Ég veit að við höf-
um ekki mikinn tíma. Ég vil biðja um
biðlund,“ sagði ráðherra. „Við mun-
um finna lausn sem vonandi dugar
okkur vel og lengi.“
Árni sagði að umræðan færi
alltaf þannig að kvótakerfinu sé
kennt um allt sem miður hefur farið
- og sérstaklega þó framsalinu sem
hann sagði sennilega vera það mikil-
vægasta í kerfinu. Áður en ráðherra
kvaddi sagist hann lofa að koma aft-
ur.
Fundarmenn voru um 800 og
margir þeirra tóku þátt í umræðun-
um. Snorri Sturluson sagðist vera
vonsvikinn með fálæti Davíð Odds-
sonar og að Árni Mathiesen væri
ekki vondur drengur. „Hann hefur
vonda ráðgjafa."
Guðjón A. Kristjánsson sagði að
HALLDÓR HERMANNSSON
Hinn mikli baráttumaður lét fara vel um
sig meðan ræðumenn kepptust við að
segja ráðherranum til syndanna. Halldór
vaknaði síðar til lífsins og kallaði sínar at-
hugasemdir til ræðumanna.
FULLUR SALUR
Talið er að hátt í 1.000 manns hafi fyllt
íþróttahúsið á Torfunesi á ísafirði.
framsalsréttur endi alltaf með því að
kvóti er seldur. „Okkar byggðir hafa
fengið að finna fyrir því,“ sagði Guð-
jón. Hann sagði einkennilegt að
heyra ráðherra tala um vandamál og
benti á að ráðherrann og hans félag-
ar hafi búið til það vandamál sem nú
er talað um. „Það hafa tvö þúsund
Vestfirðingar lifibrauð af útgerð
smábáta. Við þolum ekki að vegið
verði að þessari atvinnu. Frekari
kvótasetning hjálpar okkur ekki,
heldur býr til nýja verslunarleiðir,"
sagði Guðjón.
Karl V. Matthíasson alþingismað-
ur sagði: „Við erum hér til að koma í
veg fyrir að lögin taki gildi fyrsta
september. Ráðherra sagði að við
yrðum að finna leið - sú leið er til -
leyfum bátunum að róa. Gefumst
aldrei upp,“ sagði þingmaðurinn.
sme@frettabladid.is
ÁRNI M. MATHIESEN GENGUR AF FUNDI
Ráðherra sat fundinn í tvær klukkustundir - en var búinn að lofa sér á annan fund og varð því að fara.
Atvinna í Bolungarvík:
Ovissan er
mjög mikil
smábAtar „Það verður lítið fyrir okk-
ur að gera og það breytir litlu þó
kvóti verður settur á. Þeim mönnum
sem vinna við bátana mun fækka, nú
eru sjö til tíu manns um hvern bát. Þá
eru meðtaldir beitarar, sjómenn, bók-
arar og allir aðrir. Það verður bara
brot af þessu eftir 1. september,"
sögðu þeir félagarnir Ingibjörn Vals-
son og Brynjar Ævar Guðmundsson
þar sem þeir voru að beita línu í Bol-
ungarvík.
Þeir segjast ekki vilja búa annars
staðar en í Bolungarvík, en atvinnu-
tækifæri eru fá. „Það er ágætt að
Hörður Valsson á Isafirði:
Slepp við kostnaðinn
smAbátar „Ég er ekki rétti maðurinn
til að tala við. Ég á 50 tonna kvóta og
hef leigt hann frá mér en það gefur
ámóta mikið í tekjur og fiska hann
sjálfur, en ég slepp við allan kostn-
að,“ sagði Hörður Valsson á ísafirði.
Hann segist viss um að gangi lög
um veiðar smábáta eftir muni sumir
trillukarlar skaðast verulega og aðrir
hagnast. Hann segir að þær miklu
breytingar sem hafa orðið á sjávarút-
vegi á Vestfjörðum séu ótrúlegar.
„Áður var fjöldi togara og stórra
fiskiskipa. Nú byggist þetta allt upp á
trillum,“ sagði Hörður. ■
HÖRÐUR VALSSON
Hagstæðar að leigja frá sér kvótann en
sækja sjó.
INGIBJÖRN VALSSON OG BRYNJAR
ÆVAR GUÐMUNDSSON
„Það er ágætt að beita, en það er engin
framtið i því."
beita, en það er engin framtíð í því.
Það er ekkert annað fá. Nánast allir
bátar eru farnir og því eru ekki mörg
pláss að fá. Við færum ekki héðan ef
við hefðum eitthvað að gera, en það
er ekki bjart yfir því. Það kemur ekki
til greina að kaupa hér eignir þar sem
óvissan er það mikil." ■
Bolir og Toppar í fallegum litum
Flottar ítalskar leðurtöskur
Erum beint
ámóti
Sparisjóði
Kópavogs
Hlíðarsmára 17.200 Kópavogi . S 554-7300
Opið frá 10-18 virka daga 10-16 laugardaga
BSRB
Fyrirlestur
Er markaðsvæðing raforku í hag neytenda?
Bandaríkjamennirnir Theo McGregor og Jerrold
Oppenheim kynna rannsóknir á skipulagi
raforkugeirans í Bandaríkjunum.
Fyrirlesturinn verður túlkaður á íslensku.
Ársal Hótel Sögu
mánudaginn 28. maí. kl. 14.00.